Fréttablaðið - 19.10.2019, Qupperneq 8
Þú færð nákvæm-
lega sömu vöruna ef
þú skiptir yfir í annan
raforkusala.
Sigurður
Friðleifsson,
framkvæmda-
stjóri Orkuseturs
Miðstöð íslenskra
bókmennta
auglýsir eftir
umsóknum um
þýðingastyrki
Styrkirnir eru veittir til að þýða á íslensku
mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar
fagurbókmenntir og fræðirit.
Jafnframt eru veittir styrkir til þýðinga vandaðra,
myndríkra bóka fyrir börn og ungmenni.
Umsóknarfrestur er til
15. nóvember 2019.
Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar á islit.is.
Innritun í framhaldsskóla
á vorönn 2020
Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða
upp á innritun fyrir nám á vorönn 2020 verður dagana
1.-30. nóvember nk.
Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla.
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram
samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir framhaldsskólar
auglýsa.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með
því að senda tölvupóst á netfangið innritun@mms.is.
Starfsfólk Menntamálastofnunar
Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2020
Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2020
verður dagana 1.-30. nóvember nk.
Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir
framhaldsskólar auglýsa.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á
netfangið innritun@mms.is.
Starfsfólk Menntamálastofnunar
ORKUMÁL Ef þúsundir heimila
skipta yfir í ódýrasta kostinn í raf-
orkusölu er möguleiki að koma af
stað verðstríði milli raforkusala,
óvíst er hins vegar um hversu mikið
svigrúm er til að lækka rafmagns-
verð heimilanna.
„Það er vissulega ekki mikið upp
úr því að hafa að skipta um raf-
orkusala, eins og staðan er í dag þá
erum við að tala um nokkur þúsund
krónur á ári fyrir meðalheimili,“
segir Sigurður Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs.
Aðspurður hvort það geti breyst
ef þúsundir heimila ákveði að
skipta yfir í ódýrasta kostinn segir
hann svo vera. „Klárlega. En í dag
eru þetta rosalega lítil útgjöld hjá
heimilum, hvatinn því lítill til að
skipta.“
Átta raforkusalar starfa hér á
landi. Á vef Aurbjargar, sem notar
gögn Orkuseturs, má finna verð-
samanburð á kílóvattstund. Verðið
er lægst hjá Íslenskri orkumiðlun.
Aðeins nokkrum aurum munar
þó á þeim og Orku heimilanna og
Orkubúi Vestfjarða. Orka náttúr-
unnar og HS Orka eru dýrust með
kílóvattstundina yfir 8 krónum
með virðisaukaskatti. Meðalnotk-
un heimila er á bilinu 4 til 5 þúsund
kílóvattstundir á ári. Sem dæmi þá
getur heimili sem kaupir 4.500 kíló-
vattstundir á ári af HS Orku sparað
um 4 þúsund krónur með því að
skipta yfir í Íslenska orkumiðlun.
Úr 80 þúsund krónum niður í 76
þúsund krónur.
Í reglugerðardrögum atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytisins sem birt
eru í samráðsgátt stjórnvalda er
lögð áhersla á að tryggja rétt neyt-
enda á hverjum tíma til að velja sér
raforkusala og auðvelda fólki að
skipta um raforkusala. Fram kom
í skýrslu sem verkfræðistofan Efla
gerði fyrir ráðuneytið í vor að lítil
samkeppni sé í raforkusölu til ein-
staklinga og lítilla fyrirtækja. Til
dæmis hafi aðeins 370 heimili af
140 þúsund skipt um raforkusala
árið 2017. Í dag eru flest heimili með
þann raforkusala sem þau voru með
áður en það var frjálst að skipta.
Rafmagnskostnaður heimilis
skiptist í tvennt, annars vegar
dreifingu sem ekkert er hægt að
breyta og sölu sem hægt er að skipta
um kostnaðarlaust. Í dag er mjög
auðvelt að skipta um raforkusala,
hjá bæði Íslenskri orkumiðlun og
Orkubúi Vestfjarða er hægt að gera
það í gegnum einfalda umsókn á
netinu.
Sigurður segir þó óvíst hversu
mikið verðið geti lækkað ef neyt-
endur fara að elta ódýrasta kost-
inn. „Við vitum ekki hvort hægt er
að lækka lægsta verðið, það er eðli
vörunnar að verðin séu mjög þétt,“
segir Sigurður og nefnir sem dæmi
bensínverð. Raforkusalar þurfa
litla yfirbyggingu, í raun þarf ekki
að gera neitt nema semja við raf-
orkuframleiðendur, þar sem Lands-
virkjun er langstærst, og fara svo að
selja rafmagn í smásölu.
Sigurður segir engan mun á þjón-
ustu eftir því við hvern er skipt. „Þú
ert ekki háður eða bundinn neinum
sala. Þú færð nákvæmlega sömu
vöruna ef þú skiptir yfir í annan
raforkusala.“ arib@frettabladid.is
Möguleiki á verðstríði
um rafmagn til heimila
Lítill verðmunur er á raforkuverði hjá söluaðilum. Með því að skipta getur
heimili sparað nokkur þúsund krónur á ári. Framkvæmdastjóri Orkuseturs
útilokar ekki verðstríð ef mörg heimili ákveða að skipta í ódýrasta kostinn.
Meðalheimili á Íslandi notar á bilinu 4 til 5 þúsund kílóvattstundir af rafmagni á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Raforkusali
Íslensk orkumiðlun 7,25
Orka heimilanna 7,30
Orkubú Vestfjarða 7,32
Rafveita Reyðarfjarðar 7,61
Fallorka 7,91
Orkusalan 7,99
Orka náttúrunnar 8,05
HS Orka 8,11
✿ Raforkuverð
verð á kílóvattstund í krónum m/vsk.
Íslenskukennsla
fyrir útlendinga
Umsóknarfrestur 4. desember 2019
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í
íslensku sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða
framhaldsskólastigi. Áformað er að verja allt að 120 m.kr. til
íslenskukennslu útlendinga árið 2020*.
Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða
starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku
og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki eða
stofnanir, sem ekki eru viðurkenndir fræðsluaðilar, þurfa að
láta undirritaðan samning við viðurkenndan fræðsluaðila, sem
annast kennsluna, fylgja umsókninni.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna
á rannis.is. Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi
fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 4. desember 2019.
*Með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjárlögum næsta árs.
Upplýsingar um sjóðinn veitir
Skúli Leifsson, sími 515 5843,
skuli.leifsson@rannis.is
Heimild: Aurbjörg
EFNAHAGSMÁL Hagdeild ASÍ gerir
ráð fyrir að fram undan sé skamm-
vinnt samdráttarskeið í efnahags-
kerfinu í nýrri hagspá til næstu
tveggja ára sem birt var í gær. Spáin
gerir ráð fyrir 0,3 prósenta sam-
drætti á yfirstandandi ári en að
viðsnúningur verði strax á næsta
ári. Þannig verði hagvöxtur 0,6
prósent á næsta ári og 2,3 prósent
árið 2021.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar-
innar byggir á Þjóðhagsspá Hag-
stofunnar frá því í maí. Þar var gert
ráð fyrir 0,2 prósenta samdrætti á
yfirstandandi ári en 2,6 prósenta
hagvexti á því næsta. Í greinargerð
frumvarpsins kemur þó fram að
sú spá sé bjartsýn samanborið við
aðra greiningaraðila.
„Geta heimila og fyrirtækja til
að takast á við stöðuna nú er hins
vegar almennt allt önnur og betri
en í síðustu niðursveif lu,“ segir í
inngangi hagspár ASÍ. Það sama
gildi einnig um getu stjórnvalda og
Seðlabankans til að bregðast við.
Þá segir að góðu heilli hafi áhrifin
af falli WOW verið minni en við var
búist.
Hagdeild ASÍ telur einnig að
fjárfesting hins opinbera aukist og
verði 4,4 prósent af vergri lands-
framleiðslu í lok spátímans. – sar
Hagdeild ASÍ spáir skammvinnu samdráttarskeiði
ASÍ spári skammvinnu samdráttar-
skeiði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0,3%
samdrætti í hagkerfinu er
spáð á yfirstandandi ári.
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð