Hlynur - 15.03.1956, Page 8
Þorrablót
Starfsmannafélags
K. E. A.
Þröng var á þingi á h nu árlega
þorrablóti SF/KEA, sem haldið var að
Hótel KEA þann 18. febrúar síðastlið-
inn. 330 manns sátu hófið, eða fleiri en
nokkru s’nn' áður. A borðum var
hangikjöt og laufabrauð og annar rarnrn
íslenzkur matur.
Gunnlaugur P. Kristinsson, formaður
ekemmtinefndar, setti samkomuna og
stjórnaði henni. Meðan setið var und r
borðum fóru fram ým’s skemmtiatriði.
Baldur Eiríksson flutti h’nn klassíska
annál KEA, fluttur var skákþáttur og
loks var getraun í útvarpsstíl: Hver er
maðurinn?
Síðar um kvöldið afhenti svo „mað-
urinn“ Olafur Tr. Olafsson, elzti tarfs-
maður KEA, verðlaun fyrir réttar úr-
lausnir. Einnig fór fram kapprakstur,
þátttakendur voru fjórir og s’graði
Krist'nn Þorsteinsson, deildarstjóri.
Þarna kom einn g Ilrafn Pálsson fram
í gerv; söngkonunnar Sópraníu Gólan
og vakti geysihrifningu.
A milli skemmtiatriða var m ki!l og
almennur söngur undir stjórn Kr'stins
Þorsteinssonar, sem lék undir.
Aðgöngumiðarnir voru iafnframt
happdrættismiðar. og var aðalvinning-
urinn hrærivél, sem gef.nn var af véla-
og búsáhaldade ld.
Að loknu borðhaldi var tekið til að
dansa af miklu fjöri til kl. 3 eftir m’ð-
nætti. Guðný Einarsdóttr söng með
hljómsve tinni. — Verðlaunadans unnu
glæsilega þau Halldóra Guðmundsdóttir
og Anton Kristjánsson. Hlutu þau að
verðlaunum heljarmikla rjómatertu frá
Brauðgerð KEA.
Mikil og almenn ánægja ríkt með
þorrablótið, sem þótti fara í alla staði
hið bezta fram.
Mynd rnar á næstu síðu eru frá
Þorrablótinu. I efstu röð, v. m. er Gísli
Konráðsson off frú. A scmu mynd h.
m. er Guðmundur Mikaelsson. Sópranía
Gólan, er yzt t l hægri. I annarri röð v.
m. er Baldur Eiríksson að lesa annálinn.
þá koma Helga Jónsdóttir og Sigmund-
ur Bjórnsson. Yf r höfði Sigmundar set-
ur Gunnlaugur P. Kristinsson skemmt-
un'na, en h. m. er Baldur Agústsson að
taka v ð verðlaununum og þá Sigurður
Jóhannesson og frú. I þriðiu röð sjást
Halldóra Guðmundsdóttir og Anton
Kristjánsson með kökuna, sem þau
unnu í verðlaunadansinum. Síðan koma
Anna Bjórnsdóttir og Anna Þorkels-
dóttir. Yzt til hægri er Brynjólfur
Sveinsson að þakka boðið f. h. stjórnar
KEA, en yftr höfði hans eru þær Adda
Ornólfsdóttir, Andrea Pálmadóttir,
Ebba Ebenhardsdóttir, Edda Kristjánr-
dóttir og Eyrún Kristjánsdótt r. Neðst
t. v. er Guðný Einarsdóttir. en næsta
mynd er frá úrslitum í verðlaunadans-
'num, sem lauk með ,.hjólböruakstri“.
Talið f. h. eru Anton og Halldóra, Þor-
móður Sveinsson og Soffía Halldórs-
dóttir, Guðmundar Blöndal og Auður
Aðalste nsdóttir og Páll Halldórrson og
Guðrún Aspar. Þess skal að lokum get-
ið að Halldé>ra var sú eina, sem kom
sínum „börum“ í mark, hinar „sprungu“
al.’ar.
8