Hlynur - 15.03.1956, Blaðsíða 16
4. ÁRG. 3. TBL.
er
9
ott aÉ vita ...
að einmitt þegar allt hækkaði sem mest,
gátu Samvinnutryggingar tilkynnt við-
skiptavinum sínum (sem jafnframt eru
eigendur stofnunarinnar) að 2,8 mill-
jónum verði nú skilað aftur. Þessar
endurgreiðslur kosta stóraukna vinnu
hjá tryggingunum ekki sízt allar færsl-
urnar í stofnsjóðinn.
að frestur í ljósmyndasamkeppni Hlyns
rennur út í lok marz og allir lesendur
Hlyns mega taka þátt í keppninni. Vit-
að er um ljósmyndafaraldur í nokkrum
kaupfélögum og ætti því ekki að skorta
keppendur þar.
að SIS gengur ekki eins vel í bridge eins
og verzluninni. Þátttaka í bridge hefir
verið dræm í vetur, en venjuleg mót þó
farið fram. Páll Hannesson er ein-
menningsmeistari og hann og Guð-
mundur Gunnarsson eru beztir tví-
menningar, auk þess sem Sambands-
húsið og Edduhúsið biðu mikinn ósigur
fyrir Jötni, Kirkjusandi og fleiri út-
varðstöðvum. Sambandið hyggst nú
skera upp herör til að styrkja varnir
sínar gegn KÁ, KEA, KB og fleirum,
sem það þarf að mæía, en SÍS hefir
farið halloka fyrir þessum aðilum und-
anfarin ár.
að Erlendur Einarsson forstjóri cg Hjört-
ur Hjartar, framkvæmdastjóri skipa-
deildar, fóru til New York í lok febrú-
ar til að ganga frá lánum vegna olíu-
skipsins fyrirhugaða. Hjörtur mun
væntanlega halda þaðan til Evrópu lil
að ræða við skipasmíðastöðvar.
að kaupmenn í Reykjavík eru nú að skipu-
leggja hópferð til Norðurlanda í vor
til að kynna sér kjörbúðir! Betra seint
en aldrei.
að leikflokkur Sambandsstarfsmanna sýndi
„Geimfarann“ og margt fleira í Bif-
röst fyrir nokkru við mikla ánægju.
Mikið er um heimsóknir til skólans og
hafa forráðamenn SÍS m. a. komið þar
og flutt fyrirlestra.
að Kjartan Sæmundsson og Sören Jóns-
son fóru nýlega til Austur-Þýzkalands
til að sækja Leipzig-messuna og gera
innkaup fyrir samvinnufélögin.
að Björgvin Jónsson, kaupfélagsstjóri á
Seyðisfirði, hefir nýlega verið skipaður
vararæðismaður Norðmanna þar á
staðnum.
að Samvinnuskólinn bauð nýlega starfs-
fólki Kaupfélags Borgfirðinga í heim-
sókn og komu um 70 manns. Nemend-
ur fluttu fjölbreytt skemmtiatriði og
síðan var dansað og lék hljómsveit
skólans (í einkennisbúningum!) fyrir
dansinum. Þórður Pálmason hafði orð
fyrir Borgnesingum og færðu þeir skól-
anum góða bókagjöf.
að árið 1955 jókst heildarsala Sambands-
ins um hvorki meira né minna en 167
milljónir króna og var aukningin lang-
mest í véladeild. Tölur eru enn ekki til
um söluaukningu kaupfélaganna, en
hún hlýtur einnig að vera mikil.
HLYNUR
MARZ — 1956
Hlynur er gefinn út af Sambandi ísi. suinvinnufélagn,
Starfsmannafélagi SIS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri
er Orlygur Hálfdanarson. en auk hans í ritnefnd Guðrún
I'orkelsdóttú- og Gunnar Sveinsson, Keflavík. Uitstjórn og
afgreiðsla hjá fræðsludeild SIS, Sambandshúsinu, Reykja
vík. Verð: 85 kr. árg., 8 kr. hefti. Kemur út mánaðarlega