Hlynur - 15.05.1956, Síða 13
Metsaia í Gefjunargarni
hjá K.Á. Selfossi
Það er margt, sem hægt er að gera með dálítilli
hugvitssemi til að auka sölu í verzlunum, og þarf það
ekki að kosta miklar breytingar eða fé. — Lítið
til dæmis á myndina til hægri. Hún
var tekin í vefnaðarvörubúð KA á
Selfossi og sýnir, hvernig þeim Ar-
nesingum datt í hug að selja Gefjun-
argarn. Þeir notuðu grindur, sem til
eru í mörgum búðum og hafa raunar
fengizt hér á landi. Garninu er raðað
í grindurnar þannig að sést á end-
ann á hespunum og allir litirnir koma
í ljós. Síðan er grindin sett út á gólf,
þar sem konurnar komast varla hjá að
ganga fram hjá henni, og þær geta
skoðað garnið eftir vild og tekið með
sér að búðarborðinu það, sem þær
vilja kaupa. Þetta er í raun réttri ör-
lítil „garn-kjcrbúð“ inni í aðalverzl-
uninni, og árangurinn liefir verið með
ágætum. Salan í garninu hefir stór-
aukizt og’ er svo mikil, að sölumenn
iðnaðardeildar trúa varla pöntunun-
um.
Margar slíkar hugmyndir geta komið
að ótrúlegu gagni og lífga upp búðina.
Notið hugmyndaflugið, sýnið vörurnar
— og seljið þær.
Ruth Christensen, SÍS Austurstrr. 4/2
Sigurbjörn Egilsson, Sendladeild 7/2
Ólöf Vernharðsd., Kirkjusandur h.f. 17/2
Run. R. Sig.son, Innnfl.d. 42, Lager 18/2
Ólafur E. Gunnarsson, Sendladeild 20/2
Sigurþór Jakobsson, Sendladeild 20/2
Stefán G. Ásbjörnsson, Skipadeild 23/2
Dýrm. Ólafsson, Samv.tr. 29/2
Sighvatur Sveinsson, Sendladeild 2/3
Þórey Kjerúlf, Snorralaug 3/3
Sveinn Sigmundsson, Afurðasala 15/3
Dóra Bernh.d., Innfl.d. 43 17/3
Aunio H. Vilhelm, Fræðsludeild 31/3
Guðm. E. Erlendsson, Endursk. 31/3
ísbjörg ísleifsdóttir, SfS Austurstr. 31/3
Jóna Guðmundsdóttir, Samv.sparisj. 31/3
Karitas Melstað, Kjöt & Grænm. 31/3
Margrét Pétursd., Upplýsingar 31/3
Sigurður Þorgeirss., Sendladeild 31/3
Tryggvi Einarsson, Fjármálad. 31/3
Sextugur (Frh. af 2. síðu)
auk þess sem hann beitti sér fyrir
ýmsum hagsmunamálum fólksins í
þeim héruðum, þar sem hann hefir
starfað. Er hann maður he.ll en fastur
fyrir, vinsæll og vel látinn. Hann var
kjörinn annar þingmaður Norðmýlinga
1946 og hefir gegnt mikilvægum störl'-
um á Alþingi, sérstaklega í fjárveit-
inganefnd, æ síðan.
Góður maður, sem skrifaði um
Halldór sextugan, benti Norðmýling-
um á það, að þeir gætu gcfið Hall-
dóri ágæta afmælisgjöf með því að
gefa honum atkvæði sín í kosningun-
um í vor, og er vonandi, að þeir þiggi
svo holla og góða ráðleggingu.