Hlynur - 15.06.1956, Page 2
LÍFEYRISSJÓÐUR SÍS
Vilhjálmur Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Lífeyrissjóður SÍS var stofnaður í
ársbyrjun 1939 með 100.000.00 króna
framlagi frá Sambandinu. Hlutverk
verk sjóðsins er að trvegja sjóðfélögum,
ekkjum þeirra og börnum lífeyri og ör-
orkustyrk. Sjóðfélagar eru allir fast-
ráðnir starfsmenn Sambandsins og fyr-
irtækja þess, en auk þess geta allir fast-
ráðnir starfsmenn Sambandsfélaga orð-
ið sjóðfélagar. Hafa starfsmenn Kaupfé-
lags Arnesinga og Kaupfélags Hafnfirð-
inga gengið í sjóð-
inn og kunnugt er
um allmörg kaup-
félög, sem hafið
hafa undirbúning
að því að starfs-
menn þeirra gerist
aðilar að sjóðn-
um. A s.l. ári var
tekið upp í samn-
inga Verzlunar-
mannafél. Reykja-
víkur við atvinnu-
rekndur ákvæði
um að atvinnurekendur skyldu tryggja
verzlunar- og skrifstofufólki hliðstæð
lífeyrisréttindi og Lífeyrissjóður SÍS
veitir. Fór hér sem oftar að samvinnu-
íelögin höfðu forgöngu um framfaramál
og kaupsvslumenn urðu síðar að feta í
slóðina. I þessu sambandi er rétt að
geta þess að Kaupfélag Eyfirðinga hafði
stofnað lífeyrissjóð fyrir starfsmenn
sína á undan Sambandinu.
Samvinnufélög hljóta ætíð að telja
það skyldu sína að auka öryggi starfs-
manna sinna svo sem kostur er. Trygg-
ing fyrir lífeyri er starfskraftar þrjóta
og barna- og ekkjulífeyrir, ef fyrirvinna
fellur frá, er svo stórt öryggisatriði
hverjum einstaklingi, að ekki má leng-
ur dragast að hverjum einasta starfs-
manni samvinnufélaga verði tryggð slík
réttindi. Þessvegna verða öll kaupjélög
að gera gangskör að því að þessu tak-
inarki verði náð þegar í stað.
Tillögum til Lífeyrissjóðs SÍS er
þannig háttað, að starfsmenn greiða 4%
af launum sínum og Sambandið eða
Sambandsfélag 6%. Ef starfsmaður
hættir störfum fær hann endurgreidd
iðgjöld þau, er hann hefir greitt til
sjóðsins^ með innlánsvöxtum Lands-
banka Islands eins og þeir hafa verið á
hverjum tíma.
Rétt til ellilífeyris öðlast sjóðfélagi er
hann hefir náð 67 ára aldri. Upphæð
lífeyris er hundraðshluti af meðallaun-
um hlutaðeigandi starfsmanns síðustu
10 starfsár hans og hækkar úr 12,5%
eftir 10 ára starfstíma uppí 60% eftir
30 ára starfstíma. Hliðstæðar reglur
gilda um örorkulífeyri.
Upphæð lífeyris eftirlifandi maka fer
eftir starfstíma hins látna og meðalárs-
launum hans síðustu 10 starfsár hans.
Ef starfstíminn er 10 ár, er hinn ár-
legi lífeyrir 20% af meðalárslaununum,
en hækkar síðan fyrir hvert starfsár
um 1% af meðalárslaununum, unz há-
markinu 40% af meðalárslaununum er
náð eftir 30 ára starfstíma.
Ef eftirlifandi maki gengur í lijóna-
band að nýju fellur réttur til lífeyris
niður.
Börn eða kjörbörn, sem sjóðfélagi
lætur eftir sig, er hann andast, og yngri
eru en 16 ára, skulu fá árlegan lífeyri
úr sjóðnum þar til er þau eru fullra 16
ára að aldri, enda hafi hinn látni séð
um framfærslu þeirra að nokkru eða
öllu leyti. Sama gildir um börn eða
kjörbcrn, er sá maður lætur eftir sig,
er naut elli- eða örorkulífeyris úr sjóðn-
um, er liann andaðist.
Ef barnið á foreldri eða kjörforeldri
á lífi, er sér um framfærslu þess, er líf-
eyrir þess 25% hærri en meðalmeðlag
það, er félagsmálaráðherra hefir ákveð-
ið með barni á sama aldri í Reykjavík
á þeim tíma, sem lífeyririnn á að
Frh. á bls. 15
Vilhjálmur
2