Hlynur - 15.06.1956, Blaðsíða 7
HEILLASÍÐAN
Fimmtugur
Guðjón Sigurjónsson, skipverji á m/s
Hvassafelli, varð fimmtugur 7. febrúar
sl. Hann er fæddur að Argerði í Svarf-
aðardal, en ólst upp á Böggvistöðum
í sömu sveit. Fór
Guðjón ungur til
sjós og hefir stund-
að hann síðan,
fyrst á bátum frá
Hrísey og Dalvík,
en síðar á stærri
skipum. 1946 réð-
ist Guðjón á m/s
Hvassafell og hef-
ir verið þar fram
til þessa, ýmist
sem háseti eða
bátsmaður. — Skipið var statt í Amst-
erdam á afmælisdegi Guðjóns. Héldu
skipsfélagar hans honum samsæti um
borð og færðu honum að gjöf forkunn-
arfagran bikar.
Fimmtugur
I5ann 2. maí varð Ragar Olafsson,
formaður KRON, fimmtugur. Hann er
fæddur að Lindarbæ í Rangárvallasýslu.
varð stúdent 1926 og lögfr. 1931. Ragn-
ar gekk í þjónustu
SÍS 1928 og var
endurskoðandi
þess í nokkur ár.
Hann varð eftir-
litsmaður kaupfé-
laganna 1931 og
síðar lögfræði-
ráðunautur Sam-
bandsins, vann m.
a. að undirbún-
jngi og stofnun
Lífeyrissjóðs SÍS.
Hann lét af störfum hjá SÍS 1943,
en hefir alla tíð síðan haft mikil af-
skipti af samvinnumálum og var kos-
inn formaður KRON 1952.
Sextugur
Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri
útflutningsdeildar SÍS, varð sextugur
11. maí. Helgi fæddist að Núpum í
Aðaldal og ólst þar upp. Hann lauk
gagnfræðaprófi á
Akureyri 1913 og
vann þar síðan
við verzlunarstörf,
en réðist til SÍS
1919 og varð að-
stoðarmaður Jóns
Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra út-
flutningsdeildar
1922. 1924—30
var hann kaup-
félagsstjóri hjá
Kaupfélagi Borgfirðinga, en næstu þrjú
árin einn af framkvæmdastjórum Síld-
areinkasölunnar. Þá tók hann aftur til
starfa í útflutningsdeild SIS og tók
við stjórn hennar 1946.
Helgi gegnir ábyrgðarmiklum störf-
um fyrir samvinnufélögin og landsmenn
a!la. Mun það flestra dómur að hjá
Helga séu störf þessi í hinum traustustu
höndum.
Trúlofun
Nýlega opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Elín Kröver, skrifstofustúlka í inn-
flutningsdeild SIS, og Björn Helgason,
bifreiðastjóri.
Ragnar
7