Heimsmynd - 01.11.1987, Page 50
Hausttískan 87
Glæsileg - Klæðileg.
gSfjgH Vönduð efni - Vönduð vínna.
Póstsendum um allt land.
KAPCISALAN
BORGARTGNI22 AKCIREYRI
SÍMI 23509 HAFNARSTRÆTI 88
Mæg bílastæði SÍMI 96-25250
þeirra allra í Flugleiðum fari vaxandi. Sá
tími er liðinn að hugsjónin sem Loft-
leiðaævintýrið hófst á ráði ríkjum. Ég
vona hins vegar að valdabarátta og pen-
ingasjónarmið geri ekki út um þetta fyr-
irtæki.“
Hún segist ekki vera ánægð með stjórn
Flugleiða nú. „Fyrirtækinu er ekki vel
stjórnað og skipulagning á deildum er
ekki góð.“ Hún segist heldur ekki vel
liðin af stjórn Flugleiða og sem dæmi tal-
ist hún og Sigurður Helgason eldri helst
ekki við. „Ég lít á flugið sem hugsjóna-
mál, hann lítur á það sem félag sjálfum
sér til framdráttar. Pegar hótelið átti af-
mæli fékk hann viðurkenningu en Alfreð
fékk ekki einu sinni kort. Hann vill gera
sinn hlut sem mestan. Ég tek sem dæmi
að fyrir nokkrum árum var sett á fót sex
manna nefnd sem átti að sjá til þess að
saga atvinnuflugs á íslandi, Flugfélags-
ins, Loftleiða og síðar Flugleiða yrði
skráð. Nefndin kom einu sinni saman og
réði Lýð Björnsson til að skrá söguna og
ég veit ekki til þess að nokkurt framhald
hafi orðið á því.“
Hún er bitur yfir þróun mála en það
gætir samt engrar beiskju í röddinni þeg-
ar hún segir; „þeir bola mér út úr stjórn
Flugleiða við næsta tækifæri, árið 1989.“
Eignarhlutur hennar og Alfreðs í Flug-
leiðum er fimm prósent. „Hann fær sín
eftirlaun en arðurinn sem við fáum dugir
hvergi til að lifa af. Meðan Loftleiðir
voru og hétu lögðum við allt okkar spari-
fé í uppbyggingu þessa fyrirtækis.“
Af börnum þeirra sex eru tvö starfandi
hjá Hugleiðum. Yngsti sonurinn Elías er
flugþjónn og Katrín er flugfreyja. Elsti
sonurinn Haukur sem er verkfræðingur
að mennt vann um skeið hjá fyrirtækinu
en er nú kominn annað. „Hann sá enga
framavon þar og ég held að það séu ekki
góðar horfur almennt fyrir börnin okkar
hjá þessu fyrirtæki.“
Ræðir hún við Alfreð um þessi mál
þegar hún heimsækir hann daglega? Hún
horfir fram fyrir sig: „Alfreð hefur ekki
talað í tvö ár. Hann er mjög heilsulaus
og það sem mér finnst kannski verst af
öllu er að það er engin batavon.“
Hún stendur á grasflöt í fjöruborðinu í
Arnarnesinu, íklædd gráum silkibuxum.
í pottum í eldhúsinu kraumar nýtt slátur
sem hún tók daginn áður. Sjórinn er
spegilsléttur og útsýni yfir til Bessastaða.
í góðu veðri sést Snæfellsjökull. Kyrrðin
er allsráðandi, líka í svip hennar, þar
sem glittir í örlítið bros. . .
50 HEIMSMYND