Heimsmynd - 01.11.1987, Side 57

Heimsmynd - 01.11.1987, Side 57
aukning verði á útleigu myndbanda eftir því sem myrkrið færist yfir, og spennu- myndir eru vinsælastar, koma líklega í staðinn fyrir gömlu draugasögurnar. Og fólk flykkist í sóiarlampa til að ná af sér skammdegisfölvanum, mest er að gera á sólbaðsstofum í nóvember og desember. Margir hafa trú á notkun ljósa til að eyða þunglyndisáhrifum myrkursins. Ein þeirra er Hope Knútsson iðjuþjálfi, en hún hefur verið búsett hér á landi í 13 ár. Hún bjó áður í New York. „Ég hata skammdegið og myrkrið,“ segir hún. „Fólk verður drungalegra, en mér finnst íslendingar allir svolítið drungalegir.“ Hún segir þó að myrkrið hafi ekki nein vakna fyrr en um 10 leytið í mesta skammdeginu og fara til vinnu um 11. „Pað er ónáttúrulegt að vakna svona snemma og sjá aldrei til sólar. Fólk er hvort eð er hálfsofandi fram eftir morgni á vinnustöðum og ekki viðræðuhæft og alltaf í kaffi. Ég held að afköstin væru ekkert minni þó fólk kæmi seinna til vinnu, það væri bara betur vakandi við vinnuna.“ í sama streng tekur Anh-dao Tran kennari við Heyrnleysingjaskólann, en hún hefur búið hér í þrjú ár og bjó áð- ur í 10 ár í Bandaríkjunum eftir að hún yfirgaf föðurland sitt Víetnam. Henni finnst alltof snemmt að leggja af stað til vinnu fyrir klukkan átta í skammdeginu. fallegt og ég fann því ekki fyrir skamm- deginu, en þá var ég lfka ung og fannst allt stórkostlegt," segir Alísa Kjartans- son, en hún hefur búið hér á landi sam- fellt frá 1980. „En í dag þoli ég ekki til- hugsunina um myrkrið og skammdegið, og verð hálf þunglynd þegar fer að skyggja. Mér finnst íslendingar vera farnir að geta tjáð betur hvaða áhrif skammdegið hefur á þá og skammast sín minna fyrir að viðurkenna að þeir finni fyrir þunglyndisáhrifum." Uppáhaldsárs- tími Alísu er vorið, „þá lifna ég við eins og gróðurinn, mér finnst vorið yndisleg- ur árstími.“ Sofum við meira í skammdeginu en á áhrif á sig, því hún sé með fyrirbyggjandi aðgerðir gegn áhrifum þess. „Ég er með Ijósaperur sem ég hef verið að kynna hér á landi, en þær hafa áhrif á framleiðslu heilahormóna og geta því fyrirbyggt þunglyndi af völdum ljósaskorts. Venju- legar flúorljósaperur eru heilsuspill- andi.“ Perurnar sem Hope talar um eru seldar hjá Natura Casa, en litróf peranna er algjör eftirlíking af litrófi dagsbirtunn- ar- Arngrímur Baldursson sölustjóri hjá Natura Casa segir að rannsóknir hafi sýnt að þeir sem vinna undir þessum Ijósum vinni betur og séu minna frá vegna veikinda en aðrir. „Birta frá venjulegum flúorljósum. veldur því að framleiösla hefst á hormónum sem stuðla að þreytu og svefni.“ Auk þess að nota þessar ljósaperur setur Hope upp líkamsræktartæki á stofugólfinu hjá sér. „Þetta lfkist mest gönguskíðum og ég æfi mig á stofugólf- 'nu undir þessum hollustuijósum,“ segir hún. Hún er á þeirri skoðun að þeir sem húsettir eru hér á landi ættu ekki að „Og það er mjög erfitt að kenna fyrstu tímana á morgnana, bæði fyrir kennara og nemendur því fólk er ekki vaknað þó það sé komið á fætur." Eru aðrir útlendingar sem hafa flutt inn í myrkrið okkar á sömu skoðun? „Skammdegið hefur aldrei haft nein áhrif á mig,“ segir Lena Bergmann, „en ég kvíði oft fyrir að fara út, sérstaklega í vondum veðrum og slæmu skyggni." „Ég verð syfjaður í skammdeginu en ekki þunglyndur," segir Ricardo Villa- lobos, tækniteiknari frá Perú. „Ég hef heyrt að sumir verði þunglyndir í skammdeginu, en ég finn ekki fyrir því.“ Hann var búsettur í Bandaríkjunum í tvö ár áður en hann flutti hingað og segir að það hafi verið kaldara þar en hér. „Það eina sem ég hef út á veðrið að setja hér á landi er að það mætti vera heitara á sumrin, ég ferðast mikið um hálendið vegna vinnu minnar og þarf yfirleitt að hafa með mér þykk hlífðarföt." „Ég kom hingað til lands fyrst 15. febrúar 1968. Þá var allt hér snjóhvítt og sumrin? Ekki segir Helgi Kristbjarnar- son, geðlæknir, en hann gerði rannsókn á svefnvenjum landsmanna árin 1982 og 1983. „Meðalsvefntími íslendinga er sjö og hálfur tími og það kom enginn munur í ljós eftir árstíðum, fólk svaf jafnlengi hvort sem um var að ræða vetur eða sumar, en það segir ekkert um svefn- þörfina, því eflaust eru það utanaðkom- andi þættir sem hafa áhrif á svefntímann, svo sem vinna, og fólk horfir jafnt á sjónvarp vetur sem sumar.“ Síðastliðið vor var gerð önnur könnun á svefnvenj- um landsmanna, þar var athugað hvort Stöð 2 og myndbandanotkun hefði þau áhrif að fólk færi seinna að sofa en áður, en niðurstöður liggja enn ekki fyrir. „En þó fólk sofi jafnlengi sumar og vetur telja margir sig sofa óværar á vet- urna. Ég man eftir því er ég var héraðs- læknir á Seyðisfirði, að menn kvörtuðu undan svefntruflunum þann tíma sem sólin kom ekki upp, og í Norður-Noregi er talað um miðsvetrarsvefnleysi af þess- um sökum.“ Eini munurinn sem kom í HEIMSMYND 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.