Heimsmynd - 01.11.1987, Síða 59

Heimsmynd - 01.11.1987, Síða 59
ljós í könnun Helga var á svefntíma karla og kvenna. Tveir þriðju hlutar kvenna sváfu jafnlengi og karlar en þriðjungur kvennanna svaf lengur fram eftir á morgnana, og aðspurður kvað Helgi ekki ólíklegt að þetta væri sá hóp- ur kvenna sem væri heimavinnandi með ung börn sem þær vöknuðu til á næt- urna. „Svefnleysi af geðrænum toga er aðallega tvenriskonar, svefnleysi af völd- um streitu eða spennu, svokölluð síð- vaka, en þá á fólk erfitt með að sofna á kvöldin, og þunglyndissvefnleysi, svo- nefnd árvaka, en þá vakna menn eld- snemma á morgnana og geta ekki sofnað aftur.“ ölvunar eða afbrota. En hins vegar virð- ist nýtt og fullt tungl hafa rík áhrif á suma og þykjast menn merkja þær breyt- ingar á hegðunarmunstrinu, þó mér sé ekki kunnugt um að til sé nein vísindaleg úttekt á því.“ Alls gistu 6710 manns fangageymslur lögreglunnar á síðastliðnu ári, 6261 karl og 408 konur, flestir karlanna gistu fangageymslurnar í nóvembermánuði, eða 605, en dreifingin er nokkuð jöfn alla mánuði ársins, fæstir gista fanga- geymslurnar í janúar, eða 459, en næst- flestir eru gestirnir í júní, 595. Konurnar eru flestar í ágúst og september, 43, en fæstar í desember, 24 talsins. Erfitt er menn eða komið í veg fyrir afbrot, þó við getum hvatt fólk til að fara gætilega og forðast óþarfa áhættu." Umferðarslys og óhöpp eiga sér stað allan ársins hring, en aukast þó eftir því sem dagur styttist. Flestir árekstrar og slys áttu sér stað í desember á síðastliðnu ári að sögn Gylfa Jónssonar, lögreglu- fulltrúa í slysarannsóknardeild lög- reglunnar, 333 árekstrar og slys voru skráð þann mánuð, 276 í nóvember og 307 í október, 251 í janúar. Sumarmán- uðina eru skráðir árekstrar og slys færri, að meðaltali um 200 á mánuði frá aprfi fram í ágúst að báðum mánuðum með- töldum. gftjndir i u kertaljósanna Verður fólk heilsulausara í skamm- deginu, leitar það meira til lækna? Svo segir Örn Bjarnason læknir hjá Hollustu- vernd ríkisins. „Fólk leitar meira til læknis í skammdeginu, og flestir leita til lækna í febrúar.“ Guðjón Magnússon, aðstoðarland- læknir, segir algengast að flensur stingi sér niður hér í svartasta skammdeginu, „algengasti tími flensufaraldra bæði hér °g í nágrannalöndunum er frá því í des- ember og fram í febrúar." Lúðvík Ólafsson, læknir í Heilsu- gæslustöð Breiðholts, hefur haldið ná- kvæma skrá um sjúklinga sína frá því í nóvember 1985 og segir að mest sé leitað til lækna fyrstu mánuði ársins. „Flestir koma í janúar, febrúar og mars.“ Aukast myrkraverk í skammdeginu? Er einhver munur á fjölda þeirra er gista fangageymslumar? Ekki segir Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn. „Ég treysti mér ekki til að leggja mat á hvort einn mánuður fremur en annar er líklegri til að menn gisti fangageymslurnar vegna eins og Bjarki segir að sjá einhverja fylgni milli ára, þannig gistu flestir fangageymslurnar í ágústmánuði árið 1985, maímánuður var vinsælastur 1984, og júlímánuður 1983. Hvað með afbrot? Að sögn Helga Daníelssonar, yfirlögregluþjóns hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, aukast af- brot á haustin og veturna. „Það er svo margt sem breytist í okkar þjóðfélagi á haustin þegar fer að skyggja. Skemmt- analífið tekur á sig aðra mynd, fleiri nauðganir eru til dæmis kærðar að lokn- um skemmtunum en á sumrin, og ungt fólk sem hefur verið upptekið í vinnu sest á skólabekk og hefur minni peninga milli handanna. „Ég stel ekki á sumrin því þá á ég pening,“ hefur margur ungl- ingurinn sagt við mig. Það er meira um þjófnaði vetrarmánuðina, búðahnupl er langalgengast í kringum jólin. En svo er guði fyrir að þakka að við búum í tiltölu- lega góðri borg og friðsamri, en það fylg- ir alltaf ákveðin áhætta því að vera til, við getum aldrei upprætt alla afbrota- Hvað getum við gert til að láta okkur líða sem best í skammdeginu? Hope leggur til að við notum sérstakar Ijósa- perur og sofum lengur út á morgnana. í sama streng taka hinir útlendingarnir sem við ræddum við. Margir undirbúa jólin, sitja yfir kertaljósum og reyna að hafa það notalegt í myrkrinu. Högni Óskarsson segir að við ættum að hlæja meira. „Það hafa verið settar upp hlát- urstofur á nokkrum stöðum úti í heimi, þar sem menn koma með stresstöskurn- ar á morgnana, setjast inn í myrkvaðan sal og svo er smitandi hlátur settur á fón- inn. Fólkið í salnum tekur undir og hlær hjartanlega og segja sérfróðir menn að þetta sé mjög góð byrjun á vinnudegin- um. Ég held að við íslendingar ættum að hlæja meira, það myndi hjálpa okkur mikið. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eru léttir í lund, skapgóðir og koma auga á broslegar hliðar tilverunnar eru mun færari en aðrir um að leysa vandamál, og hafa auk þess meiri sköpunargáfu en aðrir.“ HEIMSMYND 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.