Heimsmynd - 01.11.1987, Page 80
I
SYKURMOLARNIR
SLÁ í GEGN
allir vita þá er draumur ís-
lenskra dægurtónlistarmanna að slá í
gegn, að ná athygli hins enskumælandi
tónlistarheims svo lög þeirra hljómi í
milljónum útvarpa, að stórir samningar
liggi tilbúnir til undirritunar og hljóm-
plötuútgefendur beggja vegna Atlants-
hafsins keppi um útgáfuréttinn, að gagn-
rýnendur beri þá á höndum sér, að lit-
myndir birtist á forsíðum tónlistartíma-
ritanna svo sauðsvartur almúginn pískri
og snúi sér við á götum í London, höfuð-
borg dægurtónlistar í heiminum.
í næstum tuttugu og fimm ár hafa ís-
lenskar hljómsveitir farið í leiðangra út í
heim til að freista þess að láta drauminn
rætast.
Ég vakna á stofugólfi í tveggja her-
bergja íbúð í kjallara, í uppahverfi í réttri
fjarlægð frá Portobello-markaðinum, í
London. Pottaglamur berst úr eldhús-
inu, Einar Örn Benediktsson söngvari
og trompetleikari er að elda hafragraut.
Við hliðina á mér sefur Bragi Ólafsson
bassaleikari, Sigtryggur Baldursson
trotpmari lokar á eftir sér baðherbergis-
dyrunpm. Björk Guðmundsdóttir söng-
a leggúr á borð og Þór Eldon gítar-
ari fer I fætur í svefnherberginu. Þau
eru hljómsveitin Sykurmolarnir, komin
til London til að fylgja eftir vinsældum
smáskífunnar Birthday. Eftir að hún var
valin smáskífa vikunnar í einu virtasta og
víðlesnasta tónlistartímariti Bretlands,
Melody Maker, hefur áhugi fjölmiðla á
þessu undarlega fallega lagi og óþekktu
hljómsveitinni frá íslandi verið mikill.
Og hánn fer vaxandi. Platan er í öðru
sæti Óháða vinsældalistans og er farin að
fikra sig' upp listann yfir
seldu smáskífur í Br
eins og þeir 1