Heimsmynd - 01.11.1987, Síða 98

Heimsmynd - 01.11.1987, Síða 98
framfarir mannkynsins“ eins og Kristinn E. Andrésson kemst að orði. Hér á landi sem annars staðar var bókinni tekið opnum örmum. Sigurður Grímsson bókmenntagagnrýnandi álítur söguna með mestu afreksverkum í bók- menntum nítjándu aldar og segir svo: „Bókin er uppgjör Hugo við samtíð sína, þróttmikil og vægðarlaus ádeila. Hann talar af lipurð og eldmóði máli hinna hrjáðu og undirokuðu, lýsir átakanlega þeirri baráttu sem háð er milli einstakl- inga og þjóðfélags og skírskotar með brennandi eggjunarorðum til mannúðar og réttlætiskenndar gjörvalls mannkyns- ins.“ Rithöfundurinn Guðmundur G. Hagalín kemst svo að orði um Vesaling- ana: „Par fer saman hinn fullkomnasta frásagnarsnilld, hinar ógleymanlegustu persónulýsingar og hið auðugasta ímynd- unarafl sem hægt er að hugsa sér. Persónur sögunnar og þráður Það er að sjálfsögðu mikið vandaverk og gott ef ekki ofverk að gera grein fyrir því í fáeinum línum um hvað þessi tvö þúsund blaðsíðna skáldsaga Hugos fjall- ar, jafn víðfeðm og hún er. Hún nær yfir margra ára tímabil og lýsir aragrúa per- sóna og staða jafnframt því að segja frá umfangsmiklum þjóðfélagslegum hrær- ingum sem vefast inn í flókin einkamál sögupersónanna. Hér eru á ferðinni mik- il örlög, sterkar tilfinningar og stórar grundvallarspurningar um lífið, um rétt- læti, samviskuna og hið góða og illa. Sagan sjálf er í rauninni fimm bækur, sem flestar bera nöfn höfuðpersóna verksins. Þannig heitir fyrsta bókin Fant- ine, önnur Cosette, sú þriðja Maríus, fjórða Rue Plumet og St. Denis og sú síð- asta ber nafn aðalsöguhetjunnar; Jean Valjean. í upphafi sögunnar er Jean Valjean sleppt lausum til reynslu eftir 19 ára fangavist og þrælavinnu. Hann kemst að raun um að guli reisupassinn, sem hann þarf að bera á sér og lögum samkvæmt sýna til staðfestingar sjálfum sér, dæmir hann til hlutskiptis utangarðsmannsins. Eini maðurinn sem sýnir honum góð- semi er hinn heilagi biskup í Digne, en Valjean, sem er orðinn forhertur og bit- ur eftir áralanga þrælkun, launar honum góðvildina með því að stela frá honum silfri. Hann er handtekinn og færður af lögreglunni til biskupsins aftur og bregð- ur heldur betur í brún, þegar biskupinn segir lögreglunni ósatt til þess að bjarga honum og gefur honum auk þess tvo dýrmæta kertastjaka. Þessi atburður hefur mikil áhrif á Jean Valjean og hann ákveður að byrja nýtt líf, hann riftir skilorðsdóminum, leggur land undir fót og tekur upp nafnið Monsieur Madeleine. Og þrátt fyrir að hinn heiftrækni löggæslumaður Javert sé stöðugt á hælum hans tekst honum að koma undir sig fótunum í borginni Montreuil-sur-Mer, þar sem hann verður verksmiðjueigandi og síðarmeir borgar- stjóri. í verksmiðju hans vinnur kona ein að nafni Fantine. Hún á óskilgetið stúlkubarn að nafni Cosette, sem hún hefur komið fyrir hjá heldur vafasömu fólki í Montfermeil, Thenardier-hyskinu (kráareigendur). Fantine er fátæk kona og sjúk og á dánarbeðinu tekur hún það loforð af Madeleine (Jean Valjean) að hann bjargi dóttur hennar. Á sama tíma hefur maður nokkur sem lítur alveg eins út og Valjean verið handtekinn í hans stað. Eftir mikla innri baráttu segir Jean Valjean til sín og bjargar þar með mann- inum. Síðan bjargar hann Cosette úr klóm Thenardier-hjónanna og leggur leið sína til Parísar þar sem hann. fer huldu höfði. I hvert skipti sem hann heldur að Javert sé kominn á spor hans skiptir hann um dvalarstað. Svo líða níu ár. I París eru óróatímar; sundrung, upp- lausn og átök. Stúdentar og verkamenn fullir hugsjóna og eldmóði mynda félög og hittast á kaffihúsum til að ræða ástandið og væntanlega byltingu. Við kynnumst einum slíkum hópi, sem kenn- ir sig við ABC kaffihúsið, þeim Enjolras, Maríusi, Courfeyrac, Combeferre o.fl. Þegar Lamarque hershöfðingi, eini mað- urinn innan stjórnarinnar, sem styður fá- tæklingana, deyr, brýst uppreisnin út. Stúdentarnir marséra út á stræti Parísar og hvetja fólk til að ganga til liðs við byltinguna, reisa götuvígi og undirbúa sig fyrir átök við hermenn konungsins. Og hér verður söguþráðurinn ekki rak- inn frekar. Við fylgjumst með byltingar- tilraun stúdentanna, uppgjöri þeira Jean Valjean og Javert og ástarsambandi þeirra Maríusar og Cosette, þar sem rómantík og pólitík sitja í fyrirrúmi, sam- fléttuð á listilegan hátt. Saga verður leikrit, verður kvikmynd Eftir skáldsögunni Les Misérables hafa líklega verið gerðar fleiri leikgerðir og kvikmyndir en eftir nokkurri annarri sögu. Það hafa verið gerðar ótal leik- gerðir, stuttar sem langar, fyrir hljóð- varp, leiksvið og sjónvarp, meðal annars framhaldsmyndaflokkar. Fjöldi kvik- mynda eftir sögunni er á bilinu 20 (sem er hin opinbera tala) og 51 (sem er hin óopinbera tala) og er það alveg áreiðan- lega einsdæmi. Sú fyrsta var svart/hvít, þögul, gerð í Bandaríkjunum árið 1909, en Bandaríkjamenn og Frakkar hafa ver- ið iðnastir við að kvikmynda söguna. Meðal annarra sem hafa spreytt sig á að færa söguna yfir á hvíta tjaldið má nefna Englendinga, ítala og Japani. Hér á íslandi hafa menn líka fengist við að dramatísera Les Misérables. Árið 1953 sýndi Leikfélag Reykjavíkur Vesa- lingana í leikgerð og leikstjórn hins kunna leikhúsmanns Gunnars R. Han- sen og í útvarpinu var leikin sérstök leik- gerð eftir hann í 4 þáttum 1965. Og nú í vetur ætlar Þjóðleikhúsið að taka til sýn- ingar nýjustu útfærsluna á skáldsögunni: söngleikinn Les Misérables, þar sem all- ur textinn er sunginn eins og í óperum. Saga verður söngleikur Söngleikurinn Les Misérables er upp- runninn í Frakklandi eins og vera ber. Höfundar hans eru Alain Boublil, sem samdi handrit og söngtexta og Claude- Michel Schönberg, sem samdi tónlistina. Söngleikurinn var frumsýndur í íþrótta- höllinni í París fyrir sjö árum og naut óhemju mikilla vinsælda. Tónlistin hlaut margar viðurkenningar, en í skilgrein- ingunni áttu menn í erfiðleikum, því Úr uppfærslu Royal Shakespeare Company á söngleiknum Les Mlsérables 98 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.