Heimsmynd - 01.11.1987, Page 133

Heimsmynd - 01.11.1987, Page 133
borgaralegt bóhem,“ segir Nína. „Hann var mjög hrifinn af því að ég byggi í hálf- gerðri sveit,“ segir Ólafur, „en sjálfur hefði hann aldrei getað það, átti erfitt með alla praktíska hluti." Móðir hans segir að hann hafi aldrei getað rekið nagla í vegg. „Það var aldrei hægt að nota hann í venjulega vinnu.“ Hún segir þau foreldrana hafa deilt heilmikið um þetta, faðir hans Alfreð var verkstjóri hjá Sameinaða gufuskipafélaginu, og þegar Flóki var 16 ára gamall fannst hon- um kominn tími til að drengurinn færi að vinna við eitthvað eins og aðrir drengir. Hann var beðinn um að passa bjórstæðu í pakkhúsinu. Flóki lagði sig ofan á stæð- una og er faðir hans kom aftur var búið að taka nokkra kassa. Faðir hans spurði hvort hann hefði ekki orðið var við þetta? „Jú,“ sagði Flóki. — Og hvers vegna léstu okkur ekki vita? „Æ,“ sagði Flóki sem þekkti þá sem tóku kassana, „það er svo illa liðið.“ „Hann var ofsalega hrifinn af Knúti Hamsun og taldi hann mesta rithöfund allra tíma,“ segir Ólafur, „það segir tals- vert um hann.“ Flóka dreymdi mikið en þeir draumar voru að sögn vina hans í ætt við mynd- heiminn og hefur einn þeirra orðið Degi Sigurðarsyni að yrkisefni. Flóki var vinur vina sinna og hringdi gjarnan í þá á hverjum degi. „Hann var iðulega búinn að taka fram einhverjar bækur sem hann vissi að ég hefði áhuga á, áður en ég kom til hans, og hann reyndist mér vel á erfiðu tímabili er ég var hvað blankastur, þá tók ég eftir því að í hvert sinn er ég kom frá Flóka var 500 kall í vasanum mínum. Er ég spurði hann hvort hann vissi eitthvað um þetta hristi hann bara höfuðið og sór allt af sér,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson. Allir sakna hans sárt, og konan hans Ingi- björg, sem búið hefur með Flóka síðast- liðin 15 ár þó eðlilega langmest, svo mik- ið að hún treysti sér ekki til að ræða um hann við HEIMSMYND. „Ég tek oft upp símtólið og ætla að hringja í Flóka, en man þá að hann er farinn,“ segir Jó- hann Hjálmarsson. „Ég bíð oft eftir því að Flóki hringi," segir móðir hans, „ég hef misst marga, manninn minn, föður og systkini en enginn missir hefur verið jafn erfiður og að missa Flóka.“ Allir sakna símtalanna við Flóka og þeirrar uppörvunar sem hann veitti öðrum. „Hann hvatti mig til að skrifa fyrstu skáldsöguna mína,“ segir Nína sem til- einkar Flóka bókina Móðir, kona, meyja. „Hann var besti vinur minn,“ segir Ólafur Gunnarsson, „hann var mér eins og bróðir og faðir, og gaf mér styrk til að halda áfram við það sem ég er að gera.“ Ólafur segir hann hafa haft óvið- jafnanlega frásagnarhæfileika. „Hann hefði vel getað orðið rithöfundur, hann náði slíkum hæðum í frásögninni ef vel lá á honum að ég hef aldrei heyrt annað eins, enda var hann mjög áhugasamur um bókmenntir og vissi nánast allt um þær. Róki var listamaður í húð og hár.“ Og Hilmar Örn segir: „Flóki sýndi fram á að það er hægt að vera sérvitringur hér á landi og lifa því lífi sem menn vilja lifa. En það er auðvelt að vera misskilinn á íslandi, því íslendingar eru pakk sem kunna ekki að meta menn nema þá sem eru erlendis eða dauðir.“ ABAL STAÐURINN! HEIMSMYND 133
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.