Heimsmynd - 01.11.1987, Page 136

Heimsmynd - 01.11.1987, Page 136
þarf að útrýma þjóðlegum hefðum og þjóðtungum, öðrum en rússnesku. Krím- tatarar voru fluttir í heild til Asíu. Þeir fara fram á að mega setjast að á óbyggð- um svæðum á Krímskaga og að fá að byggja yfir sig. Enn hafa þeir ekki fengið leyfi til þess. Eitt höfuðverkefnið er að útrýma allri trú. Pað er nefnilega árátta trúaðra manna að mynda samfélög. Slíkt er ógn- un við Flokkinn. Rússneska rétttrúnað- arkirkjan á að heita að vera til. En allar kirkjubyggingar eru í eigu ríkisins. Starf- semi kirkjunnar er stjórnað af sovézkri nefnd. Yfirvöld kirkjunnar fá enga rönd við reist, þegar ríkið lætur brjóta niður kirkjur, breyta þeim í vörugeymsluhús eða verzlanir, eða til dæmis í safn til áróðurs fyrir guðleysi, en til þeirra nota er nú kirkja dómínikana í Lwow. Prestar mega ekki játa trú sína utan kirkju- veggja, heimsækja sjúka eða kenna börnum kverið. Sá sem lýsir því yfir op- inberlega, að hann tilheyri einhverjum söfnuði, afsalar sér þar með öllum frama. (Ég hef skorað á íslenzka lúthers- trúarmenn að lýsa samúð með ofsóttum trúarbræðrum sínum austantjalds. Ég hef ekkert svar fengið. Hversvegna?) Menntamenn voru reknir í útlegð eftir byltinguna, eða þá að þeim var safnað í gúlagið eða drepnir. Þau skáld sem voru eftir og reyndu að klóra í bakkann fengu annað hvort rækilega á baukinn - (Pa- sternak, Akhmatova) eða hurfu í gúlagið (Mandelstam). Á síðustu árum hafa menntamenn og listamenn flúið Sovét- ríkin í stríðum straumi. Andréj Sakharof lét í ljós ósk um að í Sovétríkjunum yrði innanlands friður, mannréttindi og að Sovétborgarar mættu fara heiman og heim. Hann varð að gjalda fyrir það með sjö ára útlegð. Breyting En nú er þetta allt að breytast, segja menn. Sakharof fær að búa í íbúð sinni í Moskvu. Það er verið að umbylta þjóð- félaginu. „Ný hugsun“ ryðst fram. „Við höfum ekki orðið vör við það hér,“ sagði við mig maður í Síberíulest- inni í sumar, þegar ég spurði hann um umbyggingu og glasnost. Hann hélt helzt að það ætti nú að fara að framleiða vör- ur, sem stæðust gæðakröfur og aðrir að það ætti að draga úr óráðsíu. í Ísvéstía lýsti einn greinarhöfundur ótta sínum við að aukið yrði á óöryggi og dregið úr festu í stjórnarháttum. Sá ótti er ekki ástæðulaus. Flokkurinn hefur náðarsamlegast leyft að verkamenn megi gagnrýna verkstjóra og jafnvel deildarstjóra á vinnustað. Löngu innbyrgt hatur brýzt út og líf heiðarlegra manna jafnt sem óheiðar- legra er lagt í rúst. Þegar slík útrás er leyfð, hvar stöðvast hún þá? Lesa má í blöðum gagnrýni á flokksbrodda, sem hafa komið sér vel fyrir í kerfinu og hag- nýtt sér það, að enginn hefur hingað til vogað sér að kjafta frá gjörðum valda- manna. Þeir sem verða fyrir slíkri gagn- rýni hugsa þeim þegjandi þörfina, sem ofar standa í stiganum og leyfa þetta. Hversu hátt upp stigann má fár þetta fara? Ef ekki er skrúfað fyrir í tíma gæti svo farið að grípa yrði til óyndis- og harðstjórnarúrræða. Núverandi leiðtogi hefur ekki hugsað sér að breyta kerfinu heldur að sýna fram á, að það sé starf- hæft. Allt situr við sama í landbúnaði og iðnaði. Hann mun komast að raun um það, að með einhverju óljósu tali um „lýðræði“ verður kerfi Stalíns ekki rek- ið. Ný lög um smávegis einkaframtak eru ekki ný bóla. Það var miklu víðtæk- ara á þriðja áratugnum. Þessi nýju lög ná yfir agnarlítinn hluta af neðanjarðarkerf- inu og gefa ríkinu færi á að skattleggja hann. Mi tam vsé bilí Eitt sinn fór ég með lest frá Varsjá til Moskvu. Á lítilli stöð austan við Brest kom vinnulúinn maður inn í klefann. Hann hafði litla krossviðartösku og har- móníkku meðferðis. Hann tók vodka- flösku og rúgbrauð upp úr lúðum lérefts- poka. Hann tæmdi flöskuna í tvö barma- full vatnsglös og skellti brauðsneið yfir. Hann rétti mér annað glasið og sagði: „Na tébé,“ - „Þetta er handa þér.“ Síð- an spilaði hann á harmóníkkuna o£ söng angurvær pólsk og rússnesk lög. A end- anum féll hann saman og grét. Hann var á leið í útlegð í Síberíu. Á lestarstöðinni í Moskvu tókst ekki betur til en svo, að taskan hans skall á pallinn. í henni hafði verið krukka með pólítúr, og trésmíða- verkfæri. Nú lá aleiga mannsins þarna í hrúgu, löðrandi í lakkinu. Lestarþjónn- inn fór að þurrka af hamri og sporjárn- um með nærskyrtu sem hann fann í hrúgunni. Eigandinn bölvaði fyrst hressi- lega, en seig svo snöktandi niður á pall- inn. Lestarþjónninn togaði hann á fætur og sagði: „Harkaðu af þér, vinur minn. Mi tam vsé bilí - við vorum þar öll.“ FANN LITLA GULA HÆNAN FR/E framhald af bls. 43 sama áframhaldi verði hún með stærri bita af kökunni, sem er til skiptanna um jólin, en ríkissjónvarpið. Það er ekki fjarri lagi að áætla að tekj- ur Stöðvar 2 á þessu ári verði rúmar 450 milljónir króna. Það sem hinsvegar gerir þetta dæmi flóknara er sú staðreynd að Stöð 2 hefur iðulega skipt á auglýsingum og þjónustu. Þannig greiða mörg fyrir- tæki auglýsingar á Stöð 2 með vörum eða þjónustu. Hér eru nokkur dæmi: 1. Plastos og Harðviðarval eiga húsnæðið sem Stöð 2 leigir á Krókhálsi. Húsaleig- an er að hluta til greidd í auglýsingum á Stöð 2. 2. Símkerfið á Stöð 2 er keypt í Radíó- búðinni. Stöð 2 greiddi símkerfið með auglýsingatíma. 3. Innréttingarnar á Stöð 2 eru frá Mát h.f. Þær voru greiddar að hluta til með auglýsingum. Viðskiptahættir af þessu tagi hafa tíðkast á Stöð 2 frá upphafi, en Ólafur H. Jónsson segir að þeir séu hættir þessu. „Það eru engar skiptiauglýsingar hjá okkur núna,“ fullyrðir hann. Útgjaldaliðir Stöðvar 2 eru margir. Fastráðnir starfsmenn fyrirtækisins eru 110 auk þess sem tugir manna starfa hjá fyrirtækinu í lausamennsku í hverjum mánuði. „Það má áætla að heildarkostnaðurinn við hvern starfsmann sé um 2 milljónir á ári,“ sagði kunnur athafnamaður í við- skiptalífinu í samtali við HEIMSMYND þegar hann var beðinn um að áætla laun og launatengd gjöld Stöðvar 2. Ólafur H. Jónsson fullyrðir hins vegar að heildarlaunakostnaður Stöðvar 2 nái ekki 200 milljónum króna á ári. Hvað sem því líður þá er ljóst að Stöð 2 hefur í engu sparað til að fá til sín starfsfólk. „Við tókum besta fólkið og borgum því góð laun,“ segir Ólafur. „Þeir sem ekki standa sig verða að taka pokann sinn.“ Mörg „þekkt andlit“ voru strax í upphafi keypt til Stöðvar 2 og fengu þessir einstaklingar 100 til 180 þúsund krónur í fastalaun á mánuði, samkvæmt heimildum HEIMSMYNDAR. En þótt fastráðnir starfsmenn kvarti ekki, þá hefur verið nokkur kurr í lausráðnu fólki undanfarið vegna þess að laun hafa verið greidd með þriggja mánaða víxlum. Starfsmenn sem HEIMSMYND ræddi við segjast sumir hafa átt í erfiðleikum með að selja víxlana, auk þess sem allur kostnaður við söluna hafi fallið á þá. Ólafur H. Jónsson neitar því þurrlega að greiðslustaða Stöðvar 2 sé erfið, þeg- ar launagreiðslur með víxlum eru bornar undir hann. Hann undirstrikar að Stöð 2 hafi alltaf staðið í skilum en segir að gripið hafi verið til launagreiðslna með víxlum, þar sem hér sé næstum undan- tekningarlaust um fyrirframfjárfestingu í dagskrá að ræða, og því þurfi að fleyta þessum kostnaði áfram um stundarsakir. Hins vegar fullyrðir Ólafur að það sé engum vandkvæðum bundið að selja víxla Stöðvar 2 og þeir hafi sagt fólki að koma með nótur vegna kostnaðar, og Stöð 2 muni að sjálfsögðu greiða hann. Annar stór útgjaldaliður eru tækja- kaupin. Ólafur segir að gróflega megi áætla að um áramót verði stöðin búin að fjárfesta í tækjum og búnaði fyrir 250 136 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.