Heimsmynd - 01.07.1990, Blaðsíða 69
Austur-Prússlandi. Hitler var
í þann veginn að funda með
háttsettum samherjum sín-
um. Einhver tók eftir tösk-
unni og kom henni fyrir upp
við vegg með þeim afleiðing-
um að þegar sprengjan
sprakk var Hitler fjærst í her-
berginu og skýldi eikarborð
honum þannig að hann slapp
með minniháttar meiðsli en
þrír aðrir létu lífið. Stauffen-
berg flaug til Berlínar í þeirri
trú að Adolf væri allur en þar
biðu félgar hans en þorðu
ekki að hefjast handa og taka
völdin í höfuðstöðvunum í
Hitler orðinn var um sig
Berlín fyrr en Stauffenberg
væri mættur á staðinn. Þcgar
hann lenti í Berlín þremur
tímum seinna höfðu fréttir
um morðtilraunina borist á
undan honum og nokkrir
samsærismannanna þegar
misst kjarkinn. Herforinginn
Friedrich Fromm sem var vel
kunnugt um samsærið reyndi
á tólftu stundu að sýnast hús-
bóndahollur og handtók
helstu samsærismennina, sem
voru skotnir á staðnum, þar
á meðal Stauffenberg. Aðrir
voru fyrri til og frömdu
sjálfsmorð. Næstu daga elti
lögregla Hitlers uppi aðra
samsærismenn og voru þeir
pyndaðir af Gestapo og
dregnir fyrir dómstól fólks-
ins, Volksgericht. Um tvö
hundruð menn voru skotnir
eða hengdir, í sumum tilfell-
um kyrktir eða hengdir upp á
kjötkróka. Meira að segja
Fromm slapp ekki og var
tekinn af lífi. Hitler lét kvik-
mynda aftökurnar og horfði
síðan á þær á síðkvöldum.
Skáldkonan Aphra
Behn fæddist f júlí
1640 en hún var fyrsta
enska konan sem vann fyrir
sér með skriftum. Skáldsaga
hennar Oroonoko,
sem kom út árið
1688, hafði mikil
áhrif á þróun
skáldsagna-
gerðar en
söguefnið er
afrískur prins
sem hnepptur
er í ánauð en
honum hafði
Aphra kynnst
Suður-Ameríku.
Öphru hafa þótt vanmetin en
í lifanda lífi var hún mjög
vinsæl og varð miðdepill mik-
ils hneykslis. Hún skrifaði
nokkur leikrit en skáldsögur
hennar þykja athyglisverðari
nú.
Um uppruna þessarar
konu er lítið vitað. Hún flutt-
ist barn að aldri til hollensku
Ljóð
Guineu sem þá var ensk ný-
lenda og sneri aftur til Eng-
lands átján ára gömul. Um
líkt, leyti gekk hún að eiga
kaupmann í London sem bar
nafnið Behn en hann
dó 1666. Hún varð
nafntoguð sakir
persónutöfra og
leiftrandi
greindar og
Karl II réð
hana í hol-
lensku leyni-
þjónustuna. I
Hollandi lenti
hún í skuldafangelsi
og byrjaði að skrifa til
að hafa í sig og á. Fyrsta leik-
ritið hennar var sett á svið
1671 og nokkrum árum síðar
gamanleikurinn The Rover,
sem náði feikilegum vinsæld-
um. Aphra Behn þótti ein-
staklega vel lesin og fjölhæf
og þótt hún félli í gleymsku
hafa nafn hennar og verk
verið endurvakin.
Þjóðhátíðardagur
Bandaríkjamanna
er 4. júlí en þann
dag ár-ið 1776 var sjálf-
stæðisyfirlýsing hinna
þrettán sameinuðu ríkja
Norður-Ameríku borin
fram í þinginu þótt hún
hafi ekki verið lesin upp
opinberlega fyrr en fjór-
um dögum síðar. Þjóðhá-
tíðardagurinn var haldinn
hátíðlegur árið eftir í
Ffladelfíufylki en það var
ekki fyrr en í lok stríðsins
1812 að þessi dagur varð
almennur hátíðisdagur í
Bandaríkjunum. I kjöl-
farið fóru ýmsir hópar
borgara að tengja mann-
réttindi og lýðræðiskröf-
ur þeirri þjóðerniskennd
sem tengist deginum.
Bandaríkjamenn nota oft
tækifærið þann 4. júlí til
að vígja merk mannvirki
eða taka fyrstu skóflust-
unguna sem og til að
koma með markverðar yf-
irlýsingar eins og viður-
kenningu á sjálfstæði Fil-
ippseyja árið 1946.
í sjálfstæðisyfirlýsing-
unni segir að allir menn
séu fæddir jafnir og eigi
rétt á lífi, frelsi og sókn-
inni eftir hamingju, ríkis-
stjórnir séu settar á lagg-
irnar með samþykki þegn-
anna og réttur fólksins sé
að koma þeirri ríkisstjórn
frá sem reynist ekki halda
grundvallarmannréttindi í
heiðri.
Sjálfstæðisyfirlýsingin borin fram í þinginu
Júlíbyltingin í Frakk-
landi átti sér stað árið
1830 en sú uppreisn
leiddi til þess að Loðvík Fil-
ippus varð konungur Frakk-
lands. Byltingin hófst þegar
Karl X konungur birti opin-
bera tilskipun sem takmark-
aði borgararéttindi sem
höfðu verið til staðar frá
1814. í kjölfar almennra mót-
mæla braust út bylting þar
sem barist var í þrjá daga og
leiddi til þess að konungur-
inn varð að segja af sér. Júlí-
byltingin franska kom fyrst
og fremst hinni ört vaxandi
borgarastétt til góða en tíma-
bilið fram til 1848 er nefnt
Júlí-konungsveldið í franskri
sögu.
Hrokafullur klifrarl
Arkitektinn Robert
Adam, sem ásamt
James bróður sín-
um gerbylti nýklassíska gull-
aldarstílnum sem kenndur
var við Palladio (sem uppi
var á sextándu öld í Róm) í
Englandi yfir í léttan og
glæsilegan stíl, Adamstflinn,
fæddist í Kirkcaldy í Skot-
landi þann 3. júlí 1728.
Þekktustu byggingar Adams
eru í London en hann inn-
réttaði einnig mörg heimili
fyrir háaðalinn.
Robert var næstelsti sonur
Williams Adam, eins mikil-
hæfasta arkitekts síns tíma í
Skotlandi. Árið 1745 hætti
Robert námi við Edinborgar-
háskóla og hóf störf á vinnu-
stofu föður síns sem nemi og
aðstoðarmaður. Þegar faðir
hans lést 1748 hélt hann
áfram ásamt eldri bróður sín-
um að sinna þeim verkefnum
sem föður hans hafði verið
úthlutað. Hæfileikar hans og
frumkvæði komu fljótt í ljós.
HEIMSMYND 69