Heimsmynd - 01.09.1990, Blaðsíða 10
HAMLET
HIKAR
Eins og Hamlet krónprinsi forðum er Davíð
Oddssyni ætlað að erfa ríkið, að verða leiðtogi
stærsta stjórnmálaflokks á íslandi og í kjölfar-
ið leiðtogi þjóðarinnar. Á tímum óöruggs
efnahagsástands, sundrungar og stjórnleysis
þar sem áhrif þjóðþingsins skreppa saman,
kallar fólk á sterkan leiðtoga. F>að er gömul
saga og ný. Davíð Oddsson er sá maður og sú
skoðun nær langt út fyrir raðir sjálfstæðis-
manna. Samkvæmt hugmyndafræði Sjálfstæð-
isflokksins er sterkt ríkisvald ekki æskilegt fyr-
irkomulag og því er það ákveðin þversögn að
maður með slíka hugmyndafræði skuli verða
ímynd hins sterka stjórnvalds.
Pað hafa áður verið sterkir foringjar í Sjálf-
stæðisflokknum en Davíð Oddsson er leiðtogi á borð við Ron-
ald Reagan. Á sama tíma og menn í viðskiptum og atvinnulífi
gera kröfur um minnkandi afskipti ríkisvaldsins kallar almenn-
ingur á sterka manninn, herforingjann sem kemur og leysir
vanda fólksins eftir langvarandi upplausnarástand sem veikar
ríkisstjórnir hafa kallað yfir þjóðina.
En rétt eins og Hamlet forðum hikar Davíð. Og það hik
vefst fyrir mörgum.
Hugtakið forystuvandi Sjálfstœðisflokksins hefur sett svip
sinn á alla stjórnmálaumræðu síðasta áratuginn. Pað hafa ekki
verið um það háværar raddir né blaðaskrif en það fer ekki dult
lengur að ýmsum öflum í Sjálfstæðisflokknum finnst brýn
nauðsyn að Davíð taki við forystunni. Enginn vill viðurkenna
það opinberlega en stóra spurningin er hvernig leiðtogaskiptin
Rétt eins og Hamlet forðum hikar Davíð. Og það hik
vefst fyrir mörgum.
geti farið fram. í>að er ekki hefð innan Sjálfstæðis-
flokksins að hrófla við sitjandi formanni.
Árið 1982 varð Davíð Oddsson borgarstjóri
Reykjavíkur. Ári síðar var Þorsteinn Pálsson kjörinn
formaður flokksins, sá yngsti í sögu hans. Síðan hef-
ur mikið vatn runnið til sjávar. Ferill annars hefur
verið ein stanslaus sigurganga en ferill hins þrauta-
ganga. Auðvitað er það tvennt ólíkt að vera borgar-
stjóri með „embættismenn sem dýrka hann" eins og
aðili úr innsta kjarna flokksins orðar það - eða
ungur formaður í þingflokki með ráðríkum og
gamalgrónum þingmönnum með eigin kjördæmi á
bak við sig. Pað hafa verið allt önnur ljón á vegin-
um fyrir Porsteini Pálssyni en Davíð en segja má
að sá síðarnefndi hafi stillt sínum ljónum upp
sjálfur og sigrað þau.
Davíð Oddsson hefur tekið umdeildar ákvarð-
anir á ferli sínum en honum hefur einnig tekist
að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd sem
enga forvera hans dreymdi um. Það hrikti í
Sjálfstæðisflokknum árið 1988 vegna hinnar
umdeildu ráðhússbyggingar en meira að segja
hún virðist ætla að verða honum vegsauki. Sama árið gliðnaði
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar undan honum sem sumir segja
einhver alvarlegustu mistök íslensks stjórnmálaleiðtoga um
árabil. Því skal engan undra að talið um forystuvandann hafi
færst í vöxt.
Þegar leið að landsfundi flokksins haustið 1989 biðu margir
spenntir eftir því hvort nú drægi til tíðinda. Þorsteinn Pálsson
vissi vel að Davíð Oddsson færi ekki gegn honum í formanns-
kjör. Um það hafði verið þegjandi samkomulag þeirra á milli.
En óneitanlega sýnir það styrk Davíðs að hann skuli á þessum
fundi hafa orðið varaformaður án þess að til kosninga kæmi.
Enginn vissi fyrir landsfund hvað Davíð myndi gera á fundin-
um. Hann þurfti ekki að koma, sjá og sigra. Hann bara mætti
og þáverandi formaður, Friðrik Sóphusson, vék úr sæti eftir
sólarhrings umhugsun.
Nákvæmlega þetta er uppi á teningnum núna. Enginn veit
með vissu hvað Davíð hyggst fyrir. I síðustu borgarstjórnar-
kosningum vann Sjálfstæðisflokkurinn sinn mesta sigur í
Reykjavík frá upphafi. Síðan þá hefur þrýstingurinn á Davíð
að leiða flokkinn í Reykjavík til næstu þingkosninga aukist
mjög. En Davíð lætur ekkert uppi um það hvað hann ætlar að
gera. Hann stendur á toppnum en brúnin þar er líka egghvöss.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður í lok októ-
ber og framboðsfrestur rennur út um það bil tveimur vikum
áður. Það er vel hugsanlegt að Davíð láti ekkert uppi um fyrir-
ætlanir sínar í ljósi þess að þrýstingurinn á hann að fara fram
vaxi svo mikið að núverandi formanni verði ýtt til hliðar. Dav-
íð og Þorsteinn eru fyrir hvor öðrum og Þorsteinn er fyrir
flokknum. Ut á við er talað um þá sem æskuvini. Báðir hlutu
blessun gömlu flokksforystunnar rúmlega þrítugir sem verð-
andi arftakar hennar. Hvorum um sig var falið visst hlutverk.
Báðir voru þeir krónprinsar en fljótlega kom í ljós að annar
var Hamlet en hinn Ofelía.
Davíð hefur ekki aðeins styrkt sig í sessi sem borgarstjóri
heldur hefur hann þau tengsl sem fyrrverandi formaður
flokksins Geir Hallgrímsson hafði en Þorsteini Pálssyni hefur
ekki tekist að efla. Forkólfar í viðskiptalífinu finna samastað
hjá Davíð. Samband hans og ritstjóra Morgunblaðsins er gott.
Kjarni Eimreiðarklíkunnar er með honum. Hann hefur þau
tögl og hagldir sem formanni flokksins er ætlað að hafa. Um
ást Hamlets og Ófelíu var engum blöðum að fletta en ýmsir
hafa efast um heilindi Davíðs í garð æskuvinar síns Þorsteins.
A þeim sjö árum sem liðin eru frá því að Þorsteinn varð for-
maður hefur Davíð oft látið uppi efasemdir um stjórnstíl hans
og kænsku.
Af hverju hikar Davíð eins og Hamlet? Af hverju dembir
10 HEIMSMYND
eftir HERDÍSI ÞORGEIRSDÓTTUR