Heimsmynd - 01.12.1990, Blaðsíða 48
LISTIR: A köldum klaka
Það er mikið um að vera þessa dagana í Borgarleikhúsinu. I
anddyrinu stýrir Edvald J. Friðriksson söngæfingum, á fjórðu
hæð æfir Lára Stefánsdóttir dansspor með leikurum og á stóra
sviðinu ræður Pétur Einarsson leikstjóri ríkjum. Verið er að
æfa nýjan rokksöngleik í léttum dúr, Á köldum klaka. Höf-
undur verksins er Ólafur Haukur Símonarson en hann er
landsmönnum að góðu kunnur sem leikrita-, ljóða- og skáld-
sagnahöfundur, auk þess sem
mörg dægurlaga hans hafa öðlast
vinsældir.
Á köldum klaka fjallar um
Manna sem rekur stórt og mikið
hálfkarað hótel. Eitthvað virðist
reksturinn ætla að ganga erfiðlega
og er nú svo komið að lokað hefur
verið fyrir rafmagnið. Starfsfólk
hótelsins reynir að brydda upp á
ýmsum nýjungum í því skyni að
laða að væntanlega viðskiptavini.
Efnt er til ítalskrar viku sem síðan
er breytt í mexikóska þegar í ljós
kemur takmarkaður áhugi borgar-
Pétur Einarsson leikstjóri. búa. En hjálpin er næst þegar
neyðin er stærst, segir í gömlu
máltæki. Utlendinga ber að garði. Þeir kippa í ýmsa spotta og
taka síðan yfir rekstur hótelsins. Það má segja að hótelið
standi sem tákn fyrir ísland. Hér, líkt og í ljóði Tómasar Guð-
mundssonar, Hótel jörð, er hótelið tilvísun til víðara samfé-
lags.
Springdýnur
°g
vatnsrúm.
Amerísku „Seoly“ rúnjin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samróði við færustu
beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman
og nó þannig að gefa þér góðan nætursvefn ón bakverkja að morgni. 5—15 óra óbyrgð.
Höfum einnig rúmgafla, nóttborð og rúmföt í miklu úrvali.
Marco,
Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-14