Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 33
réttindi til að kenna kripalu-jóga og hefur verið með jógatíma
í Mætti fjórum sinnum í viku undanfarið ár. Par kemur saman
hópur fólks á öllum aldri til að stunda þessa líkamsrækt. Sum-
ir eru langt komnir, aðrir eru nýliðar. „Fólkið sem kemur
þarna saman er ekki að keppa um hver getur
teygt mest, heldur er hver og
einn að finna sín mörk.
Með tímanum liðkast
fólk og getur smám sam-
an teygt sig lengra og
lengra. Jóga er mjög góð
Kkamsrækt því þótt æfing-
arnar séu hægar þá fer öll
starfsemi líkamans af stað.
Það er líka mjög hentugt að
því leyti að það þarf lítið
pláss til að stunda jóga, dá-
lítill gólfflötur nægir.“
Mikil áhersla hefur verið
lögð á að hver og einn finni
sér líkamsrækt sem hentar og
helst eitthvað sem hægt er að
stunda þótt mesti æskublóminn
sé farinn að dofna. Jóga hefur
þann kost að fólk getur haldið
áfram að stunda það alla ævi.
„Ég held að það sé eitthvað til í
því að fólk yngist upp þegar það
fer að stunda jóga reglulega. Það er til dæmis kona í tímunum
hjá mér sem ég hélt að væri í mesta lagi um fimmtugt en
jón en
sWótnmu aðnt en
sinn'
wS'W'*'-
komst síðar að því að hún er á áttræðisaldri. Mér fannst líka
hreint ótrúlegt hvað það fólk sem ég sá á setri kripalu-jóganna
í Bandaríkjunum var unglegt. Það hefur líka komið á daginn
að jóga er mjög gott fyrir þá sem þjást af háum blóðþrýstingi.“
Jón Ágúst ráðleggur þeim sem vilja kynna sér jóga að byrja
á því að sækja sérstaka tíma sem ætlaðir eru byrjendum. Þar
eru kennd ýmis grundvallaratriði sem auðvelda fólki að kom-
„Hann grenntist um þrjátíu kíló og er nýr og betri maður eftir
að hann tók að stunda jógað,"
„í jóganu er manni kennt að losa um spennu þannig að orkan
geti flætt um allan líkamann,11
„Það hefur komið á dagmn að jóga er mjög gott fyrir þá sem
þjást af háum blóðþrýstingi."
„Fólk yngist upp þegar það fer að stunda jóga reglulega."
„Hún leit út fyrir að vera um fimmtugt en reyndist í raun vera
komin á áttræðisaldur."
ast inn í jógað. „Mér hefur aldrei fundist ég þurfa að lesa mér
til um jógað til að skilja það sem slíkt. Þetta eru aðferðir sem
Indverjar hafa verið að þróa um þúsundir ára og reynslan hef-
ur sannað gildi þeirra. Ég held að jógað eigi allt eins að geta
höfðað til Islendinga þótt að þeir komi úr allt öðrum menn-
ingarheimi en Indverjar. Við erum öll með líkama. Það er
hins vegar mjög misjafnt hvers konar líkamsrækt hentar hverj-
um og einum, sjálfum finnst mér til dæmis gott að blanda
þessu með öðru, eins og lyftingum og dansi.“D