Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 59

Heimsmynd - 01.02.1992, Blaðsíða 59
Dagblöð og tímarit um heim allan keppast við að tilnefna fólk njliðins árs ogfer þá eftir jmsu hverjir hljóta þann heiður sem í sumum tilfellum hljtur að teljast vafasamur. A banda- rískum listum má meðal annarra finna morðingja og mann- œtur. Vinsœlt bandarískt mánaðarrit, Vanity Fair, valdi ein- göngu fólk sem á einn eða annan hátt kom við sögu í Persa- flóadeilunni. Franska tímaritið Paris Match valdi eingöngu konur, bandaríska vikuritið People valdi morðingja (fjölda- morðingjann Jeffrey Dahmer), meintan nauðgara, fórnarlamb kynferðislegrar áreitni (Anitu Hill) og fórnarlamb alnœmis, Magic Johnson. Karlaritið Esquire útdeildi vafasömustu verð- Enn er það stór hópur sem ef til vill gerir sér ekki grein fyrir því laununum og íslendingar völdu að vanda einn af ráðherrun- um og einn íþróttamann. Time vikuritið valdi Ted Turner, eiganda CCN sjónvarpsstöðvarinnar en Time velur til skiptist menn ársins eða áratugarins en þann heiður hlaut Gorbatsjov fyrir tveimur árum og þeir hafa líka tilnefnt plánetuna sem við búum á í tengslum við aukna áherslu á umhverfisvernd. hvar mörkin liggja - en þeir cettu að Þeir einstaklingar sem helst eru tilnefndir eru þeir sem mest hafa verið í sviðs- ljósinu undafarið ár. Einn þeirra er Clarence Thom- as, sem var útnefndur í embætti hæstaréttardómara þegar fyrrum starfsfélagi hans, lagaprófessorinn Anita Hill kom fram á sjónarsviðið og ásakaði hann í yfirheyrsl- um á vegum öldungardeildar Bandaríkjaþings, um kyn- ferðislega áreitni. í ljósi þess að Clarence Thomas er ann- ar blökkumaðurinn í sögu Bandaríkjanna sem hlýtur tilnefningu í þetta virðulega embætti var þetta gífurlegt áfall. Tugir milljóna Banda- ríkjamanna fylgdust með yf- irheyrslunum í beinni út- sendingu sjónvarps og þarna var brotið blað í jafnréttis- umræðunni. Clarence Thom- as var að vonum miður sín og taldi orðstír sinn hafa beðið alvarlegan hnekki en nú er ef til vill komin skýr- ingin á því af hverju réttvísin er blind. Anita Hill, konan sem hratt af stað þeirri miklu umræðu, sem fylgt hefur í kjölfarið á að margra mati skilið að vera tilnefnd kona ársins. Það þarf hug- rekki til að koma fram fyrir alþjóð og umheiminn allan til að ræða þá persónulegu niðurlægingu sem fylgir því að verða fyrir kynferðislegri áreitni - almennri staðreynd sem fæstir hafa gefið gaum hingað til. Nú keppast konur út um allt við að bera saman reynslu sína í þessum efnum. Frú Clarence Thomas á meira að segja að hafa tjáð sig um eigin reynslu í þess- um efnum. Karlmenn, sem gerst hafa sekir um kynferð- islega áreitni og þeir eru væntanlega margir, munu líkast til hugsa sig tvisvar um áður en þeir niðurlægja konu á þennan hátt. Enn er það stór hópur sem ef til vill gerir sér ekki grein fyrir því hvar mörkin liggja - en þeir ættu að reyna að setja sig í spor kvenna og ímynda sér hvernig það væri ef karlkyns yfirmaður þeirra klipi þá í rassinn, klappaði þeim á rófubeinið eða kallaði þá dúllur. í stuttu máli kalla ameríkanar þetta, „fucking with ones personal spaceíí - menn hafa ekki rétt á að reyna að setja sig í spor kvenna og ímynda sér hvernig það vœri ef... HEIMSMYND 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.