Fréttablaðið - 19.10.2019, Side 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
35” BREYTTUR
ALVÖRU JEPPASÝNING!
LAUGARDAGINN 19. OKTÓBER
MILLI KL. 12-16 FRUMSÝNUM
JEEP® WRANGLER OG RAM 3500 MEÐ 40” BREYTINGUM.
EINNIG VERÐUR TIL SÝNIS ÚRVAL BREYTTRA JEPPA M.A.
JEEP® GRAND CHEROKEE MEÐ 33” OG 35” BREYTINGUM,
JEEP® WRANGLER MEÐ 35” OG 37” BREYTINGUM
OG RAM PALLBÍLAR MEÐ 35-37” BREYTINGUM.
ALVÖRU JEPPAR
MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIFI.
isband.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6
270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU JEPP SÝNING!
Í DAG LAUGARDAGINN 19. OKTÓBER MILLI KL. 12-16
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG J EP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6
270 MOSFE LSBÆR S. 534 4 3 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
37” BREYTTUR37” BREYTTUR
Ásmundur Friðriksson
þingmaður Sjálf-
stæðisf lokksins
spurði ráðherra
hvers vegna
Sjúkratrygg-
ingar hefðu
tekið þvagleggi
af nýjustu gerð
af lista yfir þá
sem eru niðurgreiddir og hversu
margir hefðu óskað eftir undan-
þágu fyrir þvagleggjum á árinu.
Simone Biles
fimleikastjarna
vann til fimm
gullverðlauna
á HM í fim-
leikum í Þýska-
landi og er þar
með orðin sú sigur-
sælasta á HM frá upphafi. Biles
heillar einnig með háttvísi sinni
og virðingu fyrir keppinautum.
Gunnar Karl
Gíslason
matreiðslu-
maður
segir að þungur
rekstur Mikk-
eller & Friends og
Systur hafi sligað
veitingastaðinn Dill, sem opnaður
verður aftur í Kjörgarði. Dill er eini
veitingastaðurinn á Íslandi sem
fengið hefur Michelin-stjörnu.
Þrjú í fréttum
Þvagleggir,
fimleikar og
Kjörgarður
80
prósent kvenna
á Alþingi verða
fyrir kyn-
bundnu ofbeldi
samkvæmt
nýrri könnun.
Hlutfallið er
hærra hér
á landi en í
öðrum löndum Evrópu.
TÖLUR VIKUNNAR 13.10.2019 TIL 18.10.2019
20
ár eru síðan
Samtök at-
vinnulífs-
ins voru
stofnuð.
Ársfundur
atvinnu-
lífsins var
haldinn í Eld-
borgarsal Hörpu í vikunni.
54,5
milljarðar króna eiga að fara í
nýjar byggingar Landspítalans við
Hringbraut. Áætluð verklok eru
árið 2024.
13.700
krónur er götuverðið á grammi af
kókaíni í dag en styrkleiki eitur-
lyfja á Íslandi hefur aukist töluvert
að undanförnu.
1,12
milljarður manns horfði á sjón-
varpsútsendingu úrslitaleiks
heimsmeistara-
mótsins í knatt-
spyrnu kvenna í
sumar. FIFA birti
áhorfstölurnar í
vikunni sem eru
hærri en nokkru
sinni fyrr.
HEILBRIGÐISMÁL „Okkar markmið
er að vernda klíníska þjónustu eftir
því sem hægt er. Beinar aðhaldsað-
gerðir snúa helst að stoðþjónust-
unni og rekstrarkostnaði ýmsum.
Engu að síður er meginkostnaður
spítalans í launum og þar verður því
miður að taka á,“ segir Páll Matthí-
asson, forstjóri Landspítalans. Í
gær lauk yfirferð æðstu stjórnenda
spítalans yfir aðhaldsaðgerðir.
„Aðhaldsaðgerðunum miðar
ágætlega. Við erum búin að velta
við hverjum steini. Við erum með
fjölda aðgerða sem hljóða samtals
upp á rúman milljarð á þessu ári.
Á ársgrundvelli þýðir það aðgerðir
upp á um tvo og hálfan milljarð.“
„Við erum að tala um frestun
ýmissa viðhaldsverkefna þó það
verði áfram vinna í gangi. Það er
verið að draga úr aðkeyptri þjón-
ustu,“ segir Páll. Þá verður hætt
með svokallað Hekluverkefni með
nýjum kjarasamningum, en það
verkefni var útfærsla á launahækk-
un til að hvetja til hærra starfshlut-
falls. Auk þess verður hætt að greiða
vaktaálagsauka til hjúkrunarfræð-
inga sem og annarra stétta í vakta-
þjónustu.
„Við erum að setja háa aðhalds-
kröfu á stoðsviðin okkar, það eru
svið sem lúta ekki að klínískri þjón-
ustu,“ segir Páll. Þá sé búið að fækka
og lækka laun framkvæmdastjóra
ásamt því að aðhald í lyfjakostnaði
hefur verið aukið og hægt á endur-
nýjun á tölvubúnaði.
Mikið hefur verið rætt um álag á
starfsfólki spítalans síðustu ár og
eru veikindi starfsmanna Land-
spítalans heilt yfir frekar algeng. Í
fyrra var hlutfallið á bilinu 5,5 og
8,6 prósent. Metið er í hverju tilfelli
fyrir sig hvort kallað er á annan
starfsmann á aukavakt og segir
Páll að það verði reynt að hafa meira
aðhald í því. Aðspurður hvaða áhrif
aðhaldsaðgerðirnar komi til með
að hafa á starfsfólkið segir Páll það
verða áskorun að halda vinnu-
staðnum góðum og öflugum.
„Okkar kjarnamarkmið, okkar
hlutverk, er að halda úti þjónustu
við sjúklinga. Við ætlum að vernda
hana eins og við getum,“ segir Páll.
Ekki verður þó allt skorið niður.
Til dæmis fær samgöngupakki
starfsmanna að halda sér. „Vegna
samfélagslegrar ábyrgðar og auð-
vitað sem stuðning við starfsfólk þá
töldum við rétt að halda samgöngu-
pakkanum inni og samningnum
við Strætó bs. um að starfsmenn
fái ódýrari strætókort, samningur
sem hefur gefið góða raun,“ segir
Páll. „Við veltum við þessum steini,
en honum var velt aftur á réttuna.“
Páll segir óvíst hversu lengi
aðhaldið mun standa yfir. Fram
undan eru viðræður við Alþingi,
f járlaganefnd og fjármálaráðu-
neytið um launabætur. „Við teljum
vanta launabætur fyrir ýmsa kjara-
samninga. Það er eins og dulin hag-
ræðingarkrafa þegar við fáum ekki
bætur fyrir launin sem við greiðum
sannarlega. Við fáum fjármagn til
að greiða laun frá Fjársýslu ríkis-
ins,“ segir Páll. „Þetta er tæknilegt
mál um hvernig þessar kjarabætur
eru reiknaðar í samningum. Oft
eru þetta f lóknir samningar og
gerðir með nýjum hætti eins og
læknasamningarnir árið 2015 svo
dæmi sé tekið. Þetta er samtal sem
við eigum í núna við fjárveitingar-
valdið,“ bætir hann við.
arib@frettabladid.is
Vanda þarf aðhaldsaðgerðir til
að þær bitni ekki á starfsfólki
Spara á milljarð króna á
þessu ári og tvo og hálf-
an milljarð á því næsta
með aðhaldsaðgerðum
á Landspítala. Forstjóri
segir alla áherslu lagða
á að vernda klíníska
þjónustu á kostnað
stoðþjónustu.
Mikið álag er á starfsfólki spítalans og er mikið um veikindi. Páll segir að
vanda þurfi til verka ef ekki eigi að auka álagið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Okkar kjarnamark-
mið, okkar hlut-
verk, er að halda úti klín-
ískri þjónustu. Við ætlum að
vernda hana eins og við
getum.
Páll Matthíasson,
forstjóri Land-
spítalans
Aðhaldsaðgerðir á
Landspítalanum
• Há aðhaldskrafa á stoðsvið
• Frestun ýmissa viðhaldsverk-
efna
• Dregið úr aðkeyptri þjónustu
• Hætt með Hekluverkefni
• Hætt að greiða vaktaálags-
auka hjúkrunarfræðinga
• Frí verði tekin, ekki greidd út
• Aðhald í lyfjakostnaði
• Hægt á endurnýjun tölvu-
búnaðar
• Starfsmannavelta notuð til að
fækka starfsfólki
• Dregið úr greiddri yfirvinnu
• Dregið úr ferðakostnaði
• Aðhald í innkaupum
• Hagrætt í vinnuskipulagi
lækna
• Dregið úr ferðakostnaði
• Laun framkvæmdastjóra
lækkuð
• Föst yfirvinna endurskoðuð
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð