Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 38

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 38
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Rauði krossinn er alheimshreyfing og fylgist náið með þróun og ástandi mála um allan heim. Þá er sama hvort um er að ræða vopnuð átök, uppskerubrest, náttúruhamfarir eða breytingar á búsetuskilyrðum hvers konar. Allt það sem getur sett líf almennings í hættu eða valdið búsifjum kemur með einum eða öðrum hætti inn á borð hreyfingarinnar. Þar er lagt á ráðin, brugðist við og leiðbeint. Alls staðar þar sem erfitt ástand ríkir reynir Rauði krossinn að lina þjáningar, leysa úr neyð og aðstoða þá sem höllum fæti standa. Eins og lesendur blaðsins eru meðvitaðir um steðja margar hættur að mannkyninu. Styrjaldir, hungursneyðir og náttúruhamfarir hvers konar hafa þjakað okkur frá upphafi vega. Rauðakrosshreyfingin hefur mikla og langa reynslu í að bregðast við slíkum ógnum. Í öllum heimshornum má sjá merkið rauða sem er tákn þess að sjálf boðaliðar hreyfingarinnar eru tiltækir til að bregðast við ef kallið kemur. Aldrei verður fullþakkað framlag sjálf boðaliðanna sem gefa dýrmætan tíma sinn til að létta öðru fólki lífið. Þeirra er heiðurinn. Nú er hins vegar uppi ný ógn, breytingar á loftslagi og veðurfari sem enginn sér fyrir endann á. Veðurguðirnir hafa í gegnum tíðina verið torskildir, en þessi nýja vá er ekki tilviljun, heldur tilkomin af manna- völdum, komin til af athafnasemi mannsins nú síðustu öldina. Vissulega eru uppi deilur um hversu sú athafnasemi sé mikill örlagavaldur, en hið alþjóðlega vísindasamfélag er þó ekki í vafa um að mannkynið sjálft beri ábyrgð á þessum breytingum, en eigi líka möguleika á að bregðast við í tæka tíð. Sá tími sé þó naumur, verði of lítið eða ekkert að gert muni heimsbyggðin standa frammi fyrir svo ógnvænlegum vandamálum að vart verði við ráðið og þau ógni heimsfriði og lífsskilyrðum fólks á stórum svæðum á jörðinni. Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans hefur tekið ábendingar vísindasamfélagsins alvarlega og reynslan sýnir að þessar breytingar færast í vöxt. Búsetuskilyrði fólks eru þegar að breytast til hins verra á sumum svæðum, þurrkar, úrhelli, f lóð og ofsaveður gera lífsafkomuna erfiða og sums staðar ómögulega. Það þýðir að fólk flosnar upp frá heimahögum sínum og leitar nýrra heimkynna til að bjarga lífi sínu. Það er því mikil nauðsyn að ríkisstjórnir, fyrirtæki og almenningur allur á jörðinni taki höndum saman með markvissum aðgerðum og bægi þessari nýju hamfaraógn frá. Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi Kæru lesendur Enn á ný kemur Hjálpin, blað Rauða krossins á Íslandi, út og er full af efni er varðar verkefni félagsins, áherslur og markmið. Vilt þú gerast sjálf- boðaliði? Skráðu þig á raudikrossinn.is tappann inni í lófanum þegar við förum á salernið í vinnunni og setjum fleira í verslunarkerruna þegar við fórum kannski í búðina eingöngu til að kaupa dömubindi.“ Blæðingaskömm sé merkilega víðtækt vandamál. Ástæðurnar og viðhorfin að baki eru oftar en ekki keimlík, á milli ólíkra staða. „Það er merkilegt, en við höfum fundið fyrir því, þar sem við höfum verið með fræðslu um blæðingaheil- brigði fyrir fólk víða að úr heim- inum, hversu útbreidd blæðinga- skömm er, og svipaðar hugmyndir um óhreinindi og skömm leynast í ólíkum menningarheimum.“ Á sumum menningarsvæðum ríki mikil bannhelgi gagn- vart blæðingum. „Víða eru blæðingar gríðarlegt tabú og blæðingaskömmin þeim mun ýktari. Hætturnar sem stúlkurnar kljást við koma úr öllum áttum. „Stúlkur á blæðingum verða oft fyrir aðkasti skólabræðra sinna og kennara. Við þekkjum átakanleg dæmi þess að karlkyns kennarar, sem krefja skólastúlkur um kynlíf, noti blæðingaskömm sem verkfæri til að niðurlægja stúlkur sem neita þeim.“ Þetta hefur víðtæk og alvarleg áhrif á líf stúlkna og getur jafnvel aftrað þeim frá skólagöngu. „Skilj- anlega kjósa margar stúlkur frekar að vera heima hjá sér en í skóla þá daga sem þær eru á blæðingum og það er óásættanlegt! Rauði kross- inn á Íslandi leggur mikla áherslu á jafnrétti kynjanna og valdeflingu stúlkna og kvenna,“ segir Sólrún. Blæðingar í hringiðu hamfara eða átaka Gefa þarf stúlkum og konum á átaka- og á hamfarasvæðum sér- stakan gaum en líkt og önnur nátt- úruleg fyrirbæri, er ógerningur að stjórna því hvenær og hvar blæðingar eiga sér stað. „Blæðingar kvenna og stúlkna hætta ekki í hamförum og átökum, en í gegnum tíðina hefur oft gleymst að huga að þörfum þar að lútandi þegar neyðaraðstoð er veitt, sér- staklega þar sem það er víða tabú að ræða blæðingar og því kemur þessi þörf ekki fram þegar neyðar- aðstoð er skipulögð,“ útskýrir Sólrún. „Skortur á dömubindum og öðrum lausnum, jafnvel nærbux- um, er einn augljósasti vandinn þegar fólk neyðist til að yfirgefa heimili sín í skyndi.“ Stúlkur og konur á f lótta og í f lóttamannabúðum upplifa gjarnan mikið skilnings- og varn- arleysi í óviðunandi aðstæðum. „Skortur á aðstöðu til að skipta á bindum/ túrtöppum og henda, eða skortur á aðstæðum til að þrífa fjölnota blæðingalausnir er annað algengt vandamál í búðum þar sem fólk hefst við í neyð. Þar er oft skortur á næði sem getur valdið miklu álagi og streitu, sérstaklega þar sem blæðingaskömm er mikil. Allt þetta ofan á þau óþægindi sem stúlkur og konur takast á við á blæðingum þar sem ekki er neyðarástand.“ Afleiðingarnar geta verið ógur- legar. „Ef ekki er hugað að blæð- ingaheilbrigði við skipulagningu neyðarstarfs er því hætta á að konur og stúlkur neyðist til að nota óhrein gömul klæði eða annað til að taka við blæðingum sínum með aukinni hættu á sýkingum og óþægindum.“ „Ef konur neyðast til að að bíða myrkurs til að fara á salernið til að forðast að blóðblettir sjáist eru þær í meiri áhættu með að verða fyrir kyndbundnu og kynferðis- legu of beldi. Auk þess sem ótti um að sjáist í tíðablóð veldur því að konur og stúlkur einangrast og geta síður tekið þátt í mikilvægum athöfnum, ganga í skóla, sækja sér vistir og svo framvegis, allt getur þetta valdið kvíða og álagi á konur og stúlkur.“ Blæðingaheilbrigði í brennidepli Rauði krossinn hefur hrint af stað ýmsum úrræðum sem stuðla að því að opna umræðuna. Hefur það verið gert meðal annars með því að fræða karlmenn og drengi og virkja þá til liðs í þessari þýðingar- miklu baráttu. „Við höfum opnað þetta mikilvæga samtal við íbúa á verkefnasvæðum okkar; konur, menn, drengi og stúlkur,“ segir Guðný. Verkefnið sé ærið. Það geti reynst tímafrekt að sporna gegn djúpstæðum þekkingarskorti á málefninu á sama tíma og reynt er að gæta umburðarlyndis í garð þeirra sem þurfa á fræðslu að halda. „Vanþekkingar á málefninu gætir víða og skaðlegar hefðir geta verið svo rótgrónar að það tekur oft langan tíma að koma á breyt- ingum. Við nálgumst málefnið af virðingu og í náinni samvinnu við íbúa.“ Þá er líka mikilvægt að fræða þá sem koma að verkefnunum. „Nákvæmar leiðbeiningar og ýmislegt fræðsluefni hefur verið þróað og þýtt á nokkur tungu- mál, og er nú í notkun á hamfara- svæðum og víðar. Það er mikilvægt að starfsfólk og sjálf boðaliðar, bæði karlar og konur, sem taka þátt í neyðar aðstoð séu upplýst og geti rætt þetta oft á tíðum við- kvæma málefni svo fundnar séu viðeigandi lausnir fyrir hvern stað. Konur og stúlkur eiga ekki að vera heftar af blæðingum, hvorki á hamfarasvæðum þar sem nóg er samt að huga að, né annars staðar.“ Sólrún María Ólafsdóttir og Guðný Nielsen, verkefnastjórar hjá Rauða krossi Íslands, segja baráttuna gegn blæðinga- skömm afar mikilvæga. Við þekkjum átakanleg dæmi þess að karlkyns kenn- arar, sem krefja skóla- stúlkur um kynlíf, noti blæðingaskömm sem verkfæri til að niðurlægja stúlkur sem neita þeim. Framhald af forsíðu ➛ 2 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.