Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 2
Reynt að hindra olíulekaVeður Suðvestlæg átt, 5-10 m/s um landið vestanvert og skúrir eða él, en heldur hægari austan til á landinu og þurrt og bjart. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar annað kvöld og víða má búast við næturfrosti til landsins. Sjá Síðu 16 VerSlun Vínbúðirnar munu selja 34 tegundir af jólabjór í ár, en þær voru 29 árið áður. Sala á jólabjór í Vínbúðunum hefst föstudaginn 13. nóvember. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að starfsmenn Vínbúðanna verði varir við nokkra eftirvæntingu. „Við finnum fyrir því að það er spurt þegar nær dregur,“ segir hún. Kúltúrinn fyrir árstíðabundnum bjór hefur aukist nokkuð á undan- förnum árum og nú er boðið upp á jólabjór, páskabjór, þorrabjór, sumar- bjór og októberbjór. Vínbúðirnar hafa boðið upp á jólabjórinn allt frá árinu 1989. Þetta verður því 27. árið sem hann er í boði. „En hann er svona að taka kipp núna síðustu árin. Árið 2005 voru seldir 268 þúsund lítrar en í fyrra voru seldir rétt tæpir 670 þúsund lítrar,“ segir Sigrún Ósk. Það er aukning um 150 prósent á tíu árum. Sigrún Ósk segir að þótt sala á jóla- bjórnum aukist þýði það samsvarandi aukningu í neyslu á bjór. „Það færist úr öðrum tegundum á meðan. Það er alveg greinilegt. Þetta er ekki hrein við- bót við söluna.“ Undanfarin ár hafa margar jólabjór- stegundir selst upp löngu fyrir jól. Sig- rún segist ekki vera komin með tölur yfir framleitt magn og getur því ekki svarað því hvort hægt verði að fá vin- sælustu tegundirnar síðla í desember. „En sumir hafa mjög takmarkað framboð og það er bara þeirra stefna. Og ef þær tegundir verða vinsælar þá verða þær væntanlega ekki til.“ Sveinn Waage, kennari í Bjórskól- anum, segir að áhugi á jólabjór aukist á milli ára. „Þetta er orðin allt önnur stemn- ing og fer stigvaxandi,“ segir Sveinn. Þarna séu tveir þættir sem skipti máli. Annars vegar hafi innlendum framleið- endum á bjór fjölgað gríðarlega. Hins vegar geri reglur ÁTVR ráð fyrir því að allar árstíðabundnar bjórtegundir séu teknar í sölu. „Þannig að það sem mætir okkur er svo mikið úrval,“ segir Sveinn, sem óttast jafnframt að þetta myndi breytast ef starfsemi ÁTVR yrði hætt. Sveinn segist vera búinn að smakka nokkrar tegundir af jólabjór sem komi í ár og þær lofi mjög góðu. „Þetta er alveg geggjað,“ fullyrðir Sveinn. Þar á hann við innlendu fram- leiðsluna. Hann hefur ekki smakkað erlenda framleiðslu. jonhakon@frettabladid.is Sala á jólabjór jókst um 150 prósent á tíu árum Vínbúðir hefja sölu á jólabjór föstudaginn 13. desember. Salan hefur tekið kipp undanfarinn áratug. Skýrist meðal annars af fjölbreyttari innlendri framleiðslu. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að þegar árstíðabundinn bjór komi á markað sé minna selt af hefðbundnum bjór. FRéTTAblAðið/eRniR DómSmál Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir breska ríkisborgaranum Reece Scobie, sem handtekinn var við komu til lands- ins þann 16. júní síðastliðinn með umtalsvert magn barnakláms á tölvu- búnaði sem hann hafði meðferðis. Þá hefur lögreglan á Suðurnesjum einnig til rannsóknar ætluð fjársvik Scobies, en hann er grunaður um að hafa stundað umtalsverð svik með illa fengnum kreditkortum á hinum ýmsu stöðum hér landi. Samkvæmt því sem kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Scobie liggur hann undir rökstuddum grun um að hafa haft til dreifingar þúsundir mynda og myndbanda sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Þá segir að þegar litið sé til þeirrar hrinu brota sem Scobie er grunaður um að hafa framið á þeim tíma sem hann sætti farbanni, má ætla að hann muni halda áfram brotum á meðan máli hans er ekki lokið. Scobie er fæddur árið 1993 og hefur áður komið við sögu lögreglu fyrir efna- hagsbrot í Bretlandi. Árið 2013 fékk Scobie 16 mánaða dóm í Bretlandi fyrir að svíkja út sjö- tíu þúsund pund eða rúmlega fjórtán milljónir íslenskra króna af ferðaþjón- ustuaðilum. Hann hafði bókað flug og hótelgistingar á lúxushótelum úti um allan heim með fölsuðum kredit- kortum. – ngy Alþjóðlegur svikari í gæsluvarðhaldi Reece Scobie var handtekinn í verslun iSímans í sumar. Þetta er alveg geggjað. Sveinn Waage, kennari í Bjór- skólanum „Við erum að kanna aðstæður og þétta loftgöt til koma í veg fyrir frekari olíuleka. Síðan byrjum við undirbúning á björgun en það eru tveir til þrír dagar áætlaðir í hana,“ sagði Sigurður Stefánsson kafari um aðgerðir eftir að sanddæluskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn í gær. FRéTTAblAðið/Vilhelm Samfélag Ingvi Hrafn Óskarsson sagði af sér sem stjórnarformaður RÚV ohf. í gær. Í tilkynningu segist Ingvi ekki sjá fram á að geta áfram varið nægilegum tíma og orku í starfið samhliða störfum sínum sem héraðslögmaður. Starfshópur sem skipaður var af menntamálaráðherra skilaði skýrslu sinni um rekstur RÚV fyrir nokkrum dögum þar sem rekstrarvanda stofnunarinnar var lýst. Stjórn RÚV sendi frá sér til- kynningu vegna skýrslunnar þar sem sagði að rangt væri farið með staðreyndir. Illugi Gunnarsson menntamála- ráðherra segir eftirsjá að Ingva. „Ég tel að hann, stjórnin og starfs- menn Ríkisútvarpsins hafi unnið alveg frábært starf við að ná tökum á rekstri Ríkisútvarpsins og náð eftirtektarverðum árangri.“ Ekki náðist í Ingva Hrafn í gær- kvöldi. – kbg Sagði af sér formennsku 3 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.