Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 8
StjórnSýSla Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri hefur ráðist í fjöl-
margar aðgerðir gegn einelti og kyn-
ferðislegri áreitni í öllum embættum
lögreglu á landinu. Haraldur segist
hafa ákveðið að fylgja tillögum Finn-
borgar Salome Steinþórsdóttur vegna
niðurstaðna úr rannsókn hennar á
vinnumenningu lögreglunnar.
Rannsókn hennar sýndi að tæplega
18% lögreglumanna töldu sig þolend-
ur eineltis í starfi, 25% kvenna og 17%
karla. Tæplega 31% kvenna og 4%
karla í lögreglunni töldu sig þolendur
kynferðislegrar áreitni í lögreglunni.
Lögreglumenn sem tóku þátt í rann-
sókninni bentu á að gerendur væru
samstarfsmenn og yfirmenn.
Vandinn er talinn alvarlegur og til
viðbótar við aðgerðir ríkislögreglu-
stjóra ákvað innanríkisráðuneyti að
fá vinnusálfræðing til að greina sam-
skiptavanda í yfirstjórn lögreglunnar.
Í viðtölum við vinnusálfræðinginn
Leif Geir Hafsteinsson sögðu lögreglu-
menn frá óviðeigandi ummælum
vinnufélaga sinna. Ummælin vísuðu í
kynferði og viðkomandi upplifðu þau
sem áreitni. Enn hafa niðurstöður
greiningar Leifs ekki verið birtar en
heimildir Fréttablaðsins herma að rót
vandans sé valdabarátta í yfirstjórn
lögreglunnar.
Meðal aðgerða ríkislögreglu-
stjóra var að koma á fót fagráði lög-
reglunnar. Fagráðið er ráð óháðra
fagaðila og tekur til umfjöllunar mál
er varða beina og óbeina mismunun,
kynbundna áreitni, kynferðislega
áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti
innan lögreglunnar.
Þá hefur verið haldið námskeið í
stjórnendaþjálfun fyrir stjórnendur
innan lögreglunnar. Námskeiðið
var haldið í apríl 2015 í samvinnu
við Lögregluskóla ríkisins. Ríkislög-
reglustjóri gaf einnig út leiðbeinandi
verklagsreglur um einelti sem voru
sendar á alla lögreglustjórana 1. apríl
síðastliðinn.
Þá var ákveðið að endurútgefa
jafnréttis- og framkvæmdaáætlun
lögreglunnar og á næstu dögum fá
starfsmenn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu fræðslu um góð sam-
skipti á vinnustað, einelti og eðli
ágreinings. Fræðslufyrirlestrarnir
hafa verið haldnir í öllum öðrum
lögregluembættum á landinu á haust-
mánuðum en það er mannauðsráð-
gjafarfyrirtækið Hugtak sem hefur
haldið utan um þá.
Þá ákvað ríkislögreglustjóri að
endurskoða siðareglur lögreglunnar.
Í endurskoðuðum siðareglum verður
sérstök áhersla lögð á siðferði og
samskipti á vinnustaðnum. Að auki
verður unnið að því að draga úr nei-
kvæðum viðhorfum sem hafa mælst
gagnvart konum í lögreglunni. Til
viðmiðs verða siðareglur stjórnar-
ráðsins og Íþrótta- og ungmenna-
félags Keflavíkur.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Göngugreining
Pantaðu
tíma í síma
517 3900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
25%
kvenna eru
lögð í einelti
17%
karla eru lögð
í einelti
31%
kvenna verður
fyrir kynferðis-
legri áreitni
4%
karla verða fyrir
kynferðislegri
áreitni
✿ Kynferðisleg áreitni og einelti í lögreglunni
Ríkislögreglustjóri gegn áreitni og einelti
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur ráðist í fjölmargar aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni í öllum embættum lög-
reglunnar á landinu. Fjórðungur kvenna í starfi er lagður í einelti. Til stendur að endurskoða siðareglur lögreglunnar.
Ríkislögreglustjóri tekur samskipta-
vanda innan lögreglunnar föstum
tökum. FRéttablaðið/EinaR
tyrKland Frambjóðendur til þing-
kosninganna í Tyrklandi um helgina
nutu ekki jafnræðis í kosningabar-
áttunni, samkvæmt bráðabirgðanið-
urstöðum kosningaeftirlits Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu.
Sumir frambjóðendur áttu erfið-
ara en aðrir með að koma boðskap
sínum á framfæri við kjósendur,
og réði þar mestu aukin spenna
og ofbeldi í aðdraganda kosning-
anna, einkum í suðausturhluta
landsins þar sem stjórnarherinn átti
í átökum við Kúrda.
Andrúmsloft ótta var magnað
upp, meðal annars með handtökum
á stuðningsmönnum HDP-flokksins,
sem hefur barist fyrir réttindum
Kúrda.
Þá er fjölmiðlafrelsi ábótavant
í landinu, að mati eftirlitsmanna.
Sakamál voru höfðuð gegn tugum
blaðamanna á síðustu vikunum fyrir
kosningarnar, þar sem blaðamenn-
irnir voru sakaðir um stuðning við
hryðjuverkamenn. Og öll umfjöllun
um rannsókn á sjálfsvígsárásinni í
Ankara í síðasta mánuði var bönnuð.
Recep Tayyip Erdogan forseti seg-
ist hins vegar ekkert skilja í þessari
gagnrýni. „Þjóðarviljinn hefur kosið
mig með 52 prósentum atkvæða,”
sagði hann við fjölmiðla. „Heims-
byggðin öll ætti að bera virðingu
fyrir þessu, en ég hef ekki orðið var
við slíkan þroska.“
Flokkur Erdogans, AK-flokkurinn,
endurheimti í þessum kosningum
öruggan meirihluta á þingi, en þó
ekki nægan meirihluta til þess að
geta náð fram breytingum á stjórnar-
skrá landsins.
Erdogan forseti óskar nú eftir
aðstoð smærri flokkanna við
stjórnarskrárbreytingar, sem eiga
að styrkja stöðu forsetans.
Kúrdaflokkurinn HDP náði síðan
mönnum á þing þrátt fyrir háan
þröskuld, en flokkar þurfa heil tíu
prósent atkvæða til að fá menn á
þing. – gb
Eftirlitsmenn gagnrýna
kosningarnar í Tyrklandi
Kúrdi les fréttir af kosningaúrslitunum í Díjarbakír í gær. FRéttablaðið/EPa
Andrúmsloft ótta var
magnað upp, meðal annars
með handtökum á stuðn-
ingsmönnum HDP-flokksins
sem berst fyrir rétti Kúrda.
Í endurskoðuðum
siðareglum verður sérstök
áhersla lögð á siðferði og
samskipti á vinnustaðnum.
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð j U d a G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð