Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 10

Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Framsóknar- flokkurinn sem ætlaði fyrir kosn- ingar að berja erlenda kröfuhafa með kylfum, semur nú við þá í mestu vinsemd. Ríkisstjórnin hefur nú lokið samningum við erlenda kröfuhafa um stöðugleikaframlög, sem fela í sér að kröfuhafarnir fá hundruð milljarða í afslátt af stöðugleikaskatti gegn því að fara ekki í mál við ríkið. Gráglettið er að hin efnislega niðurstaða er mjög í samræmi við þá leið sem við í Samfylkingunni lögðum til fyrir síðustu kosningar, um að samnings­ staðan við kröfuhafa yrði nýtt og gera mætti ráð fyrir að þá skapaðist svigrúm upp á um 300 milljarða sem nýta þyrfti til greiðslu skulda ríkissjóðs. Fram­ sóknarflokkurinn sem ætlaði fyrir kosningar að berja erlenda kröfuhafa með kylfum, semur nú við þá í mestu vinsemd. Miklu máli skiptir að vel takist til við þessa aðgerð. Eins og seðlabankastjóri hefur sagt, er bara eitt skot í byssunni. Ástæðan fyrir því að skotið er í byssunni er sú að hún var hlaðin í tíð síðustu ríkisstjórnar, gegn vilja núverandi stjórnarflokka. Sjálfstæðisflokkurinn greiddi meira að segja atkvæði gegn því að fella slita­ búin undir höft. Þess vegna höfum við krafist þess að allar staðreyndir verði uppi á borðum og óháðum sérfræðingum og þjóðinni allri gefist tími til að kanna allar forsendur til hlítar. Ef ekki er nægilega vel að verki staðið er nefnilega raunveruleg hætta að verið sé að opna dyr fyrir erlenda kröfuhafa til að sleppa létt frá höftunum, en að þjóðin, lífeyrissjóðir í hennar eigu og innlend fyrirtæki sitji áfram innan hafta. En ef vel tekst til skapast tækifæri til að stíga næstu skref. Þá verða kjöraðstæður til að taka upp nýjan gjaldmiðil og losa okkur út úr þeim eilífðarvanda sem fylgir krónunni og verðtryggingunni. Ef tækifærið verður ekki nýtt, blasir því miður enn og aftur við ný hringrás uppgangs, verðbólgu, vaxtahækkana, gengis­ fellingar og hækkunar verðtryggðra lána. Nú þarf ríkisstjórn sem þorir að nýta árangurinn til að gera grundvallarbreytingar til góðs. Nýr gjaldmiðill eða piss í skóinn? Árni Páll Árnason formaður Sam- fylkingarinnar H E I L S U R Ú M A R G H !!! 1 31 01 5 Fullt verð 278.711 kr. TILBOÐSVERÐ 195.098 kr. SUMMER GLOW Millistíf / Mjúk (Queen Size 153x203 cm) KYNNIR HEILSUDÝNURNAR SUMMER GLOW OG MORENA FIRM MORENA FIRM Millistíf / Stíf (Queen Size 153x203 cm) Friða Ríkisútvarpið? Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar, spurði forsætisráð- herra hvort hann væri tilbúinn til þess að friða Ríkisútvarpið. Taldi hann nauðsynlegt að gera það til að vernda það fyrir árás hægri manna sem vildu reyna að koma stofnun- inni fyrir kattarnef. Forsætisráð- herra var nú ekki á þeim buxunum að friða stofnunina og taldi hana þurfa að laga sig að breytingum í þjóðfélaginu. Tæknin mun á næstu misserum og árum taka miklum framförum. Því væri það stórhættu- legt ef ætti að setja RÚV í formalín og friða það líkt og sjóvarnargarð- inn víðfræga. Rauðu ljósin blikka Atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi hefur ekki verið minna frá hruni efnahagslífsins 2008. Á einu ári fjölgaði starfandi fólki um 3.200 og hlutfall þeirra sem voru á vinnu- markaði jókst um 1,3 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 900 einstaklinga, eða um hálft prósentustig. Atvinnuleysi var því aðeins 3,5 prósent á þessum tíma. Á sama tíma stöndum við frammi fyrir mannaflsfrekum fram- kvæmdum í Helguvík hjá Thorsil og United Silicor, í Hvalfirði og á Bakka við Húsavík. Líklega mun þurfa að flytja erlent starfsfólk hingað til lands til að byggja upp. Íslenskt efnahagslíf er að hitna og reykurinn lyktar eins og hann gerði árið 2007. sveinn@frettabladid.is Fyrir Alþingi liggur enn eitt frumvarpið um að afnema einkarétt ríkisins á áfengisverslun. Þar er lagt til að sala sterks áfengis, léttvíns og bjórs verði gerði heimil í verslunum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er snúa til dæmis að frá­ gangi vörunnar, aldri afgreiðslufólks og viðskiptavina og öðru. Frumvörp af þessu tagi hafa verið lögð fram reglulega undanfarin ár. Ekkert þeirra hefur hlotið brautargengi og þrátt fyrir að svo virðist sem meirihluti þingmanna sé hlynntur málinu er ekkert sem bendir til að það verði sett í þann forgang að afgreiðslu þess verði lokið. Landlæknir birti í gær Talnabrunn sinn þar sem skoðuð var breyting á áfengisneyslu Íslendinga á árunum 2007 til 2012. Þar kemur fram að litlar breytingar hafa orðið á áfengisneyslu landans á þessum tíma. Þó megi sjá örlitla niðursveiflu árið 2009 sem embættið ætlar að sé vegna áhrifa efnahagshrunsins. Málflutningur þeirra sem mest setja sig upp á móti frjálsri verslun með áfengi snýst um áhyggjur af aukinni neyslu. Mýtuna um að aðgengi auki áganginn og þar með vandræðin sem flestir þekkja af eigin raun eða frá einhverj­ um í þeirra nánasta umhverfi. Því öl getur vissulega verið böl. Hins vegar er þessi staðhæfing ósönnuð og margir sem setja mikinn fyrirvara við þá staðhæfingu. Raunar er það svo að neyslunni virðist samkvæmt þessum athugunum landlæknis fremur stýrt af buddunni en aðgengi. Umræðan um áfengisfrumvarpið í dag minnir um margt á þingveturinn 1987 til 1988 þegar tekist var á um lögleiðingu bjórsins. Rökin um að tilslakanir myndu leiða til aukinnar heildarneyslu, aukið aðgengi ungmenna og almennt heilsutjón samfélagsins voru þá margtuggin ofan í landann. Að sama skapi ætti ekki að koma neinum á óvart að andstæðingar aukins frjálsræðis voru nokkurn veginn hinir sömu. Í því samhengi verður að hafa í huga að eftir að bjórinn var leyfður þögnuðu þessar úrtöluraddir fljótt og reyndar er það svo að andstaða við bjórinn hefur í seinni tíð verið notuð ákveðnum stjórnmálamönnum til háðungar. For­ ræðishyggja er nefnilega alltaf auðveldari ef þjóðin þekkir ekki á eigin skinni þau réttindi eða þægindi sem stjórn­ málamenn hafa ákveðið – af sinni miklu visku – að halda frá þeim. En eftir að bjórinn var leyfður 1. mars 1989 og dómsdagsspár andstæðinga bjórsins gengu ekki eftir sáu hins vegar flestir hversu fáránlegt bannið hafði raunveru­ lega verið og nú dettur ekki nokkrum heilvita manni í hug að stinga upp á því að bjór verði aftur bannaður hér á landi. Það sama mun verða uppi á teningnum varðandi áfengisfrumvarpið. Þegar það fer í gegn – sama hvenær það verður – og þjóðin mun kynnast þeim sjálfsögðu þægindum að þurfa ekki að kaupa áfengi úr ríkisreknum smásöluverslunum, munum við hugsa til baka og ekki skilja hvernig við gátum leyft stjórnmálamönnunum okkar slíka forræðishyggju. Og gott ef þetta verður ekki – á sama hátt og með bjórinn – notað andstæðingum þess til ævarandi háðungar. Brandarakallar morgundagsins Forræðis- hyggja er nefnilega alltaf auð- veldari ef þjóðin þekkir ekki á eigin skinni þau réttindi eða þægindi sem stjórnmála- menn hafa ákveðið – af sinni miklu visku – að halda frá þeim. 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.