Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 11
Um miðjan október fóru fram réttarhöld í máli Tónlistar-skólans í Reykjavík gegn
Reykjavíkurborg vegna vangoldins
kennslukostnaðar. Þar svaraði borgar-
lögmaður því með ótvíræðum hætti
að ábyrgð á tónlistarnámi samkvæmt
Aðalnámskrá tónlistarskóla lægi hjá
sveitarfélögunum lögum samkvæmt
og það hefði ekki breyst við undir-
ritun „Samkomulags um eflingu tón-
listarnáms“ sumarið 2011.
Þetta samræmist því sem Samtök
tónlistarskóla í Reykjavík (STÍR) hafa
haldið fram frá upphafi og sá skiln-
ingur hefur ítrekað verið staðfestur
af fyrrverandi og núverandi mennta-
málaráðherra. Undanfarin fjögur ár
hefur það hins vegar komið fram á
fjölmörgum fundum með borgar-
stjóra, borgarfulltrúum og embættis-
mönnum borgarinnar að borgin telji
að ríkið hafi tekið yfir ábyrgð á fram-
haldsnámi í hljóðfæraleik og miðnámi
og framhaldsnámi í söng. Umsögn
Birgis Björns Sigurjónssonar, fjármála-
stjóra borgarinnar, til borgarráðs (dag-
sett 24. maí 2011) tekur af allan vafa
um ábyrgð borgarinnar vegna sam-
komulagsins: „...sveitarfélögin (skuld-
binda) sig til að fjármagna kennslu
þeirra nemenda sem innritaðir eru
við viðurkennda tónlistarskóla og
uppfylla inntökuskilyrði og reglur
um námsframvindu. Í samkomulag-
inu er ekki afmarkaður fjöldi þeirra
nemenda sem öðlast rétt samkvæmt
því til stuðnings frá sveitarfélaginu
með öðrum hætti en ofangreindum.
Áhættan liggur þannig hjá sveitar-
félögum hvað varðar fjölda nemenda
og viðbótarkostnað sem það kann að
leiða til.“ Áhættan og ábyrgðin liggur
semsagt hjá sveitarfélögunum.
Hrópandi ósamræmi
Í Ársskýrslu Skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar 2011 (bls. 14) er
sagt að í samkomulaginu komi fram
kostnaðarhlutdeild ríkisins, rætt er
um aukningu á framlögum til mála-
flokksins og að sveitarfélög skuli
tryggja að átthagafjötrar hverfi. Þetta
þrennt er í hrópandi ósamræmi við
það sem varð svo raunin – Reykja-
víkurborg fór að halda því fram að
ríkið eitt ætti að standa straum af
öllum kostnaði við miðnám í söng og
allt framhaldsnám, borgin tók út öll
framlög sín til efri stiganna og lýsti
því jafnframt ítrekað yfir að nem-
endur úr öðrum sveitarfélögum kæmu
borginni ekkert við. Æ ofan í æ hefur
skólastjórum tónlistarskóla í borginni
verið bent á að hætta að krefja borg-
ina um stuðning við framhaldsnám
vegna þess að hið eina rétta í stöðunni
sé að herja á menntamálaráðuneytið.
En úr því að Reykjavíkurborg viður-
kennir loks að ábyrgðin sé hennar,
hver er þá málsvörnin? Af hverju
brúar hún ekki bilið milli kennslu-
kostnaðar og framlags ríkisins eins
og önnur sveitarfélög? Jú, lögum
samkvæmt hafa sveitarfélög rétt á
að ákveða fyrirkomulag varðandi
stuðning við tónlistarnám. Borgin
hafi í þessu tilviki ákveðið að styðja
eingöngu við grunnnámið og miðnám
í hljóðfæraleik. Ef þetta er raunin, þá
vakna ýmsar spurningar:
Af hverju fullyrti borgin ítrekað
að ábyrgðin væri ekki hennar, þegar
henni var það greinilega ljóst frá upp-
hafi að ábyrgðin lægi hjá borginni?
Borgin axli ábyrgð
Reykjavíkurborg viðurkennir að sveit-
arfélögin ein beri ábyrgð á tónlistar-
námi. Með því að
hætta stuðningi
við framhalds-
nám gerir borgin
skólunum ókleift
að kenna tónlist
á framhaldsstigi.
E r þ a ð m e ð -
vituð ákvörðun
hjá borgaryfir-
völdum að leggja
n i ð u r f r a m -
haldsnám í tón-
list í borginni?
Hvenær var þessi ákvörðun tekin
og var hún rædd með formlegum
hætti? Reykjavíkurborg er stjórnvald
og þetta er því stjórnvaldsákvörðun
sem þarf að tilkynna með formlegum
hætti og gefa tónlistarskólum and-
mælarétt. Stenst þessi ákvörðun úr
því að það var ekki gert?
Á fundi með borgarstjóra vorið
2014 sagði hann eitthvað á þá leið að
hann tryði því ekki að Illugi Gunnars-
son vildi að tónlistarskólarnir færu á
hausinn á hans vakt. Það hefur nú
verið staðfest að það er borgarstjóri
sem stendur vaktina og því hlýtur
lokaspurningin að vera: Vill Dagur B.
Eggertsson að tónlistarskólarnir fari á
hausinn á hans vakt?
Samtök tónlistarskóla í Reykjavík
hvetja borgina eindregið til að axla
ábyrgð og leita allra leiða til að finna
lausn á vandamálum tónlistarskóla
í borginni. Það er sannfæring okkar
að þverpólitískur vilji sé um að finna
málinu lausn og ætti því ekkert að
vera því til fyrirstöðu að finna skyn-
samlega kostnaðarskiptingu á mála-
flokknum.
Opið bréf til borgarstjórnar
Það hefur nú verið staðfest
að það er borgarstjóri sem
stendur vaktina og því hlýtur
lokaspurningin að vera: Vill
Dagur B. Eggertsson að tón-
listarskólarnir fari á hausinn
á hans vakt?
Þórunn
Guðmundsdóttir
formaður STÍR
og aðstoðar-
skólastjóri Tón-
listarskólans í
Reykjavík
Gunnar
Guðbjörnsson
skólastjóri Söng-
skóla Sigurðar
Demetz
Sigurður
Flosason
aðstoðarskóla-
stjóri Tónlistar-
skóla FÍH
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 3 . n ó v e m B e R 2 0 1 5