Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 11
Um miðjan október fóru fram réttarhöld í máli Tónlistar-skólans í Reykjavík gegn Reykjavíkurborg vegna vangoldins kennslukostnaðar. Þar svaraði borgar- lögmaður því með ótvíræðum hætti að ábyrgð á tónlistarnámi samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla lægi hjá sveitarfélögunum lögum samkvæmt og það hefði ekki breyst við undir- ritun „Samkomulags um eflingu tón- listarnáms“ sumarið 2011. Þetta samræmist því sem Samtök tónlistarskóla í Reykjavík (STÍR) hafa haldið fram frá upphafi og sá skiln- ingur hefur ítrekað verið staðfestur af fyrrverandi og núverandi mennta- málaráðherra. Undanfarin fjögur ár hefur það hins vegar komið fram á fjölmörgum fundum með borgar- stjóra, borgarfulltrúum og embættis- mönnum borgarinnar að borgin telji að ríkið hafi tekið yfir ábyrgð á fram- haldsnámi í hljóðfæraleik og miðnámi og framhaldsnámi í söng. Umsögn Birgis Björns Sigurjónssonar, fjármála- stjóra borgarinnar, til borgarráðs (dag- sett 24. maí 2011) tekur af allan vafa um ábyrgð borgarinnar vegna sam- komulagsins: „...sveitarfélögin (skuld- binda) sig til að fjármagna kennslu þeirra nemenda sem innritaðir eru við viðurkennda tónlistarskóla og uppfylla inntökuskilyrði og reglur um námsframvindu. Í samkomulag- inu er ekki afmarkaður fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt samkvæmt því til stuðnings frá sveitarfélaginu með öðrum hætti en ofangreindum. Áhættan liggur þannig hjá sveitar- félögum hvað varðar fjölda nemenda og viðbótarkostnað sem það kann að leiða til.“ Áhættan og ábyrgðin liggur semsagt hjá sveitarfélögunum. Hrópandi ósamræmi Í Ársskýrslu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar 2011 (bls. 14) er sagt að í samkomulaginu komi fram kostnaðarhlutdeild ríkisins, rætt er um aukningu á framlögum til mála- flokksins og að sveitarfélög skuli tryggja að átthagafjötrar hverfi. Þetta þrennt er í hrópandi ósamræmi við það sem varð svo raunin – Reykja- víkurborg fór að halda því fram að ríkið eitt ætti að standa straum af öllum kostnaði við miðnám í söng og allt framhaldsnám, borgin tók út öll framlög sín til efri stiganna og lýsti því jafnframt ítrekað yfir að nem- endur úr öðrum sveitarfélögum kæmu borginni ekkert við. Æ ofan í æ hefur skólastjórum tónlistarskóla í borginni verið bent á að hætta að krefja borg- ina um stuðning við framhaldsnám vegna þess að hið eina rétta í stöðunni sé að herja á menntamálaráðuneytið. En úr því að Reykjavíkurborg viður- kennir loks að ábyrgðin sé hennar, hver er þá málsvörnin? Af hverju brúar hún ekki bilið milli kennslu- kostnaðar og framlags ríkisins eins og önnur sveitarfélög? Jú, lögum samkvæmt hafa sveitarfélög rétt á að ákveða fyrirkomulag varðandi stuðning við tónlistarnám. Borgin hafi í þessu tilviki ákveðið að styðja eingöngu við grunnnámið og miðnám í hljóðfæraleik. Ef þetta er raunin, þá vakna ýmsar spurningar: Af hverju fullyrti borgin ítrekað að ábyrgðin væri ekki hennar, þegar henni var það greinilega ljóst frá upp- hafi að ábyrgðin lægi hjá borginni? Borgin axli ábyrgð Reykjavíkurborg viðurkennir að sveit- arfélögin ein beri ábyrgð á tónlistar- námi. Með því að hætta stuðningi við framhalds- nám gerir borgin skólunum ókleift að kenna tónlist á framhaldsstigi. E r þ a ð m e ð - vituð ákvörðun hjá borgaryfir- völdum að leggja n i ð u r f r a m - haldsnám í tón- list í borginni? Hvenær var þessi ákvörðun tekin og var hún rædd með formlegum hætti? Reykjavíkurborg er stjórnvald og þetta er því stjórnvaldsákvörðun sem þarf að tilkynna með formlegum hætti og gefa tónlistarskólum and- mælarétt. Stenst þessi ákvörðun úr því að það var ekki gert? Á fundi með borgarstjóra vorið 2014 sagði hann eitthvað á þá leið að hann tryði því ekki að Illugi Gunnars- son vildi að tónlistarskólarnir færu á hausinn á hans vakt. Það hefur nú verið staðfest að það er borgarstjóri sem stendur vaktina og því hlýtur lokaspurningin að vera: Vill Dagur B. Eggertsson að tónlistarskólarnir fari á hausinn á hans vakt? Samtök tónlistarskóla í Reykjavík hvetja borgina eindregið til að axla ábyrgð og leita allra leiða til að finna lausn á vandamálum tónlistarskóla í borginni. Það er sannfæring okkar að þverpólitískur vilji sé um að finna málinu lausn og ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að finna skyn- samlega kostnaðarskiptingu á mála- flokknum. Opið bréf til borgarstjórnar Það hefur nú verið staðfest að það er borgarstjóri sem stendur vaktina og því hlýtur lokaspurningin að vera: Vill Dagur B. Eggertsson að tón- listarskólarnir fari á hausinn á hans vakt? Þórunn Guðmundsdóttir formaður STÍR og aðstoðar- skólastjóri Tón- listarskólans í Reykjavík Gunnar Guðbjörnsson skólastjóri Söng- skóla Sigurðar Demetz Sigurður Flosason aðstoðarskóla- stjóri Tónlistar- skóla FÍH s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 3 . n ó v e m B e R 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.