Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 12
Í dag
19.15 Meistarad.kvöld Sport 4
19.30 Man. Utd - CSKA Sport 3
19.30 Sevilla - Man. City Sport 5
19.30 Real Madrid - PSG Sport
19.30 Shakhtar - Malmö Bravó
21.45 Meistarad.mörkin Sport
19.30 Haukar - ÍBV Schenkerhöllin
Njarðvík hefur efni á
stærsta bitanum á markaðn-
um þ.a. að fá Hauk Pál en
þeir hafa ekki efni á al-
mennilegri nettengingu.
Halldór G Jónsson
@Dorijons1
Nýjast
www.versdagsins.is
Finnið og sjáið
að Drottinn er
góður, sæll er
sá maður sem
leitar hælis hjá
honum...
Dr. Bragi Skúlason flytur erindi um makamissi
á samveru Nýrrar dögunar miðvikudagskvöldið
4. nóvember kl. 20:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Stuðningshópur hefst í kjölfarið.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Bragi lauk rannsókn á sorg íslenskra ekkla 2014 en var áður búinn að
vinna með ekkjum í sorgarnámskeiðum í mörg ár. Makamissir er með
álagsmestu lífsreynslu sem þekkt er. Eftirlifandi maki þarf að takast á
við miklar breytingar og aðlagast lífi á mjög breyttum forsendum.
www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is
Makamissir
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
Körfubolti Fáir hafa vakið jafn
mikla eftirtekt í Dominoʼs-deild
karla það sem af er tímabili og
miðherjinn Ragnar Nathanaelsson
hjá Þór Þorlákshöfn. Það er varla
annað hægt enda Ragnar 220 sentí-
metrar að hæð.
Það er augljóst á tölum Ragnars,
sem má sjá hér til hliðar á síðunni,
að hann hefur látið vel til sín taka.
Spekingar eru á einu máli um að
Ragnar hafi stórbætt sig frá því að
hann lék síðast með Þórsurum,
veturinn 2013-14, en að því tíma-
bili loknu hélt hann til Svíþjóðar.
Ragnar var hluti af Íslendinganý-
lendunni í Sundsvall á síðasta
tímabili. Alls spiluðu fjórir Íslend-
ingar með Drekunum þá, auk
Ragnars voru það Hlynur Bær-
ingsson, Jakob Örn Sigurðarson
og Ægir Þór Steinarsson. Aðeins
Hlynur er enn að spila með Sunds-
vall Dragons.
„Ætli þetta hafi ekki verið stærra
stökk en ég bjóst við að það yrði,“
sagði Ragnar í samtali við Frétta-
blaðið. Ragnar fékk lítið að spila í
Svíþjóð en var engu að síður val-
inn í íslenska landsliðið fyrir EM
í sumar, þar sem hann var aftur í
litlu hlutverki.
„Það var gott að vera með hina
Íslendingana með mér í Svíþjóð.
Þeir voru mínir björgunarkútar.
Þeir pössuðu upp á að ég yrði
ekki leiður og byrjaði að kenna
sjálfum mér um. Þess í stað lögðu
þeir áherslu á að ég myndi njóta
þess að vera þarna, enda fullt af
fólki sem myndi gefa mikið til að
vera í sömu sporum og ég,“ segir
Ragnar sem segist ekki efast um að
reynslan muni nýtast honum vel
fái hann aftur tækifæri til að fara í
atvinnumennsku.
Fór að vorkenna sjálfum mér
Eftir fyrstu tvo leiki Íslands á EM,
þar sem Ragnar spilaði aðeins tvær
sekúndur í hvorum, leið honum
ekki vel að eigin sögn.
„Ég gleymdi því að ég ætti að
njóta þess að vera þarna og fór
frekar að pæla í mínútunum. Ég
hóf að vorkenna sjálfum mér í stað
þess að njóta augnabliksins. Þarna
var ég með íslenska landsliðinu á
stórmóti og ansi margir sem hefðu
viljað vera í mínum sporum.“
Ragnar fékk góð ráð frá sínu
nánasta fólki og herbergisfélaga.
Það dugði til að breyta viðhorfi
hans, sem hann tileinkar sér enn
í dag. „Ég fór fremur að einbeita
mér að því hvað ég gæti gert til að
hjálpa liðinu, þó það væri aðeins
utan vallar. Þá byrjaði ég að öskra
meira af bekknum og hvetja menn
áfram. Það gerði það að verkum að
mér leið mun betur.“
Hann segir að árið í Svíþjóð
og með íslenska landsliðinu hafi
gefið honum nýja sýn á íþróttina.
„Ég virði körfuboltann og nýt þess
að vera á gólfinu. Það er kannski
ástæðan fyrir því að mér gengur
betur. Ég er með góða stráka í
kringum mig, góða þjálfara og
góða áhorfendur. Ég leyfi leiknum
að koma til mín fremur en að
þvinga eitthvað fram sem veldur
aðeins pirringi í sjálfum mér.“
Æfði eins og skepna í sumar
Ragnar segir að aðkoma tveggja
manna hafi breytt miklu fyrir
sig í sumar. Einar Árni Jóhanns-
son, þjálfari Þórs Þorlákshafnar,
og Baldur Þór Ragnarsson hafi
hjálpað honum heilmikið í sumar.
Baldur er liðsfélagi Ragnars hjá Þór
en einnig styrktarþjálfari íslenska
landsliðsins.
„Ég æfði mig eins og skepna í
sumar, strax þegar ég kom heim
frá Svíþjóð. Þá fór ég að vinna
í alls konar varnaræfingum og
sprengiæfingum. Þjálfarateymið í
landsliðinu er einnig öflugt og það
passaði vel upp á að taka okkur
stóru strákana til hliðar og vinna
með okkur í séræfingum.“
Hann segir að litlir hlutir eins og
að taka skotæfingu af vítalínunni
eftir hverja æfingu hafi hjálpað
sér. „Þó það hafi stundum ekki
verið nema 20-30 skot. Það er strax
byrjað að borga sig,“ segir Ragnar
sem er nú með 74% skotnýtingu
sem er bæting um rúm 20% frá því
að hann spilaði síðast á Íslandi.
Hann segir að Þórsarar ætli sér
að ná langt í vetur og að liðið sé
rétt að byrja. „Ég kom ekki fyrr en
um miðjan september inn í liðið
og við erum enn að læra hverjir
á aðra. Við verðum vonandi bara
betri með hverjum leiknum.“
Ragnar lætur það ekki á sig fá
þó svo að fáir hefðu reiknað með
því að hann yrði jafn áberandi í
deildinni og raunin varð. Hann er
ekki að hugsa um að senda gagn-
rýnendum og spekingum skilaboð.
„Einu skilaboðin mín er að ég
vil sýna fólki að ég nýt mín á vell-
inum.“ eirikur@frettabladid.is
Nýtur þess að vera á vellinum
Ragnar Nathanaelsson hefur komið inn í Dominoʼs-deild karla af miklum krafti eftir erfitt ár. Þessi 220
sentímetra miðherji hefur lært mikið af mótlætinu og nálgast leikinn á allt annan hátt en hann gerði.
Ragnar átti stórleik á móti Michael Craion og Íslandsmeisturum KR í annarri umferð tímabilsins, þar sem Íslandsmeistararnir
sigu ekki fram úr fyrr en í lokaleikhlutanum. Hér fagnar hann einni körfu sinna manna í leiknum. FRéttABlAðið/SteFán
Toppframmistaða
ragnar Ágúst Nathanaelsson
í fyrstu fjórum umferðunum í
Dominoʼs deild karla.
Hæsta framlag í leik
1. sæti - 30,5 í leik
Besta skotnýting
2. sæti - 56,6 prósent nýting
Flest fráköst í leik
1. sæti - 17,0 í leik
Flest sóknarfráköst í leik
1. sæti - 8,0 í leik
Flest varin skot í leik
1. sæti - 2,5 í leik
Flestar tvennur
1. sæti - 4 tvennur í 4 leikjum
GlóDÍS PERlA VERðuR ÁFRAM
Í ESkilStuNA 2016
Íslenski landsliðsmiðvörðurinn
Glódís Perla Viggósdóttir hefur
framlengt samning sinn við
sænska liðið Eskilstuna united um
eitt ár. Glódís Perla, sem er aðeins
tvítug, var fastamaður í öðru besta
liði Svíþjóðar á sínu fyrsta tíma-
bili í atvinnu-
mennsku.
„Glódís hefur
bætt sig mikið
á þessu fyrsta
ári og hefur
alla burði til
þess að bæta
sig enn meira.
Það er gleðiefni
að hún spili
með okkur
á komandi
tímabili,“ sagði
Viktor Eriksson,
þjálfari liðsins,
í viðtali við
heimasíðu
Eskilstuna
united.
ÞRiðJi lEikuRiNN Á FiMM
SólARHRiNGuM
topplið ÍBV í Olís-deild kvenna
heimsækir Hauka á Ásvelli í kvöld
en ÍBV-liðið tapaði sínum fyrsta
leik þegar Eyjakonur steinlágu
með ellefu mörkum á móti Val á
laugardaginn. Þetta verður þriðji
leikur ÍBV á rétt rúmum fimm
sólarhringum en þær spiluðu
á fimmutdagskvöld í Eyjum, í
Reykjavík á laugardegi og nú á
þriðjudagskvöldi í Hafnarfirði.
Haukakonur ætla heldur ekki að
gefa neitt. Þær hafa unnið sex leiki
í röð og ekki tapað síðan Maria
ines da Silva Pereira kom til liðsins.
HAukuR HEtJAN Í FyRStA
HEiMAlEikNuM
Njarðvík, Haukar og kR voru í
gærkvöldi þrjú síðustu liðin sem
tryggðu sér sæti í sextán liða
úrslitum Poweradebikarsins
í körfubolta en í
dag verður síðan
dregið í sextán
liða úrslitin hjá
bæði körlum og
konum. tíu af tólf
Dominoʼs-deildar
liðum verða í pott-
inum eða öll nema ÍR og FSu sem
töpuðu fyrir öðrum úrvalsdeildar-
liðum í 32 liða úrslitunum um
helgina. Haukur Helgi Pálsson lék
sinn fyrsta heimaleik með Njarð-
vík í ljónagryfjunni og strákurinn
hélt upp á það með því að skora
sigurkörfuna rétt fyrir leikslok-
þegar Njarðvík vann 66-63 sigur
á tindastól í gær. Þetta var fyrsti
leikur Stólanna síðan þeir ráku
finnska þjálfarann Pieti Poikola.
3 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 Þ r i Ð J u D A G u r12 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
sPort