Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 15
E kki langt frá höfuðstöðvum Audi í Ingolstadt í Þýskalandi starf­ rækir Audi glæsilega aksturs­ braut þar sem reyna má þeirra öflugasta sportbíl, Audi R8, við bestu aðstæður. Greinarritara bauðst það einmitt um daginn og spenningurinn fyrir akstri þessa ofurbíls á kappakstursbraut hefur líklega aldrei verið meiri. Audi R8 er enginn venjulegur bíll, hann er vopnaður 610 hestafla og 10 strokka vél sem hvílir aftan í bílnum undir gleri svo virða megi nú fyrir sér dýrðina sem drífur þennan bíl áfram. Auk þess er hann fjórhjóladrifinn svo öll hestöflin skili sér nú í undirlagið. Audi R8 hefur frá því hann sá fyrst dagsljósið verið mærður mjög af þeim sem mikið vit hafa á bílum og sagt að þar fari svo mikið draumatæki að líklega sé vandfundinn jafningi hans. Það var ég tilbúinn að sannreyna og ekki stóð til að hlífa bílnum neitt sérstaklega við aksturinn. Með í för voru nokkrir hérlendir og jafn spenntir ökumenn. Var okkur raðað í bílana, tveimur í hvern bíl, og voru sumir svo heppnir að vera einir í bíl. Blaut brautin bara bónus Áður en út á braut var farið var messað yfir okkur um hvað mátti og hvað ekki, ýmis legt um bílinn og getu hans og nauð­ synleg öryggisatriði. Þennan dag var meira og minna úrhellisrigning og brautin því rennandi blaut, en ekki var það til að gera aksturinn á nokkurn hátt minna skemmti­ legan, en miklu meira krefjandi. Það þótti mörgum einungis aukabónus. Farið var út á braut í fjögurra bíla hópum með undanfara á sams konar bíl. Hóparnir voru tveir og skemmtilegt frá því að segja að þessir tveir undanfarar voru feðgin og dóttirin reynd­ ur kappakstursökumaður sem náð hefur góðum árangri í keppnum. Ekki slæmt að hafa slíkan undanfara og útlit hennar skemmdi alls ekkert fyrir heldur! Mörgum sinnum var farið út á braut og eknir fjórir hringir í senn þar sem hraðinn jókst sífellt og ávallt var svo farinn fimmti hringurinn til að kæla bæði bremsur og vél eftir mikil átökin. Þátttakendur náðu fljótt tökunum á akstri þessa gríðaröfluga bíls og blaut brautin lærðist furðu fljótt. Hrikalega gaman var að finna hve mikið bíllinn þoldi í hverri beygju áður en grip­ ið gaf eftir og sífellt var reynt meira og meira á þyngdarlögmálið. Í þessum átökum öllum kom það fyrir nokkra ökumenn að missa bílinn út úr brautinni, en þar sem brautin var einkar fyrirgefanleg og vegrið langt frá malbik­ inu gerði þetta ekkert til, en bílarnir fengu aðeins að kynnast bæði grasi og möl á þeirri vegferð. Úr þessu varð náttúrulega hin brjálaðasta skemmtun og vel var skot­ ið á þá sem misstu bíla sína út af braut, en það sýndi bara að þeir voru að kreista það mesta út úr bílunum og var þar af ýmsu að taka. Ótrúlegt afl Þegar bílnum er gefið í botn, hvort sem það er frá kyrrstöðu eða á þó nokkurri ferð þrýstist ökumaður aftur í sætið og gæsa­ húðin sprettur fram eins og gorkúlur að sumri. Afl þessa bíls er svo yfrið að svo til enginn í hópnum hafði kynnst öðru eins, enda ekki á hverjum degi sem menn aka ofurbílum sem eru 3,2 sekúndur í hund­ raðið og með 330 km hámarkshraða. Það verður eiginlega ekki annað sagt en að upplifunin við að finna allt aflið sé engu lík og gæti bæði grætt hvaða ökufól sem er af einskærri gleði og í leiðinni hrætt úr honum líftóruna. Það ætti hreinlega enginn að fara í gröfina án þess að upp­ lifa þessa tilfinningu. Það voru ánægðir, sveittir, örlítið hræddir, en aðallega ham­ ingjusamir ökumenn sem stigu úr bílum sínum eftir mikinn akstur á brautinni góðu, en ekið var með hléum frá kl. 10 til 16 þennan frábæra dag sem enginn þátt­ takenda mun gleyma í bráð. villidýr sem gaman er að temja Brautarakstur á 610 hestafla Audi R8 er líklega með því skemmtilegasta sem hægt er að bjóða sérhverjum bílaáhugamanni. Þessi öflugi ofurbíll Audi er hreint ótrúlegt aksturstæki. Bílar ÞrIÐJUDaGUr 3. nÓvemBer 2015 BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá:

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.