Fréttablaðið - 03.11.2015, Qupperneq 15
E
kki langt frá höfuðstöðvum Audi
í Ingolstadt í Þýskalandi starf
rækir Audi glæsilega aksturs
braut þar sem reyna má þeirra
öflugasta sportbíl, Audi R8, við
bestu aðstæður. Greinarritara
bauðst það einmitt um daginn og
spenningurinn fyrir akstri þessa ofurbíls
á kappakstursbraut hefur líklega aldrei
verið meiri. Audi R8 er enginn venjulegur
bíll, hann er vopnaður 610 hestafla og 10
strokka vél sem hvílir aftan í bílnum undir
gleri svo virða megi nú fyrir sér dýrðina
sem drífur þennan bíl áfram. Auk þess
er hann fjórhjóladrifinn svo öll hestöflin
skili sér nú í undirlagið. Audi R8 hefur frá
því hann sá fyrst dagsljósið verið mærður
mjög af þeim sem mikið vit hafa á bílum
og sagt að þar fari svo mikið draumatæki
að líklega sé vandfundinn jafningi hans.
Það var ég tilbúinn að sannreyna og ekki
stóð til að hlífa bílnum neitt sérstaklega
við aksturinn.
Með í för voru nokkrir hérlendir og
jafn spenntir ökumenn. Var okkur raðað í
bílana, tveimur í hvern bíl, og voru sumir
svo heppnir að vera einir í bíl.
Blaut brautin bara bónus
Áður en út á braut var farið var messað
yfir okkur um hvað mátti og hvað ekki,
ýmis legt um bílinn og getu hans og nauð
synleg öryggisatriði. Þennan dag var meira
og minna úrhellisrigning og brautin því
rennandi blaut, en ekki var það til að gera
aksturinn á nokkurn hátt minna skemmti
legan, en miklu meira krefjandi. Það þótti
mörgum einungis aukabónus. Farið var út á
braut í fjögurra bíla hópum með undanfara
á sams konar bíl. Hóparnir voru tveir og
skemmtilegt frá því að segja að þessir tveir
undanfarar voru feðgin og dóttirin reynd
ur kappakstursökumaður sem náð hefur
góðum árangri í keppnum. Ekki slæmt
að hafa slíkan undanfara og útlit hennar
skemmdi alls ekkert fyrir heldur!
Mörgum sinnum var farið út á braut og
eknir fjórir hringir í senn þar sem hraðinn
jókst sífellt og ávallt var svo farinn fimmti
hringurinn til að kæla bæði bremsur og
vél eftir mikil átökin. Þátttakendur náðu
fljótt tökunum á akstri þessa gríðaröfluga
bíls og blaut brautin lærðist furðu fljótt.
Hrikalega gaman var að finna hve mikið
bíllinn þoldi í hverri beygju áður en grip
ið gaf eftir og sífellt var reynt meira og
meira á þyngdarlögmálið.
Í þessum átökum öllum kom það fyrir
nokkra ökumenn að missa bílinn út úr
brautinni, en þar sem brautin var einkar
fyrirgefanleg og vegrið langt frá malbik
inu gerði þetta ekkert til, en bílarnir fengu
aðeins að kynnast bæði grasi og möl á
þeirri vegferð. Úr þessu varð náttúrulega
hin brjálaðasta skemmtun og vel var skot
ið á þá sem misstu bíla sína út af braut, en
það sýndi bara að þeir voru að kreista það
mesta út úr bílunum og var þar af ýmsu að
taka.
Ótrúlegt afl
Þegar bílnum er gefið í botn, hvort sem
það er frá kyrrstöðu eða á þó nokkurri ferð
þrýstist ökumaður aftur í sætið og gæsa
húðin sprettur fram eins og gorkúlur að
sumri. Afl þessa bíls er svo yfrið að svo til
enginn í hópnum hafði kynnst öðru eins,
enda ekki á hverjum degi sem menn aka
ofurbílum sem eru 3,2 sekúndur í hund
raðið og með 330 km hámarkshraða. Það
verður eiginlega ekki annað sagt en að
upplifunin við að finna allt aflið sé engu
lík og gæti bæði grætt hvaða ökufól sem
er af einskærri gleði og í leiðinni hrætt
úr honum líftóruna. Það ætti hreinlega
enginn að fara í gröfina án þess að upp
lifa þessa tilfinningu. Það voru ánægðir,
sveittir, örlítið hræddir, en aðallega ham
ingjusamir ökumenn sem stigu úr bílum
sínum eftir mikinn akstur á brautinni
góðu, en ekið var með hléum frá kl. 10 til
16 þennan frábæra dag sem enginn þátt
takenda mun gleyma í bráð.
villidýr sem gaman er að temja
Brautarakstur á 610 hestafla Audi R8 er líklega með því skemmtilegasta sem hægt er að bjóða
sérhverjum bílaáhugamanni. Þessi öflugi ofurbíll Audi er hreint ótrúlegt aksturstæki.
Bílar
ÞrIÐJUDaGUr 3. nÓvemBer 2015
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá: