Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 16

Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 16
V olkswagen-bíla- samstæðan saman- stendur af einum níu merkjum bíla, tveimur flutninga- bílamerkjum og einu mótorhjólamerki. Þessi risi hefur verið byggður upp á síðustu tveimur áratug- um. Sum þessara merkja hafa skilað gríðarlegum hagnaði, svo sem Porsche og Audi, en önnur hafa skilað tapi til langs tíma, en verið haldið uppi af þeim arð- samari. Nú þegar við blasir að Volkswagen þarf að eyða gríð- arlegum upphæðum í innkall- anir og sektir vegna dísilvélas- vindlsins kemur upp sú spurn- ing hvort Volkswagen hafi lengur efni á að halda uppi „nice to have“-merkjum og losi sig við þau. Kemur þá fyrst upp í hug- ann Bugatti, Seat og Ducati, sem lengi hafa skilað tapi. Bugatti bara stöðutákn Matthias Müller, nýráðinn for- stjóri Volkswagen, hefur sagt að fyrirtækið verði að hætta við eða fresta verkefnum sem ekki eru nauðsynleg rekstri og uppbyggingu fyrirtækisins á þessum tímum mikilla fjárút- láta. Bugatti hefur aldrei skilað hagnaði til Volkswagen frá því fyrirtækið var keypt árið 1998. Bugatti hefur þótt stöðutákn fyrir Volkswagen, sem bílasmið- ur vönduðustu og hraðskreið- ustu bíla heims, sem seljast fyrir hundruð milljóna stykk- ið. Það er allt í lagi að hafa slíkt merki innan sinna raða þegar vel gengur og hagnaður ann- arra fyrirtækja gerir mörg- um sinnum meira en að greiða upp tap slíkra stöðutákna. En nú, þegar skórinn kreppir að gæti Volkswagen íhugað að losa sig við fyrirtækið, þar sem það þarf alla sína fjármuni til að greiða úr dísilvélasvindlinu. Margir hafa reyndar spurt sig hvað Volkswagen hefur frá upp- hafi haft með Bugatti-merkið að gera, en ef til vill aldrei eins og nú. Seat ekki skilað hagnaði frá 2007 Volkswagen á bæði MAN- og Scania-vörubíla og rútufram- leiðendurna, en hefur ekki tek- ist að ná fram samlegðaráhrif- um af rekstri þeirra, þó svo þau nái jafnan fram einhverj- um hagnaði, litlum þó. Spænski bílaframleiðandinn Seat sem tilheyrir Volkswagen-bílafjöl- skyldunni hefur ekki skilað hagnaði frá árinu 2007 og bílar framleiðandans þykja skar- ast um of við bílalínu Skoda, sem einnig tilheyrir Volks- wagen. Það hlýtur því að freista Volkswagen að losa sig við Seat ef fjárhagsvandræði steðja að. Þar kemur þó á móti að rekstur Seat hefur gengið nokkuð vel á árinu og líklega verður hagn- aður af rekstrinum í ár. Einnig gæti það komið í veg fyrir sölu á Seat að slík ráðstöfun myndi mæta andstöðu leiðtoga stéttar- félaga. Þar sem helmingurinn af stjórn Volkswagen er nú skip- aður leiðtogum stéttarfélaga er ólíklegt að Seat hverfi úr eigna- safni Volkswagen í bráð. Í verk- smiðjum Seat er að auki smíð- uð ein gerð Audi-bíls og frek- ar er talið líklegt að Volkswagen muni auka við þá tilhögun. Fækkar bílamerkjum Volkswagen Mikil útgjöld vegna dísilvélasvindlsins gætu þrýst Volkswagen til að selja eitthvert bílamerkja sinna. Höfuðstöðvar Volkswagen í Wolfsburg. Það kemur margt spennandi úr smiðju Mercedes-Benz um þess- ar mundir. Sportjeppinn GLE Coupé hefur verið kynntur til leiks og hann kemur með mörg- um spennandi vélum. Öflug- asta útfærslan er 63 AMG og þá kemur sportjeppinn einnig sem 450 AMG sem er nýr og góður valkostur. Auk þess verður GLE Coupé í boði sem 350d og þá með 260 hestafla dísilvél. Nýr GLE Coupé er sterklegur ásýndum og með aðlaðandi formlínum. Þakl- ínan hallar að aftanverðu sem gefur honum sportlegt coupé-út- lit. Innanrýmið er vandað og vel búið tækni og lúxus. Sportjepp- inn er vel búinn búnaði og í boði með ýmsum aflmiklum vélum. AMG útgáfan 557 hestöfl 63 AMG útfærslan er með 5,5 lítra, V8 vél með tveimur for- þjöppum og aflmeiri en áður. Í grunngerð skilar vélin 557 hest- öflum. Hröðun úr kyrrstöðu er 4,3 sekúndur sem er eftirtekt- arvert í ljósi stærðar og þyngd- ar bílsins. Vélin er fáanleg enn aflmeiri í hinni feikna sportlegu S-Model útfærslu og er þá heil 585 hestöfl. Við þetta fer hröðun úr kyrrstöðu 100 km niður í 4,2 sekúndur sem er á við fremstu sportbíla í fólksbílastærð. Undir- vagni bílsins var enn fremur breytt í því augnamiði að skila enn betri aksturseiginleikum og snerpu. Viðbragð frá vél og gírskiptingu er sportlegra en nokkru sinni fyrr og undirstrik- ar vel aðalsmerki AMG Driv- ing Performance. Fyrstu GLE Coupé- bílarnir koma til landsins á næstu dögum en bíllinn verður frumsýndur hér á landi í byrjun næsta árs samkvæmt upplýsing- um frá Bílaumboðinu Öskju, sem er umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi. aFlmikill gle Coupé Þriðji ársfjórðungur var General Motors ábatasamur því allt frá því að bandaríska ríkið bjarg- aði fyrirtækinu frá gjaldþroti árið 2009 hefur GM ekki skil- að meiri hagnaði á einum árs- fjórðungi. Hagnaður GM nam 170 milljörðum króna. Hagnað- ur GM hefði orðið miklu meiri ef ekki hefði komið til mikilla bóta- greiðslna vegna galla í ræsibún- aði GM-bíla sem olli 124 dauðs- föllum á undanförnum árum. Sala bíla GM í Bandaríkjun- um hefur verið með eindæm- um góð og mikill hagnaður af rekstri þar, eða 11,8% á þessum síðasta ársfjórðungi. Ekki hefur þessi tala heldur verið hærri frá árinu 2009. Hlutabréfaverð í GM hækkaði um 4% við birtingu þessa góða árangurs GM. Enn tap í Evrópu Góður söluárangur náðist einn- ig í Kína þrátt fyrir að kóln- að hafi aðeins í bílamarkaðn- um þar. GM hefur lengi tapað á rekstri í Evrópu en tapið þar minnkað úr 387 milljón dollur- um í fyrra í 231 milljón í ár. Það er ekki síst batnandi gengi Opel sem hjálpað hefur til við þennan bata. GM áætlar að reksturinn í Evrópu skili hagnaði á næsta ári. Reksturinn í Suður-Ameríku versnaði á milli ára og nam tapið 217 milljón dollurum, en var 32 milljónir í fyrra. Hagnaður GM ekki hærri frá gjaldþroti Volkswagen Passat af langbaksgerð. Sú var tíðin fyrir komu flestra jepplinga nútímans að milli- stærðarbílar eins og Volks- wagen Passat og Ford Mondeo seldust eins og heitar lummur í Evrópu og alls seldust 866.000 bílar í þessum stærðarflokki bíla árið 2011 í Evrópu. Eftir til- komu sífellt fleiri jepplinga hall- aði undan sölu þessara milli- stærðarbíla og í fyrra seldust 543.607 slíkir bílar í álfunni. Því er þó spáð að sala slíkra bíla muni verða um 600.000 árin 2015 til 2018 og því eru þeir aftur að sækja í sig verðið. Mesta breyt- ingin í sölu slíkra bíla er þó fólg- in í því að flestir kaupendur þeirra velja langbaksútfærslur þeirra, eða um 60% í fyrra en það hlutfall var aðeins 30% árið 2000. Kaupendur þeirra meta góða flutningsgetu þeirra en margir þeirra hafa meira flutn- ingsrými en jepplingar og að auki eru þessir bílar flestir ódýr- ari en þeir og með meiri aksturs- getu. 90% millistærðarbíla í Þýskalandi langbakar Í Þýskalandi velja kaupendur millistærðarbíla í 90% tilfella langbaksútfærslurnar, en hlut- fallið í öðrum löndum er þó lægra en vaxandi. Í Bretlandi er það 37% en aðeins 28% á Spáni. Sví- þjóð er með hæsta hlutfallið í Evrópu með 95% bílanna í lang- baksútfærslu og á Ítalíu eru þeir 90% líkt og í Þýskalandi, en í Frakklandi eru þeir 52%. Lang- flestir millistærðarbílar seld- ust í Þýskalandi í fyrra eða 143.524. Næst þar á eftir er Bret- land með 95.197, svo Frakkland með 53.592, Spánn með 31.955, Pólland með 26.895 og Svíðþjóð með 25.676. Í tilviki söluhæsta bíls Evrópu í þessum flokki bíla, Volkswagen Passat, seljast 79% þeirra í langbaksútfærslu og á salan í heimalandinu Þýskalandi þar mestan hlut. Samsvarandi hlutfall fyrir Ford Mondeo, næst söluhæsta bílinn, er 52%. 40% söluaukning Passat og 57% á Mondeo Í ár hefur sala í flokki milli- stærðarbíla vaxið um 12% á fyrri helmingi þessa árs og á tilkoma nýrra kynslóða Volkswagen Pas- sat, Ford Mondeo og fleiri bíla mikinn þátt í því. Söluhæsti bíll- inn er sem fyrr segir Volkswagen Passat og seldust 111.292 slíkir á þessum fyrstu 6 mánuðum árs- ins og jókst sala hans um 40% frá fyrra ári. Næstsöluhæsti bíllinn er Opel Insignia með 49.243 bíla en sala hans minnkaði um 5% á sama tíma. Þriðji söluhæsti bíll- inn er Ford Mondeo með 41.215 bíla og seldust 57% fleiri bílar en í fyrra. Í fjórða sæti er Peugeot 508 með 24.471 (7,3% aukning) bíl, svo Skoda Superb með 24.362 (1,3% aukning) bíla og Mazda6 í sjötta sæti með 15.948 (8,3% minnkun) bíla. langbakar 60% aF stærri Fólksbílum í eVrópu Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24 105 Reykjavík Sími 512 5000 Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Sími 512 5457 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.isBílAr visir.is/bilar bílar Fréttablaðið 2 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.