Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 18
www.visir.is/bilar
Bílar Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Sala nýrra bíla í Bandaríkjun-
um í ár hefur verið einkar góð og
þrátt fyrir að sölutölur fyrir ný-
liðinn október séu ekki komnar
í hús er búist við því að hann
verði sá næst söluhæsti frá upp-
hafi. Spáð er allt að 1,42 milljóna
bíla sölu og að heildarsala árs-
ins stefni í 17,3 til 17,6 milljón-
ir bíla. Ef salan nær 1,42 millj-
ónum væri það 12% aukning frá
fyrra ári. Árið 2001 náði sala bíla
í október 1,7 milljónum bíla. Það
voru svokölluð 0% bílalán sem
kynnt voru í kjölfar 9/11 hryðju-
verkaárásanna í þeim mánuði
sem örvaði svo stórlega söluna.
Besta söluár nýrra bíla í Banda-
ríkjunum var aldamótaárið 2000
en þá seldust 17.402 milljónir
bíla.
Enn stærra bílasöluár á næsta ári
Árið í ár gæti hæglega náð þeirri
tölu og búist er við því að næsta
ár verði enn meira bílasöluár og
spár til þess bærra aðila er 17,8
milljón bílar. Í fyrri hluta októ-
ber voru 58% seldra nýrra bíla
pallbílar, jepplingar og jeppar og
svo virðist sem eingöngu hefð-
bundnir fólksbílar renni ekki út
sem heitar lummur. J.D. Power
spáir 15% söluaukningu pallbíla,
jeppa og jepplinga og 2,6% sölu-
minnkun fólksbíla í október og
væri það í takti við sölu ársins
fram að þessu. Fyrirtækið spáir
að Volkswagen-bílafjölskyld-
an muni auka söluna um 5,1%
þrátt fyrir dísilvélasvindlið, en
góð sala Audi-bíla muni vega upp
söluminnkun Volkswagen-bíla.
J.D. Power spáir því enn frem-
ur að GM, Ford og Fiat Chrysler
muni auka markaðshlutdeild sína
í október en Toyota, Honda og
Nissan tapi hlutdeild. Það eru því
bjartir tímar hjá bandarískum
bílaframleiðendum á meðan þeir
japönsku verja sína hlutdeild.
Búist við næst-
söluhæsta októBer
Stefnir í álíka mikla heildarsölu og metárið 2000, en þá
seldust 17,4 milljónir bíla. Spáð er enn meiri sölu á næsta ári.
Pallbílar, jeppar og jepplingar rjúka nú út í Bandaríkjunum.
Það er ekki óalgengt að bílaframleiðendur framleiði bíla fyrir ein-
stök markaðssvæði og Fiat er nú að markaðssetja þennan smáa
pallbíl fyrir Brasilíubúa. Fiat hefur reyndar ekki verið þekkt fyrir
framleiðslu pallbíla, en þar sem Chrysler og Jeep tilheyra nú Fiat-
samstæðunni er aldrei að vita nema mikil breyting verði á. Bíllinn
heitir Toro og er byggður á sama undirvagni og Jeep Renegade, en
er 66 cm lengri, en 25 cm styttri en Ford Ranger. Hann má fá með
138 hestafla bensínvél og 170 dísilvél og bæði framhjóladrifinn og
fjórhjóladrifinn. Fiat Toro getur togað aftanívagn allt að einu tonni,
sem telst þó ekki mikið miðað við stóra bandarísku pallbílana, en
hér er miklu minni bíll á ferð. Hann tekur fimm í sæti og Fiat segir
að þar ferðist fólk í heilmiklum lúxus. Fá má bílinn í þremur út-
færslum, Urban, Adrenaline og Country. Með dísilvélinni má velja
milli 6 gíra beinskiptingar eða 6 gíra sjálfskiptingar. Hann má velja
með LED-aðalljós, þokuljós, með varnarhlífum fyrir undirvagn,
fimm tommu upplýsingaskjá og topplúgu. Í fyrstu mun þessi pallbíll
aðeins fást í Brasilíu, hvað sem síðar verður.
Fiat-pallbíll fyrir Brasilíu
Audi á stærstu bílvélaverksmiðju Ungverjalands, nánar tiltekið í
Györ. Þar eru smíðaðir Audi-bílarnir Audi TT og Audi A3, auk gríð-
armagns véla Audi fyrir mun fleiri bílgerðir. Þessi verksmiðja Audi
er stærsta útflutningsfyrirtæki í Ungverjalandi. Audi ætlar ekki
að láta þar við sitja, heldur auka við fjárfestingu sína í Györ og það
upp á 148 milljarða króna. Þessi aukning mun skapa 380 ný störf í
verksmiðjunni. Það skyggir aðeins á dýrðina hvað þessa verksmiðju
varðar að í henni voru framleiddar þrjár milljónir af þeim ellefu
milljónum véla sem Volkswagen-bílafjölskyldan er nú sek um að
tengja við svindlhugbúnað. Af því hafa Ungverjar haft áhyggjur, en
þar á bæ vissu menn ekki að vélar þeirra yrðu tengdar við þennan
hugbúnað sem slekkur á mengunarvarnarbúnaði vélanna þegar þær
eru ekki mældar á trillum. Mercedes Benz framleiðir 100.000 bíla í
Ungverjalandi á hverju ári og Opel 80.000 bíla.Í Ungverjalandi eru
nú um 7.000 fyrirtæki sem fjármögnuð hafa verið með fé frá Þýska-
landi og samstarf ríkjanna er mikið á sviði framleiðslu og viðskipta.
audi fjárfestir fyrir 148
milljarða í Ungverjalandi
Það er ekki á hverjum degi sem sigurbíll í mótaröðinni World Rally
Chamionship (WRC) er til sölu en það er bíll Norðmannsins Petters
Solberg nú. Hann keppir nú á þessum bíl í WorldRX-mótaröðinni
og er efstur ökumanna þar og þarf aðeins að enda meðal fjögurra
efstu manna í síðustu keppninni til að tryggja sigurinn í mótaröð-
inni þetta árið. Það er hins vegar að auki að frétta af Petter Solberg
að hann hefur nýverið afþakkað að aka fyrir Toyota í París-Dakar
þolakstrinum og helsta ástæða þess er að hann telur sig ekki hafa
nægan tíma til að æfa sig fyrir kappaksturinn, sem hefst í byrjun
næsta árs, og að aðlagast nýjum bíl. Hann hefur þó ekki slegið loku
fyrir það að aka í keppninni árið 2017.
Citroën-sigurbíll
Petters Solberg til sölu
Mercedes Benz kynnti þennan
strumpastrætó á bílasýningunni
í Tókýó, sem hófst um miðja síð-
ustu viku. Þarna fer straumlínu-
lagaður afar tæknivæddur bíll.
Farþegar hans þurfa ekki að aka
honum, heldur fremur leika sér
í öllum tæknibúnaðinum sem í
bílnum er. Grill bílsins er upp-
lýst og á að skipta litum eftir því
sem hvers konar tónlist farþeg-
arnir velja sér. Ytra útlit bílsins
er naumhyggjulegt og einfalt en
afar straumlínulagað. Innanrým-
ið er hins vegar afar þægilegt
fyrir þá fimm farþega sem bíll-
inn tekur. Farþegarnir ganga inn
um vængjahurð og setjast ekki
í hefðbundin bílsæti heldur afar
þægilega bekki sem líkjast frek-
ar sófum. LED-skjáir eru í hlið-
um bílsins til afþreyingar fyrir
farþegana og sci-fi holographic
afþreyingarkerfi er einnig í bíln-
um. Komi til þess, í einhverj-
um tilvikum, að einhver þurfi að
aka bílnum sprettur fram stýri
og bílstjórasæti úr einum sóf-
anum. Drifrás bílsins saman-
stendur bæði af vetnisbrennandi
mótor og rafmótorum með 980
km drægni og eru 190 km þess
eingöngu á rafmagni.
sjálfakandi framtíðar-
sýn Benz í tókýó
Bílar
Fréttablaðið
4 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR