Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.11.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.11.2015, Qupperneq 20
3,01 l bensínvél og rafmótor- ar, 416 hestöfl Fjórhjóladrif Eyðsla 3,4 l/100 km í bl. akstri Mengun 79 g/km CO2 Hröðun 5,9 sek. Hámarkshraði 243 km/klst. Verð 13.490.000 kr. Umboð Bílabúð Benna l Ekkert varadekk Porsche cayenne s hybrid kEMUr á óVart Hve sportlegir eiginleikar eru í þessum jeppa Hversu mikið rífandi afl er í bílnum Að þessi gerð Cayenne skuli vera ódýrasta gerð hans Porsche cayenne s hybrid Finnur Thorlacius reynsluekur S jaldan áður hefur læðst að mér sú til­ finning að aka bíl sem hefur allt sem kröfu­ harður ökumaður óskar sér, en það gerð­ ist í tilfelli reynslu­ aksturs Porsche Cayenne S Hyb­ rid. Þessi bíll er rammur að afli með sín 416 hestöfl og er svo góður akstursbíll að engu er lík­ ara en að vera með góðan sport­ bíl í höndunum. Hann er algjör­ lega troðinn lúxus eins og eðlilegt má reyndar telja með Porsche­bíl og að auki svo fallegur að eftir er tekið, sérstaklega að innan. Hann er Plug­In­Hybrid bíll sem ekur á rafmagni allt að 36 fyrstu kíló­ metrunum og hleður að auki inn allt það afl sem annars myndi tapast við hemlun. Hann er jeppi sem kemst talsvert í ófærum og reynsluakstursbíllinn var á loft­ púðafjöðrum, en það leyfir öku­ manni að hækka bílinn svo að 30 cm eru undir lægsta punkt. Hann er frábær ferðabíll sem fimm far­ þegar ferðast í með miklum stíl og auk þess tekur hann mikinn farangur. Bíllinn eyðir 3,4 lítrum og er það náttúrulega með hrein­ um ólíkindum fyrir svo stóran jeppa. Hvað getur maður beðið um meira? Hann mengar að auki aðeins 79 g/km af CO2 og fellur því í hagstæðan vörugjaldsflokk. ekki dýr vegna lágra vörugjalda Fyrir þetta allt hlýtur fólk að greiða ógnarupphæð, en viti menn, svo er alls ekki. Þessi magnaði bíll kostar ekki mikið meira en aðrir lúxusjeppar sem boðnir eru hér á landi nú. Hann kostar 13.490.000 kr. en svip­ aða upphæð þarf að greiða fyrir margan annan jeppann sé hann með eitthvað í nánd við allan þann búnað sem fyrirfinnst í honum þessum. Það sem gerir það að verkum að þessi bíll er á svo góðu verði eru þau lög sem gilda hér á landi um bíla sem menga lítið, og er það vel. Þar sem mengun þessa bíls er svo lág fellur hann í ljúfan vörugjalds­ flokk á meðan aðrir jeppar falla flestir í háa vörugjaldsflokka, allt að 65%. Forvitnilegt er að bera saman verð á þessum bíl í Einn mEð öllu Porsche Cayenne S Hybrid er allt í senn sportbíll, torfærubíll, ferðalagabíll, glæsibíll, sparibaukur, lítið mengandi og á fínu verði. Er ódýrasta gerð Porsche Cayenne. Porsche Cayenne S Hybrid er auðþekkjanlegur á grænum bremsubúnaðinum. mynd/Vilhelm JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Bílar Fréttablaðið 6 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.