Fréttablaðið - 03.11.2015, Blaðsíða 22
Þann 21. október árið 1965
kynnti Subaru þennan Subaru
1000 bíl á Hilton-hótelinu í
Tókýó og átta dögum síðar á
Tokyo Motor Show. Þessi bíll
markaði mikil tímamót hjá Sub-
aru, en þetta var fyrsti bíll fyr-
irtækisins sem ekki var smá-
bíll, eða svokallaður „kei car“.
Bíllinn var á þessum tíma afar
tæknilega vel búinn og hönnun
bílsins markaði tímamót í fram-
leiðslu bíla Subaru. Þessi bíll
breytti líka miklu fyrir mögu-
leika Subaru á útflutningi bíla.
Þegar bíllinn var kynntur voru
ekki nema átta ár síðan Subaru
framleiddi sinn fyrsta bíl, Sub-
aru 360, en hann var fjórhjóla-
drifinn kei-bíll.
Markaðurinn krafðist stærri bíla
Þegar Subaru 1000 bíllinn var
kynntur var að myndast mikil
þörf á meðal japanskra kaup-
enda fyrir stærri og þægilegri
bíla með meiri tækni og Sub-
aru 360 uppfyllti ekki þá þörf.
Subaru hafði reyndar byrjað að
hanna bíl í stíl við Subaru 1000
árið 1954, bíl sem byggður var á
plötu en ekki grind. Hann átti þó
að vera með vél frá Peugeot en
Fuji Heavy Industries, eigandi
Subaru, hætti við að nota hana
og smíðaði þess í stað vél sem
var 20% léttari, án þess að tapa
afli. Ekta Japanar þar á ferð. Úr
varð bíll sem fékk nafnið Subaru
1500 og vitnaði í sprengirými
bílsins. Aðeins voru framleidd
tuttugu eintök af bílnum sem
flest voru notuð sem leigubílar
í borginni Gunma í Japan. Hætt
var við smíði bílsins og myndað
rými fyrir smíði Subaru 360, þar
sem ekki var markaður talinn
fyrir þetta stóran bíl enn, en það
átti eftir að breytast. Enn var þó
haldið áfram að þróa 1500-bílinn
og fékk hann vinnuheitið A-5.
Átti að uppfylla fimm skilyrði
Bíllinn átti að uppfylla fimm
skilyrði. Hann átti að vera rúm-
góður og þægilegur að innan,
með mikið skottrými. Halda átti
þyngd bílsins niðri og auðvelt
átti að vera að gera við hann og
aðgengi til viðgerða og skoð-
ana á viðhaldshlutum átti að
vera gott. Sjálfstæð fjöðrun átti
að vera á öllum hjólum til að
tryggja góða aksturseiginleika
og stöðugleika bílsins. End-
ing hans átti að skara fram úr.
Miklar prófanir áttu svo að fara
fram á bílnum við lítinn sem
mikinn hraða og við erfiðar
jafnt sem auðveldar aðstæður.
30 einkaleyfi úr Subaru 1000
Svo mikið var lagt í þennan bíl
að í kjölfarið sótti Subaru um 30
einkaleyfi á uppfinningum sem
finna mátti í bílnum. Mjög full-
komið kælikerfi var fyrir vélina
sem aldrei hafði sést áður. Vélin
átti að vera neðarlega í bíln-
um til að tryggja lágan þyngd-
arpunkt og góða aksturseigin-
leika. Það varð síðar til smíði
Boxer-véla Subaru og hefur
verið eitt aðalsmerkja Subaru-
bíla síðan. Öll sú vinna sem fór
fram við þróun þessa bíls skil-
aði sér síðan í framtíðarbílum
Subaru sem allar götur síðan
hafa verið afar áreiðanlegir og
tæknilega sniðugir bílar.
50 ár frá tíma-
mótabíl Subaru
Fyrsti bíll Subaru sem ekki var smábíll
og undanfari geysivinsælla bíla Subaru.
Þrátt fyrir dísilvélasvindl
Volkswagen heldur dótturfyrir-
tækinu Audi áfram að ganga
vel og ræður nú fólk í löngum
bunum. Audi var alls ekki
laust við dísilvélasvindlið því
2,1 milljón Audi-bíla var ein-
mitt með svindlhugbúnaðinn
og verða þeir allir innkallað-
ir. Audi heldur þó sínu striki og
eftirspurnin eftir bílum fyrir-
tækisins er áfram mikil og svo
góð að Audi ræður áfram fólk
eins og til stóð áður en svindlið
uppgötvaðist. Audi hefur margt
nýtt á prjónunum, meðal ann-
ars nýjan Audi A4, nýjan Audi
TT RS og Audi E-Tron Quattro
rafmagnsbíl sem er glænýr bíll
frá Audi. Enn fremur áætlar
Audi að starfsfólk í verksmiðj-
um Audi verði verðlaunað með
vænum bónus við árslok eins
og á síðustu árum. Það muni
ekki breytast þó svo dálkar
flestra fjölmiðla séu uppfullir
af fréttum um dísilvélasvindl
Volkswagen.
Audi heldur áfram að ráða
Nýi sportjeppinn Hyundai Tuc-
son var nýlega valinn í undan-
úrslit þar sem keppt verður
um titilverðlaun AUTOBEST
2016. Það var dómnefnd 26 bíla-
blaðamanna í Evrópu sem valdi
Tucson til að keppa um titil-
inn „bestu bílakaupin í Evrópu
2016“ og er tilnefningin enn ein
skrautfjöðrin í hatt Hyundai
fyrir vel heppnaða hönnun sem
móttökur á öllum helstu mörk-
uðum bera vitni um. Tucson
er flaggskip sportjeppa í Evr-
ópulínu Hyundai sem einkenn-
ist af svipmikilli hönnun, sumir
segja ábúðarfullu svipmóti, þar
sem mikið rými, tækninýjung-
ar, munaður og snjallar lausnir
fara saman ásamt góðu og sam-
keppnishæfu verði.
Búið að panta 61 þúsund bíla
Á þeim skamma tíma sem lið-
inn er frá Evrópukynningu Tuc-
son, sem fram fór í september,
er sportjeppinn nú þegar orð-
inn einn mest seldi bíll Hyundai
á meginlandinu. Meira en 61
þúsund bílar hafa verið pantað-
ir og hefur enginn bíll frá Hy-
undai hlotið viðlíka móttökur á
jafn skömmum tíma og Tucson
hefur afrekað. Hyundai Tuc-
son var hannaður á teikniborði
Hyundai í Evrópu þar sem hann
er einnig framleiddur, nánar til-
tekið í Tékklandi.
Autobest-samtökin hafa ný-
lega útvíkkað starfsemi sína.
Sem dæmi um það er núver-
andi dómnefnd sett saman
með þeim hætti að hún endur-
spegli sem best dreifingu fólks-
fjölda í Evrópu. Þannig koma
nú hinir 26 dómarar sem sitja
í valnefndinni frá löndum þar
sem 91% íbúa Evrópu býr. End-
anlegt val á bestu bílakaupun-
um 2016 í Evrópu verður kunn-
gert 15. desember eftir ítar-
legar og strangar prófanir á
reynsluakstursbrautinni Navak,
skammt frá Belgrad í Serbíu.
tilnefndur Sem „beStu
bílakaupin í evrópu“
Gríðarleg sala á Hyundai Tucson og 61.000 eintök þegar pöntuð.
Volkswagen mun líklega skila
465 milljarða króna tapi á
þriðja ársfjórðungi þessa árs
og yrði það í fyrsta skipti á síð-
astliðnum 15 árum. Nýráð-
inn forstjóri Volkswagen þarf
einnig að svara spurningum
fjárfesta í fyrirtækinu hvern-
ig fyrirtækið kemur til með að
vinna aftur traust viðskipta-
vina í kjölfar dísilvélasvindls-
ins. Volkswagen skilaði um
það bil sömu upphæð í hagn-
að á síðasta ári og tapið nemur
nú. Það sem skýrir tapið nú
er að Volkswagen hefur sett
930 milljarða króna til hlið-
ar vegna kostnaðar í kjöl-
far dísilvélasvindlsins. Ef svo
hefði ekki verið hefði Volks-
wagen skilað ámóta hagnaði og
í fyrra.
Óljóst hver kostnaðurinn við
dísilvélasvindlið verður
Því hefur þó verið spáð að
kostnaðurinn verði þrefalt
hærri og allt upp í tólf sinn-
um hærri. Ef svo færi er
talið nokkuð víst að fyrirtæk-
ið verði að selja frá sér eign-
ir og leita hugsanlega líka
til fjárfesta um frekara fjár-
magn. Heildarfall hlutabréfa
í Volkswagen nemur nú 3.000
milljörðum króna og því er
von að fjárfestar í fyrirtæk-
inu séu ekki með kátasta móti.
Forstjóri Volkswagen segir að
fyrirtækið geti jafnað sig á
svindlinu á tveimur til þrem-
ur árum með því að taka rétt-
ar ákvarðanir, straumlínulaga
fyrirtækið og gera því kleift
að taka snöggar ákvarðanir án
þess að þær verði stöðvaðar af
yfirstjórn þess, en með þess-
um orðum ýjar hann að því að
erfitt hafi verið undanfarin ár
að koma réttum ákvörðunum í
gegn vegna stífni að ofan.
volkSwagen með fyrSta
fjórðungStapið í 15 ár
Skýrist af því að Volkswagen hefur sett 930 milljarða króna til
hliðar vegna dísilvélasvindlsins en annars hefði orðið hagnaður.
Volkswagen-bílafloti fyrir utan eina verksmiðjuna.Audi E-Tron
Subaru 1000 markaði mikil tímamót í bílasmíði fyrirtækisins.
Hyundai Tucson hefur fengið frábærar viðtökur á stuttum tíma.
bílar
Fréttablaðið
8 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR