Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 23
A
rctic Track ehf. er
ungt fyrirtæki sem
þjónustar alla þá
sem áður voru tengd
ir með ökuritum við
flotastjórnunarkerfið
SAGAsystem. Undan
farin þrjú ár hefur verið unnið að
auknu framboði á þjónustuleið
um sem nýta má með tengingu
ökurita í ökutæki landsins. Arctic
Track ehf. er dótturfélag Securi
tas hf. og að fullu í eigu þess. Að
sögn Hlyns Rúnarssonar, fram
kvæmdastjóra fyrirtækisins,
gefur samvinna við móðurfélagið
þeim kleift að veita viðskiptavin
um frábæra þjónustu hvort sem
starfsemi þeirra er á höfuðborg
arsvæðinu eða utan þess.
„Við höfum kappkostað að velja
trausta birgja hvort sem það á við
um efniskaup, fjarskipti og ekki
síst örugga aðila við vistun tölvu
véla og hugbúnaðar þar sem við
leggjum ríka áherslu á gagna
öryggi og persónuvernd.“
Meðal viðskiptavina AT Track
eru bílaleigur en undanfarin ár
hafa verið settir ökuritar í bíla
leigubíla af öllum stærðum.
„Ökuritinn greinir hvort bíla
leigubíllinn hafi orðið fyrir höggi
þannig að hægt er að skoða bíl
inn betur þegar honum er skilað.
Þannig er hægt að kanna hvort
tjón hafi orðið á viðkvæmum
hlutum í undirvagni hans, eins og
stýrisbúnaði, áður en að hann fer
aftur í útleigu.“
Kerfið greinir hvort bíllinn
hafi farið út á fyrirfram ákveðin
„rauð svæði“ eins og alla hálend
isvegi landsins (Fvegi) auk þess
sem það greinir hvort akstur bíla
eigi sér stað utan vega. „Um leið
aðstoðar kerfið starfsfólk bíla
leigunnar að finna viðkomandi
bíl í rauntíma, hvort sem þörf er
á aðstoð vegna bilunar eða hrein
lega til að sækja bílinn þar sem
hann hefur verið skilinn eftir.“
Nýtist ungum ökumönnum
ATkerfin geta einnig nýst for
eldrum og ungu fólki til að verða
fyrirmyndarökumenn. „Þau
halda utan um hámarkshraða
allra gatna og greina hvort bíl sé
ekið yfir hámarkshraða. Þann
ig er það hluti af einkunnagjöf
ökumannsins ásamt þeim frá
vikum sem hann veldur eins og
grófri hröðun, hemlun og kröpp
um beygjum.“
Um leið birtast öll frávik og
akstur yfir leyfðum hámarks
hraða myndrænt á korti þar sem
fram kemur hver villan er, t.d.
„Hraði: 72, Götuhraði: 50, Gata:
Ánanaust“. Með því móti hafa
forráðamenn og ungu ökumenn
irnir umræðugrundvöll til að
ræða saman um hvernig betur
má fara á sanngjarna hátt.
„Þetta auðveldar líka ungum
ökumönnunum að láta ekki undan
þrýstingi „aftursætisbílstjóra“
um að sýna hvað bíllinn kemst
hratt. Þannig er hægt vísa til
þess að bíllinn sé útbúinn öku
rita og að líkurnar á að fá bíl
inn lánaðan aftur minnki tölu
vert ef ekki er farið eftir settum
reglum.“
Aukin umhverfisvitund
Fyrirtæki sem reka bílaflota hafa
einnig mikinn hag af ATkerfunum
að sögn Hlyns. „Með því að fækka
óþarfa frávikum og minnka hrað
akstur starfsmanna á bílum fyrir
tækja, eykst ending á öllum slit
flötum bílsins á borð við bremsur,
stýrisbúnað, hjólbarða og ekki síst
lækkun eldsneytiseyðslu.“
Einnig má með þessu móti stuðla
að frekari umhverfisvitund öku
manna fyrirtækja að sögn Hlyns.
„Ökuritinn gerir okkur kleift að
mæla hvort bíll er látinn ganga í
lausagangi og með því getum við
minnkað óþarfa mengun og elds
neytiseyðslu. Starfsmenn geta
fengið aðgang að þeim bíl sem þeir
hafa aðgang að í gegnum Góðakst
urskerfi AT og fylgst sjálfir með
hvernig þeir hafa keyrt og hvar
þeir geta helst bætt sig.“
Aukin þjónusta
Rekstrarleigufélög nýta sér
einnig þjónustu AT með því að
fá til sín upplýsingar um fjölda
ekna kílómetra þannig að hægt
er að kalla þá bíla og tæki sem
þau eru með í rekstrarleigu
inn í þjónustuskoðun þegar við
á. Þessi gögn berast rafrænt
inn í kerfi rekstrarleigufélag
anna þannig að ekki er um neina
aukaskráningu að ræða.
Bílaumboð og verkstæði geta
einnig bætt þjónustu sína með
Þjónustubókinni sem er ein af
þjónustuleiðum AT. „Þar geta
bílaumboð og verkstæði boðið
viðskiptavinum sínum aukna
þjónustu og kallað inn bíla sem
t.d. eiga að fara í smurningu,
ábyrgðarskoðun eða aðra lög
bundna skoðun.“
Réttlátari gjaldheimta
Með breyttri orkunotkun öku
tækja eykst þörfin á að breyta
fyrirkomulaginu við inn
heimtu veggjalda enda erfitt
að innheimta eldsneytisgjald
af bílum sem ekki nýta brenn
anlega orkugjafa. „Rafræn
ar mælingar á akstri ökutækja
stuðla að réttlátari gjaldheimtu
veggjalda, hvort sem um er að
ræða fólksbíla, vöruflutninga
bíla, rútur eða önnur tæki sem
aka um vegi landsins. Auk þess
er hægt að dreifa álagi umferð
ar á gatnakerfi landsins með
fleiri gjaldsvæðum og upp
lýsingum um hvenær dags er
ekið.“
Vegtolla vegna framkvæmda
nýrra mannvirkja má einnig
innheimta með rafrænum skrán
ingum frá ökuritum bílsins að
sögn Hlyns. „Þá er ekkert því til
fyrirstöðu að nýta ökurita í bíla
leigubílum og öðrum fólksflutn
ingabílum sem aka með ferða
menn á þá staði sem þörf er á
gjaldheimtu. Með því móti þarf
ekki að koma upp hliðum og
girðingum né öðrum búnaði á
hverjum stað fyrir sig með til
heyrandi kostnaði og mannafla.“
Frábær þjónusta með hjálp ökurita
Bílstjórar, bílaleigur og fyrirtæki með bílaflota geta nýtt ökurita sem tengdir eru við
flota stjórnunar kerfið SAGAsystem á fjölbreyttan hátt. AT-kerfið greinir tjón á bifreiðum, hvort bíllinn
hafi verið keyrður utan vega og aðstoðar ungt fólk við að verða fyrirmyndarökumenn.
„Við höfum kappkostað að velja trausta birgja hvort sem það á við um efniskaup, fjarskipti og ekki síst örugga aðila við vistun tölvuvéla og hugbúnaðar þar sem við leggjum ríka
áherslu á gagnaöryggi og persónuvernd,“ segir Hlynur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Arctic Track ehf. MYND/STEFÁN
Kynning
Fréttablaðið
9bílarÞRIÐJUDAGUR 3. nóvember 2015