Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 24
volvo v60 cross country
Finnur thorlacius reynsluekur
S
ú aðferð að hækka bíla
á fjöðrunum, stækka
stuðarana og bæta við
hlífðarplötum hér og
þar til að gera bílinn
kraftalegri og líklegri
til átaka er ekki ýkja
flókin aðgerð, en þetta er einmitt
aðferðin sem beitt var við fyrstu
Subaru Outback og Audi All-
road-bílana og það svínvirkaði.
Af hverju ætti það ekki líka að
virka fyrir Volvo? Reyndar gerði
Volvo þetta fyrst árið 1997 með
V70 langbakinn og kallaði bíl-
inn þá Volvo V70 Cross Country.
Þessum V60 Cross Country skal
þó ekki rugla saman við aðra XC-
bíla Volvo, en þeir eru líkari jepp-
lingum eða jeppum nútímans á
meðan þessi bíll er enn nær fólks-
bílum þrátt fyrir aukna veg-
hæð. Volvo V60 Cross Country
er með 6,5 cm meiri veghæð en
hefðbundinn V60 og einnig má fá
þann bíl með fjórhjóladrifi, líkt
og V60 Cross Country. Hann fæst
þó einnig framhjóladrifinn og
þannig var reynsluakstursbíllinn.
V60 Cross Country kemur hins
vegar á 18 eða 19 tommu felgum
með stærri dekk til að þola meiri
torfærur auk þess að vera með
brekkuaðstoð og leiðsögukerfi
sem staðalbúnað. Aðrar minni-
háttar útlitsbreytingar fylgja
einnig.
stóð sig vel í talsverðri ófærð
Þegar Volvo V60 Cross Country
var reyndur fyrir stuttu fékk
hann bæði að kynnast malbikinu
vel en einnig afar slæmum vegi
á leið í hjólatúr yfir Svínaskarð
milli Skálafells og Móskarðs-
hnjúka. Fyrir það fyrsta reyndist
ekki mikið mál að koma hjólinu
inn í bílinn án þess að taka hjól af
því, en til þess þarf að fella aft-
ursætin. Vegurinn þangað var
hinn mesti hroði en það verð-
ur ekki sagt annað en að þessi
bíll hafi staðist prófið þar sem
hann fór fimlega yfir mýmarga
og djúpa drullupollana sem á
vegi hans urðu sem og afar gróf-
an veg í öllum skilningi. Þessi
bíll var hinn besti ferðafélagi og
átti greinilega meira inni ef færð-
in hefði versnað enn meir. Veg-
hæðin leyfði það að aka nokkuð
djarflega og fjöðrun hans var til
fyrirmyndar. Það vakti eftirtekt
hvað hann var hljóðlátur og ekk-
ert heyrðist í undirvagni bílsins,
en slíka kröfu er óhætt að gera
þegar lúxusbíll er annars vegar,
en allir bílar Volvo falla í þann
flokk. Aðeins varð vart við und-
irstýringu þegar mikið er á hann
lagt en hann bætir það eiginlega
upp með annarri lipurð og það er
ekki frá því að akstur þessa netta
bíls sé ánægjulegri en stærri
bræðra hans úr Volvo-fjölskyld-
unni.
spræk en þyrst dísilvél
Aflleysi hrjáir ekki bílinn með
D4-dísilvélinni, en hún reynd-
ist aðeins of þyrst. Aldrei sást
minni meðaleyðsla en ríflega 11
lítrar þrátt fyrir að um týpísk-
an blandaðan akstur á þjóðvegum
og í þéttbýli væri að ræða. Akst-
ur á malbiki var afar ljúfur og
gaman að taka á bílnum í kröpp-
um beygjum þar sem hann hallar
sér sáralítið í þær og er eins og
góður fólksbíll hvað það varðar.
Svo sem ekki skrítið í ljósi þess
að bíllinn er hækkaður fólks-
bíll. D4-dísilvélin er nægilega
öflug fyrir þennan bíl þó gaman
væri að hafa hann með 240 hest-
afla T5-bensínvélinni eins og bíll-
inn er helst seldur vestanhafs.
Vélin er 2,0 lítra með forþjöppu
og skilar 190 hestöflum og afar
góðu 400 Nm-togi. Vélinni teng-
ist svo 8-gíra sjálfskipting sem
gerði sitt og vel það. Uppgefin
eyðsla bílsins er 4,6 lítrar en það
var reynsluakstursmanni hulin
ráðgáta hvernig hún ætti að nást
í ljósi þess að bíllinn fór aldrei
niður fyrir 11 lítra í þeim bland-
aða akstri sem ekinn var. Þessar
tölur eru kannski ein birtingar-
mynd þeirrar gagnrýni sem allir
bílaframleiðendur hafa fengið
undanfarið, að miklu muni á upp-
gefinni eyðslu og rauneyðslu.
Fæst frá 6.190.000 kr.
Framsætin í bílnum eru ferlega
góð og öll sætin falleg. Fóta- og
höfuðrými aftur í er fínt og ein-
falt og fljótlegt að fella þau niður.
Farangursrými er þokkalegt, en
hafa verður í huga að þarna fer
hækkaður fólksbíll, en ekki risa-
stór jeppi sem taka á hálfa bú-
slóð. Innréttingin í þessum bíl
er eins og almennt má segja um
Volvo-bíla, flott og snyrtileg og
sem fyrr naumhyggjuleg, einföld
og gáfulega uppsett. Þar hefur
Volvo sérstöðu og takkaflóðið er
ekki beint að þvælast fyrir. Svo
er alltaf gott til þess að vita að
öryggismálin eru alveg til fyrir-
myndar í Volvo-bílum, enda leið-
andi bílaframleiðandi þar á ferð.
Volvo V60 má fá frá 6.190.000
krónum en fyrir fjórhjóladrifsút-
gáfuna þarf að leggja um 700.000
kr. við, en þá kemur hann með 2,4
lítra dísilvél með meira togi þó
hestaflatalan sé sú sama.
Fallegur
Falleg og naumhyggjuleg
innrétting.
einFalt Mælaborð
einfalt mælaborð sem
skipta má um lit í.
stæðilegur
á vegi og veghæðin mikil.
Háfættur VolVo V60 Cross Country
Er eins konar torfæruútgáfa Volvo V60 og 6,5 cm hærri frá vegi. Reyndist góður akstursbíll með
glettilega góða torfærueiginleika og er með aflmikla en þyrsta dísilvél.
2,01 l dísilvél, 190 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla 4,6 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 120 g/km CO2
Hröðun 7,6 sek.
Hámarkshraði 220 km/klst.
Verð 6.190.000 kr.
Umboð Brimborg
l Aksturseiginleikar
l Torfærugeta
l Hljóðlátur
l Eyðsla
l Engar bensínvélar
VolVo V60
Cross Country
mynd/Vilhelm
Bílar
Fréttablaðið
10 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR