Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 26

Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 26
Renaultsport, sportbíladeild franska bílaframleiðandans Ren- ault, kynnti bílinn Renaultsport RS 01 í fyrra og var þeim bíl ætlað að leysa af hólmi Mégane Trophy-bílinn í Renault World Series og GT3-keppnisröðina. Það hefur hins vegar komið í ljós að bíllinn er alltof snöggur og hraðskreiður fyrir GT3-keppn- isröðina og því hefur Renualt- sport þurft að gera ýmsar breyt- ingar, sem flestum þætti óæski- legar, til að gera bílinn hægari og löglegan í GT3. Renaultsport RS 01 er ógnarléttur með kol- trefjayfirbyggingu frá Dallara. Hann er með 3,8 lítra vél með tveimur forþjöppum sem fram- leidd er af Nismo og fyrirfinnst einnig í Nissan GT-R bílnum og því ógnaröflugur. Renaultsport hefur hins vegar þurft að þyngja bílinn um 150 kíló, skipta kera- mikbremsunum út fyrir þyngri bremsur, hækka bílinn frá vegi og gera vindstuðul hans verri og niðurþrýsting vindkljúfanna minni. Hreint ótrúlegt að vera með frábæran bíl í höndunum og þurfa svo að draga verulega úr getu hans fyrir reglurnar í GT3- keppnisröðinni. RenaultspoRt Rs 01 of fljótuR fyRiR Gt3 Subaru er nú að framleiða 400 eintök af þessari sérútgáfu WRX STI-bílsins, sem er svo elskað- ur af Subaru-aðdáendum. Sub- aru segir að þessi bíll eigi að vera „heimsins ánægjulegasti bíll“, hvorki meira né minna og aldrei að vita nema svo sé. Þessi öflug- asta útgáfa bílsins hingað til er 320-330 hestöfl, með stillanlegri fjöðrun, gríðaröflugum Brembo- bremsum, 19 tommu sérhönn- uðum felgum, risastórri vind- skeið að framan og sjálfstæðri vindskeið að aftan. Með þeim er hann tilbúinn til brautarakst- urs, en einnig má fá bílinn án þessara vindskeiða. Framsæt- in eru að sjálfsögðu keppnissæti frá Recaro. Bíllinn kemur í fjór- um mögulegum litum, svörtum, bláum, perluhvítum og í þessum gula lit sem hér sést. Þessa sér- útgáfu er Subaru að sýna núna á bílasýningunni í Tókýó, en hún hófst í síðustu viku. 400 eintök af sérútgáfunni Subaru WRX STI S207 Stór og stæðilegur alvöru jeppi á frábæru verði! Rexton stenst allan samanburð við aðra stóra jeppa á markaðnum. Og það skín í gegn að ekkert hefur verið til sparað í frágangi og þægindum. Rexton er fullvaxinn jeppi byggður á grind og með háu og lágu drifi. Rexton er alltaf til í tuskið. Komdu og reynsluaktu nýjum Rexton. Hann er alvöru. Opið alla virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 í Reykjavík Laugardaga frá 10 til 14 í Reykjanesbæ Verið velkomin í reynsluakstur Verð: 6.890 þús kr. • Bíll byggður á grind • Millikassi með læsingu og lágu drifi • Sjálfstæð fjöðrun að framan • E-tronic 5 þrepa sjálfskipting með skiptirofum í stýri • ABS hemlakerfi • ESP stöðugleikastýring • HDC, heldur á móti niður brekkur • Tölvustýrð loftkæling • Loftpúðar í stýri, farþegamegin og í hliðum • Styrktarbitar í hurðum • 16” álfelgur • Dráttargeta 2,6 tonn • Varadekk • Langbogar á þaki • Leðurstýri með útvarpsstýringu • Hraðastillir (Cruise control) • Útvarpstæki og geislaspilari / MP3 • 6 hátalarar og USB tengi • Bluetooth tenging við farsíma • Dagljósabúnaður • Þokuljós - framan/aftan • Hæðarstillanlegt leðurstýri • Aðfellanlegir, rafdrifnir hliðarspeglar með hita • Hiti í sætum • 7 manna • Fjarstýrðar samlæsingar • Rafdrifnar rúður í fram- og afturhurðum • Opnanlegur gluggi á afturhlera • Hiti undir þurrkum í framrúðu • Vindskeið að aftan • Litað gler • Þjófavörn BYGGÐUR Á GRIND HÁTT OG LÁGT DRIF 7 SÆTA Rexton DLX • dísel túrbó • sjálfskiptur benni.is NÝR STÓRGÓÐUR Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636 2WD Há-drifs stilling 4WD Há-drifs stilling 4WD Lág-drifs stilling Bíll á mynd Rexton HLX Fiat Chrysler Automobiles hefur tilkynnt um 41 milljarðs króna tap á rekstri fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi ársins. Líkt og með Volkswagen er tap fyrir- tækisins til komið vegna þess að fyrirtækið hefur lagt til hliðar fé til að mæta kostnaði við innkall- anir bíla. Nam það fé 83 milljörð- um og því hefði orðið álíka mikill hagnaður af rekstri Fiat Chrysl- er ef þessir fjármunir hefðu ekki verið lagðir til hliðar. Í fyrra var 26 milljarða króna hagnaður af rekstri Fiat Chrysler á þessum ársfjórðungi. Mjög vel gekk hjá Fiat Chrysler í Bandaríkjunum og salan jókst um 12 prósent á milli ára og seldi fyrirtækið 685.000 bíla þar á þessum þremur mán- uðum og hagnaðist á því um 163 milljarða króna. Vænt tap annars staðar í heiminum dró niður ár- angur Fiat Chrysler, sérstaklega í Suður-Ameríku og Asíu. Heild- arsala Fiat Chrysler á þriðja árs- fjórðungi var 1,1 milljón bílar og áætluð heildarsala ársins er 4,8 milljónir bíla. Sala Jeep-bíla var 27 prósentum meiri en í fyrra, en sala Jeep hefur verið með ólíkind- um á síðustu misserum. Fiat Chrysler með tap á þriðja ársfjórðungi BílaR Fréttablaðið 12 3. nóvember 2015 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.