Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 35

Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 35
mikilvæg? Hafa stelpur rödd í nemendafélagsstjórn um? Gert er ráð fyrir líflegum umræðum og öllum frjálst að stíga í pontu. Allir framhaldsskólar boðnir hjartan- lega velkomnir. Tónlist Hvað? Jazzkvöld Sunnu Gunnlaugs Hvenær? 20.30 Hvar? Kex Hostel, Skúlagötu 28 Í kvöld mun Kvartett Sunnu Gunn- laugs troða upp á Jazzkvöldi Kex. Mun Ásgeir J. Ásgeirsson leika á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontra- bassa og Scott McLemore lemur húðir, auk Sunnu sem spilar á píanó. Verða valdir djassstandard- ar á boðstólum. Aðgangur ókeypis. Hvað? Off – Venue hátíð Lucky Records Hvenær? 14.00 Hvar? Lucky Records, Rauðarárstíg 10 Í tilefni af Airwaves-hátíðinni mun Lucky Records bjóða gestum upp á fimmtíu og fimm bönd næstu daga. Veislan hófst í gær og mun standa fram á sunnudag. Bönd dagsins eru Gímaldin, Deff- ice, Vára, Different Turns, Lord Pusswhip feat. Svarti Laxness, Vagina Boys, Otto Man, Stafrænn Hákon og Endless Dark. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Listasýning Hvað? Hvarfpunktur Hvenær? 13.00 Hvar? Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 Á laugardag var sýning á verkum Olgu Bergmann opnuð, og eru verkin skírskotun í fleiri en eina túlkun á hugmyndinni um hvarf- punkt. Verkin á sýningunni byggja líka á hugrenningum um Gaia- kenningu Lovelocks um að allt líf á jörðinni sé einn líkami eða lífvera. Stendur sýningin til 22. nóvember og er opið alla daga frá 13.00 til 17.00, nema á mánudögum. Leikhús Hvað? Ungleikur 2015 Hvenær? 20.00 Hvar? Borgarleikhúsið Ungleikur er sjálfstæður leikhópur ungra leikskálda og leikstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Skapast þar vettvangur fyrir skáld til að sjá verk sín á sviði og rækta þannig áfram hæfileika sína. Er þetta í fjórða skipið sem Ungleikur heldur sýningu í samstarfi við Borgarleik- húsið. Að þessu sinni verða fimm ný verk í boði. Aðgangseyrir 2.000 krónur. Allir velkomnir. Ungliðahreyfing Hvað? Umhverfisbíó Hvenær? 20.00 Hvar? Loft Hostel, Bankastræti 7 Ungir umhverfissinnar ásamt Lofti Hosteli bjóða öllum áhugasömum umhverfissinnum á bíókvöld í kvöld og verður myndin „This changes everything“ sýnd. Tilgang- ur myndarinnar er að hvetja ungt fólk til aðgerða. Allir velkomnir. Stafrænn Hákon mætir í Lucky Records í dag. Glæsilegur kaupauki* fyrir þig ef þú verslar Estée Lauder fyrir 7.500 krónur eða meira í Lyfju Lágmúla, Smáratorgi og Selfossi dagana 3. - 9. nóvember. Tilboðið gildir í Lyfju Lágmúla, Smáratorgi og Selfossi. 20%afsláttur af Estée Laudervörum þriðjudag og miðvikudag Advanced Night Repair – viðgerðarserum , 7ml Daywear Cream – dagkrem sem ver húðina, 15ml Advanced Night Repair Eye – alhliða augnkrem, 5ml Perfectly Clean Cleanser – froðuhreinsi, 30ml Pure Color Gloss – varagloss, litur Rock Candy Pure Color Nail Lacquer – naglalakk, litur So Vain Fallega snyrtibuddu *meðan birgðir endast Kaupaukinn inniheldur: Spínat-spergilskáls rasp 2 lófar spínat 1/2 spergilkálshöfuð 1 hvítlauksgeiri 100 g rasp 2 msk. fetaostur 1 msk. olía Safi og rifinn börkur úr 1/2 lime Salt & pipar að vild! Setjið allt saman í matvinnsluvél í örfá- ar mínútur þar til allt er komið í mauk. Að því loknu er eitt egg og svolítil mjólk pískað saman og fiskbitunum skellt ofan í. Eftir mjólkurbaðið er bit- unum rúllað vel og vandlega um í rasp- skálinni, þar til þeir eru vel hjúpaðir. Því næst er bitunum skellt á pönnu og má steikja upp úr olíu eða smjöri, allt eftir því hvað hver kýs. Þeir flipp- uðu gætu jafnvel blandað þessu saman. Steikið fiskinn í gegn og berið á borð með soðnum kartöflum. Þriðjudagsfiskur í gómsætum spínathjúpi M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19Þ R i ð J U D A g U R 3 . n ó v e M B e R 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.