Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 38

Fréttablaðið - 03.11.2015, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 1. nóvember halda þessum kjörum í eitt ár. Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is FÁÐU STÖÐ 3 Á BETRA VERÐI Í HAUST STÖÐ 3 +ENDALAUST TAL +1 GB Í GSM 1.990 kr. til 1. nóvember* „Textinn er settur saman úr mörgum sögum úr okkar sam- bandi,“ segir söngvarinn Friðrik Dór Jónsson, sem hefur enn eina ferðina slegið í gegn. Á sunnu- daginn sendi hann frá sér lagið Skál fyrir þér, sem er augljóslega samið til Lísu Hafliðadóttur, kærustu hans. „Ég samdi textann mikið í bílnum, með upptökuforritinu í símanum,“ útskýrir söngvarinn sem segist nú stefna á að gefa út meira af efni á næstunni. Samansafn af sögum Friðrik Dór segir að textinn í laginu sé safn af sögum um sambandið. „Eins og öll pör eigum við okkur margar sögur og ég vildi koma þeim til skila, setja þær í bundið form. Það var af nógu af taka og upp- runalega var lagið örugglega ein fjögur hundruð erindi,“ segir hann hlæjandi og heldur áfram: „Síðan var bara spurning um að klippa þetta niður og velja það sem mér fannst mikilvægt fyrir okkur. Eins og í öllum samböndum eru ákveðin móment sem eru mikil- vægari en önnur og þetta er svona sem ég valdi út fyrir okkur.“ Auðvelt er að gefa sér að sú heittelskaða hafi verið ánægð með lagið. „Já, hún var rosa ánægð með mig. Ég er yfirleitt rosalega lélegur að vera „rómó“, þannig að þetta kannski bætir eitthvað upp fyrir það.“ Lagið samið á gítar Friðrik Dór samdi lagið sjálft á gítar heima hjá sér. „En síðan fór ég með það til StopWaitGo og þeir útsettu það. Daði Birgisson spilar svo á píanóið í laginu sem gefur þessu ótrúlega skemmtilega mynd. Strák- arnir sem komu að þessu eiga mikið hrós skilið. Þeir „djúsuðu“ þetta vel upp.“ Á döfinni hjá söngvaranum er aukinn þungi í útgáfu. „Ég hef í hyggju að gefa meira af efni út, byrjum á smáskífunum og svo sjáum við hvað gerist. Ég get allavega fullyrt að ég ætla að auka tíðnina á að gefa út efni.“ Friðrik segir að sér þyki gaman að sjá hvað lagið hefur fengið góð við- brögð. „Þetta eru kannski sterkari viðbrögð en ég hef fundið áður og ég hef bara heyrt jákvæð viðbrögð. Yfirleitt eru alltaf einhverjir sem hrauna yfir mig. Ég hef ekki fundið fyrir því núna, þannig að það fer kannski hver að verða síðastur í þeim efnum. En annars er gaman hvað laginu hefur verið vel tekið. Það virðist hafa snert einhverjar taugar, fólk virðist tengja við þetta. Manni finnst það auðvitað ótrúlega gaman.“ kjartanatli@365.is Lagið til kærustunnar var samið í bílnum Friðrik Dór Jónsson hefur enn einu sinni slegið í gegn, nú með laginu Skál fyrir þér. Lagið er tileinkað Lísu Hafliðadóttur, kærustu hans. Hann syngur um mikilvægustu augnablikin í sambandi þeirra. Friðrik Dór Jónsson gaf út á sunnudag lagið Skál fyrir þér. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Síðan var bara Spurning um að kLippa þetta niður og veLja það Sem mér fannSt mikiL- vægt fyrir okkur. einS og í öLLum Samböndum eru ákveðin móment Sem eru mikiLvægari en önnur og þetta er Svona Sem ég vaLdi út fyrir okkur. vinsælustu lög friðriks dórs á youtube Glaðasti hundur í heimi 486 þúsund spilanir Í síðasta skipti 328 þúsund spilanir Hlið við hlið 325 þúsund spilanir Til í allt (ásamt Steinda jr. og Bent) 245 þúsund spilanir Fyrir hana 197 þúsund spilanir Hún er alveg meðʼetta 179 þúsund spilanir Leiðarlok 167 þúsund spilanir Á sama stað (ásamt Blaz Roca) 134 þúsund spilanir Keyrumettígang (lag með Henrik Biering og Blaz Roca) 225 þúsund spilanir Okkar leið (lag með Emmsjé Gauta) 142 þúsund spilanir Sumar sem leið (Lag með Óla Geir) 135 þúsund spilanir 3 . n Ó v E m B E R 2 0 1 5 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.