Fréttablaðið - 03.11.2015, Síða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Bakþankar
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Mér fannst síðasta viku óvenju þrungin stressi og áhyggjum. En þetta var
bara venjuleg vika. Þið vitið. Langir
vinnudagar, heimanám með börn-
unum, matarinnkaup og klósett-
þrif. Það var starað á netbankann,
iðnaðarmannaskorti í fjölskyldunni
bölvað og lesnir um það bil 15 tölvu-
póstar frá skólum, leikskólum og
íþróttafélögum. Fundir, safnanir og
leikir. Dagbók barnsins er ekki lengur
með klipptum hárlokkum og fyrsta
brosinu heldur útpæld tímaáætlun
flokkuð með fjórum glósupennum.
Við þessa venjulegu viku bætt-
ust óvenju margar fréttir af streitu
íslenskra fjölskyldna. Konur eiga að
henda sér í sófann samkvæmt lækn-
isráði. Íslensk börn gætu haft það
betra ef við myndum vinna minna og
Kringlan væri lokuð á sunnudögum.
Og samkvæmt nýlegri rannsókn
eru íslenskar fjölskyldur almennt
„að þola og þrauka“ daglega lífið og
bíða þess að börnin verði eldri svo
allir geti farið í golf. Þar að auki var
mér boðið í tvo Facebook-hópa: Ekki
halda stressi til streitu og Streitu-
stjórnun með núvitund.
Og ég fylltist streitu. Hvernig á
ég að koma núvitund, jóga, líkams-
rækt, göngutúrum, hugleiðslu, tjilli
og sófakúri inn í dagskrána mína? Ég
var komin í ástandið streita vegna
streitu – úrkynjaður krankleiki
metorðagjarnar velmegunarkonu.
Samviskubitið sem fylgir streitu
vegna streitu er svo hliðarverkun
ástandsins.
En við Íslendingar erum eldfjöll.
Fyllumst gremju, bullum og svo
flæðir upp úr með gjósandi tilfinn-
ingagusum í hashtag-stæl. Þegar
ég keyrði Sæbrautina í morgun og
las „Ekki skamma þig“ sem stendur
skrifað með ljósum á byggingakrana,
fannst mér eins og þar væri sjálfs-
mynd hálfgalinnar þjóðar komin í
einu fallegu listaverki. Og mér þótti
bara vænt um okkur.
#skammarkrókur
www.gudjono.is · Sími 511 1234
FINGRAFÖRIN
OKKAR
ERU
ALLS STAÐAR !