Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hver er þinn jólailmur? ILMUR DESEMBER MÁNAÐAR „Christmas Garland“ greniilmurinn fæst í nokkrum stærðum og útfærslum. Verðdæmi: Millistórt kerti í glerkrukku Fullt verð: 4.290 kr. Aðeins 3.218 kr. Dormaverð aðeins 8.990 kr. Sængurföt frá MistralHome 100% bómullarsatín þrír litir. 300 tc. Jólatilboð 20.900 kr. O&D dúnsæng · 90% dúnn · 10% smáfiður Fullt verð: 25.900 kr. verð Frábært og gæði Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 MEIRA Á dorma.is Aðeins 19.900 kr. TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. Hafðu það notalegt um jólin Komdu í Dorma JÓLA- TILBOÐ 25% AFSLÁTTUR Ilmur mánaðarins Okkur langar að taka þessa glans-mynd aðeins út úr myndinni,“ segir Sólrún Lilja Diego, ein þeirra fimm ungu mæðra sem hrintu af stað vefsíðunni mamie.is, þar sem þær leggja markvisst upp úr að gera ungum mæðrum kleift að finna svör við spurningum sem kunna að vakna. Auk Sólrúnar eru það Lena Björk Dam, Lísa Rún Kjartansdóttir, Júlíana Birgisdóttir og Saga Ýr Kjartansdóttir sem sjá um að upplýsa ungar mæður um allt milli himins og jarðar. „Þetta byrjaði í raun þannig að Lena heyrði í mér, en hún var í þeim sporum að hún var ófrísk, en eng- inn annar í kringum hana var á svip- uðum stað svo hana sárvantaði upp- lýsingar,“ útskýrir Sólrún og heldur áfram: „Í fyrstu leist mér ekkert á þetta en svo fór ég að spá aðeins í þessu, enda vel þeginn félagsskapur þegar maður er í fæðingarorlofi.“ Sem kom á daginn, því Sólrún hefur verið ansi iðin við að nýta sér tímann þegar dóttir hennar, Maísól, sefur. „Ég ætlaði eiginlega ekkert að skrifa en hef svo eiginlega endað á að skrifa mest,“ segir hún og skellir upp úr. Segir Sólrún viðtökurnar vera með ólíkindum og að þær stöllur hefðu engan veginn gert sér í hugar- lund hversu mikið erindi síðan átti í raun við ungar mæður. „Við fengum yfir þrettán hundruð heimsóknir á einum sólarhring, en við settum síð- una í loftið seinni part laugardags og varð algjör sprenging,“ bendir hún á. Greinilegt er því að eitthvað vantar upp á í upplýsingagjöf til ungra frumbyrja ef marka má þær spurningar og aðsókn sem Mamie hefur fengið. „Flestar ungar mæður eru vissulega í svokölluðum bumbu- hópum, en ég verð að segja að þær upplýsingar sem þar koma fram eru ekkert alltaf þær sem maður er að leita eftir, og svörin oft ansi misjöfn, sem þýðir að erfitt getur verið að taka mark á þeim,“ bendir Sólrún á. „Ég fékk til að mynda heilmikið af fyrirspurnum um hvernig ég und- irbjó Maísól út í vagn að sofa, þar sem þó nokkrar mæður vissu ekkert um hvernig best væri að haga því í kólnandi veðri. Eitthvað sem eflaust einhverjum finnst auðsvarað, en það er ekki svo sjálfsögð vitn- eskja fyrir aðrar.“ Sólrún segir Snapchat-reikning Mamie sömuleiðis hafa notið mikilla vinsælda, og þar séu þær að fá fjölmargar fyrirspurnir úr öllum áttum, og það auðveldi ef til vill aðgengi ungu mæðranna að hinum ýmsu upplýsingum. „Ég viðurkenni fúslega að mér þótti frekar skrýtið að byrja að taka af okkur mæðgum snapp alla daga, enda hafði ég fram að því ekki verið mikill snappari,“ segir Sólrún og bætir við að þó hafi það komist furðu fljótt upp í vana og nú snappi hún eins og vindur- inn fyrir þá fimmtán hundruð sem þegar hafa stokkið á vagninn. „Ætli ég hafi ekki fundið mest fyrir þessu þegar ég fór með vinkonu minni í Smáralind og hún fór að spyrja hvort ég væri ekkert að hugsa um hver þarna hefði verið að horfa á snappið frá mér þann morguninn,“ skýtur hún að og skellihlær. Sólrún segir stelpurnar gríðar- lega ólíkar, en hópurinn þekktist svo gott sem ekkert áður en sam- starf hófst. Eiga þær í raun býsna fátt sameiginlegt annað en að vera nýbakaðar mæður sem allar hafi verið í námi áður en afsprengin létu til sín taka, en þó geta þær sam- mælst um að glansinn sem sjáist svo iðulega á Facebook og Instagram megi alveg missa sín. „Við erum að sýna raunveruleg barnaherbergi og koma með alvöru sniðugar hug- myndir. Þau eiga ekkert að vera æðislega geggjuð og eins og klippt út úr tískublöðum. Við erum ekki að einblína á það sem er flottast og fínast, það er nóg af síðum sem gera það.“ gudrun@frettabladid.is Afmá glansmyndir Instagram og Facebook af móðurhlutverkinu Fimm ungar mæður, sem þekktust nánast ekki neitt, tóku höndum saman og stofnuðu heimasíðu sem er til þess fallin að aðstoða frum- byrjur að fóta sig á sleipu svelli móðurhlutverksins. Hér sjást frumkvöðlarnir saman með framlengingarnar sínar, sem tengja þær saman á þann hátt sem raun ber vitni. Ég vIðurkennI FúslegA Að mÉr þóttI FrekAr skrýtIð Að byrjA Að tAkA AF okkur mæðgum snApp AllA dAgA, endA hAFðI Ég FrAm Að því ekkI verIð mIkIll snAppArI. Sólrún Lilja Diego 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r30 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.