Brautin - 09.11.1957, Blaðsíða 4
4
BRAUTIN
Ur ýmsum áttum
Tillögur.
Framhaid af 1. »iðu
gegn brunatjóni á atvinnufyrir-
tækjum. Sagði framsögumaður
í framsiiguræðu sinni in. a., að
öl) brunatryggingariðgjöld hér-
lendis væru hærri en þau þyrftu
að vera, ef brunavarnir væru í
góð'u lagi.
Þetta er mikilsvert mál, því
að liæpið er aö verðmæti í at-
vinnufyrirtækjum séu að íullu
vátryggð. Auk þess er um að
ræða atvinnutjón, óþægindi og
oft mikla hættu á lífi og limum
þeirra manna, sem vinna í at-
vinnufyrirtækjutn, þegar elds-
voðar verða.
4. Hinn 23. okt. báru þrír
Alþýðuflokksmenn, þeir Eggert
G. Þorsteinsson, Benedikt Grön-
dal og Pétur Pétursson, fram
tillögu um fræðslustofnun laun-
þega. Er tillaga þessi endur-
flutt á alþingi riú, þar eð hún
náði ekki fram að ganga í fyrra.
í tillögunni er lagt til, að rík-
isstjórnin láti semja og leggi
Iram fyrir næsta alþingi frum-
varp til laga um fræðslustofn-
un með því starfssviði að veita
trúnaðarmönnum og félags-
fólki verkalýðsfélaga, félaga op-
inberra starfsmanna og annarra
I a un þegasa m taka raun hæfa
fræðslu um hlutverk slíkra sam-
(aka í nútíma þjóðfélagi, einnig
sögu þeirra, skipulag og starfs-
liætti.
Fræðsluslofnun eins og sú,
sem hér er lagt til að koma á
fót, gæti lagt fram þýðingar-
mikinn skerf til að auka félags-
þroska og skilning á heilbrigðu
hlutverki og starfsháttum sarn-
takanna.
5. Þá hafa tveir þingmenn Al-
þýðuflokksins, [>eir Benedikt
Gröndal og Pétur Pétursson, á-
samt þremur þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins lagt fram á
alþingi frumvarp um breyting-
ar á þeim greinum skattalag-
anna, er fjalla um skatt af tekj-
um hjóna og um persónufrá-
drátt. Gerir frumvarpið ráð
fyrir, að samanlögðum skatt-
skyldum tekjum hjóna, sem
samvistum eru, verði skipt til
helminga og reikna skuli skatt
af hvorum helmingi fyrir sig.
Hér er um mikið réttlætismál
að ræða, sem rnjög hefur verið
á dagskrá með þjóðinni undan-
farin ár. Er þess að vænta, að
þeim óréttlátu lögum, sem nú
eru í gildi í þessum málum,
verði breytt í réttlátara horf, en
sú skipan, sem nú gildir um
skattamál hjóna, het’ur leitt til
þjóðfélagsvandamáls, sem verð-
ur æ alvarlegra með hverju ári
F réttir.
Nýjar vélor.
Sex nýjar vélar eru væntan-
legar í báta á næstunni. Allar
eiga þessar vélar að setjast nið-
ur fyrir komandi vertíð. Bát-
arnir, sem fá hinar nýju vélar
eru: Erlingur IV1., Suðurey og
Kári, sem fá Mannheim-vélar,
Júlía, sem fær Alfa-vél, Helga,
sem nú er verið að endurbyggja,
fær Tuxham-vél og hinn nýi
bátur, sem Gunnar M. Jónsson
er að byggja, mun fá Kelvin-
vél.
Mjög er það bagalegt hve
vélar þessar koma seint, og verð-
ur að vinda bráðan bug að því
að útvegsmönnum, er hyggja á
vélaskipti í bátum sínum, sé
gert kleift að flytja þær inn á
hcntugum tírna.
Kostnaðarsöm bryggja.
Viðgerð stendur nú yfir á
Friðarhafnarbryggjunni. . Má
segja að það sé vonum seinna,
því sannleikurinn er sá, að
bryggjan, sem er eins og flestir
vita, trébryggja, hefur verið
stórvarhugaverð um nokkurn
tíma. Þilið ofan á bryggjunni
er ónýlt og bryggjukanturinn
hefur valdið skemmdum á bát-
um er við hann hafa legið.
Bryggjan er mjög dýr í við-
haldi og sýnist því ærin ástæða
til að flýta svo sern auðið er að
ramma með járnþili lyrir
bryggjuna.
Mikil menningarstarfsemi.
Mikil menningarstarfsemi á
sér nú stað hér í Eyjum. í skól-
um og námskeiðum eru fleiri
nemendur en nokkru sinni fyrr.
í tónlislarinálum er mikið líf.
Starfandi er tónlistarskóli und-
ir forstöðu Leifs Þórarinssonar.
Tveir söngkórar, Vestmanna-
kór og Karlakór Vestmannaeyja,
sem legið hala niðri um nokk-
urt skeið, hafa byrjað starf að
nýju. Vestmannakór hefur þeg-
ar haldið eina söngskemmtun
undir stjórn hins kunna stjórn-
ánda og tónskálds, Jónasar
Tómassonar. Leiðinlegt er hve
söngskemmtunin var illa sótt,
því söngurinn var kórnum og
stjórnanda til hins mesta sótna.
Formaður Vestmannakórs er
Sveinn Guðmundsson.
Karlakórinn er byrjaður æf-
ingar af krafti undir stjórn
setn líður og veikir einn megin
grundvallarþátt þjóðfélagsins,
þ. e. heimilið og hjónabandið.
Engu gieymt og ekkert lært.
í Morgunblaðinu 29. okt. síð-
astliðinn bar að líta fréttaklausu
með eftirfarandi yfirskrift:
„Togaranum Karlsefni lagt upp
í biii." Astæðan fyrir þessu er
taiin vera stórtap á togaranum
á veiðum fyrir innanlands-
vinnsht og sagt aö ríkisst jórnin
skammti togaranum lerðir ;i er-
lendan markað. Að sjálfsögðtt
smjattar Morgunblaðið og hin
„sterka stjórnarandstaða á slíkri
frétt. Það út af fyrir sig er ekki
svo athyglisvert, en hitt er at-
hyglisverðara að með því sann-
ar íhaldið að það hefur engu
gleymt og ekkert lært. Eða
hvort man nú enginn hina
gömlu kenningu íhaldsins, að
stóratvinnurekendur eigi fyrst
og fremst að reka atvinnutækin
eftir þeirra eigin ágóðavon og
án tillits til þess fólks cr við
þau vinnur?
Leifs Þórarinssonar tónskálds.
Formaður Karlakórs \'est-
mannaeyja er Ólafur Jónsson
skipasmiður.
F.kki verður svo minnst á tón-
listarslíf hér án þess að minn-
ast Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
sem um margra ára skeið hefur
haldið uppi reglulegum æfing-
um allt árið utn kring, undir
stjóui hins ágæta tónlistar-
manns okkar Vestmannaeyinga,
(Jdclgeirs Kristjánssonar.
L.úðrasveitin hefur á undan-
förnum árum haldið fjölmarga
tónleika, bæði hér heima og úti
á landi. Segja má að Lúðrasveit-
in liafi verið og sé stolt okkar
X'estmannaeying;: í tónlistarleg-
um skilningi.
Þá mun leikfélag Vestmarma-
eyja vcra byrjað vetrarstarf sitt.
Hyggst félagið kotna af stað
kvöldvöku og leikrki, sem
frumsýnt mun um jólin. Hösk-
uklur Skagfjörð leikari mun sjá
um æfingar hjá félaginu.
Þá hefur verið stofnað hér
taflféiag. Félagar þess eru orðn-
ir um 60. Taflmót stendur yfir
hjá félaginu. Formaður félags-
ins er Vigfús Ólafsson.
íþróttafélögin eru byrjuð
innanhússæfingar. Kennarar
hjá þeim eru: Torfi Bryngeirs-
son, Karl Jónsson og Svavar
Lárusson.
Eins og af framanskráðu sést,
er hér um mikla og heillavæn-
lega starfsemi að ræða og skulu
Vestmannaeyingar hvattir til að
styrkja hin ýmsu menningarfé-
lög af ráðum og dáð.
1 Siftdur undon kúiuhamri
i Fylkismanna.
Svo mikill kosningaskjálfti
hefur gripið um sig tncðal
skriffinna Fylkis, að jafnvel
fréttaklausa í Alþýðublaðinu
um fólksllutning og atvinnu-
horfur N'estmannaeyinga, send
héðan úr Eyjum af einhverjum
vondum krataforingjum, hefur
orðið lil þess að þeir ltafa tekið
úr handtaðanum sitt [tyngsta
andlega vopn, kúluhamarinn.
Án efa þurfa andstæðingar í-
haldsins ekki að óttast þung á-
föll frá sindri undan kúluhamri
Fylkis, ef hann verður ekki í
styrkari hendi, í komandi kosn-
ingabaráttu, en hann var 1.
nóv. síðastliðinn.
Hvort er betri brúnn eða
rauður?
í sambandi við ráðstafanir
1 bæjarstjórnar vegna atvinnu-
1 málanna í bænum, þar sem bær-
inn tekur á sig mikla áhættu í
sambandi við línuútgerð, svo og
með það í huga að bærinti tók
á sig mikinn kostnað við lönd-
un á karfa úr Ir/v Ólafi Jóhaun-
essyni mn daginn, vaknar eðli-
lega si'i spurning, hvorl bæjar-
búum þyki betra að styrkja at-
vinnurekstur í einkaeign eða
atvinnurekstur þar sem bæjar-
búar sjálfir eiga atvinnutækin.
Breyting á úthlutun íbúðalúna.
Vegna laga nr. 42 Irá 1957 og
nýscttrar reglugerðar tun út-
hlutun ílniðarlána á vegum
Húsnæðismálastofnunar ríkisins
skal öllum þeitn, sem sótl Itafa
um lán hjá Húsmeðismála-
sijórn, en ekki hlotið náð fyrir
augum hennar, bent á að þeir
þurfa að endurnýja umsúknir
sínar ;í sérstökum eyðublciðum,
sem fást munu hjá bæjarstjóra.
Þeir, sem áður hafa sent um-
beðin fylgigögn með lánsum-
sókn þurfa ekki að endurnýja
þau. Þessi nýju eyðublöð þurfa
að berast Húsnæðismálastofn-
uninni fyrir 20. des. 1957.
Þeir, sem hafa fengið byrjun-
arlán, en hafa ekki ennþá sótt
um viðbótarlán, þurfa að sækja
um þau, á jrar til gerðum eyðu-
blöðum, ef þeir telja sér nauð-
synlegt að fá hærra lán vegna
íbúðar sinnar. Umsóknarfrestur
er hinn sami og áður getur.
Þeir, sem enn hafa ekki sent
umsókn um íbúðalán, verða að
gera það fyrir næstu áramót
eigi þeir að koma til greina á
árinu 1958.