Brautin - 07.07.1988, Page 1
41. árgangur
Vestmannaeyjum, 7. júlí 1988
1. tölublað
Félagslegar íbúdir fyrir
aldraöa - láglaunafólk - ungt fólk
Eitt af markmi&um núverandi bæjarstjórnarmeirihluta
er að effa framboö af félagslegum íbú&um og í því
sambandi hafa verió sett fram markmió sem líkja má
vid byltingu frá því sem hér hefur verid í Vestmanna-
eyjum á undanförnum árum.
IBUDIR ALDRADRA
Nýlega fór fram afhending á
fyrstu fjórum íbúðunum af tólf
sem bæjarsjóður er að byggja
við Kleifarhraun. Við fjár-
mögnun byggingarinnar var
farið inn á nýjar brautir,
svokallaða lánleigu aðferð, þar
sem væntanlegir leigutakar
íbúða aldraðra lána bæjarsjóði
óbeint um 20% af byggingar-
kostnaði íbúðanna og hefur
þessi fjármögnunaraðferð
mælst vel fyrir enda í framhaldi
af könnun sem fram fór á vilja
eldri borgara. Næstu fjórar
íbúðirnar verða væntanlega til-
búnar í október n.k. og síðan
þær næstu í febrúar á næsta ári.
íbúðirnar eru sérstaklega
hannaðar með þarfir eldri borg-
ara fyrir augum og er samdóma
álit að þær séu sérlega
skemmtilegar og að þar eigi
eldri borgurum Vestmannaeyja
eftir að líða vel í frarntíðinni.
Pegar þessum áfanga íbúöa
aldraðra er lokið hefur orðið
100% aukning á framboði á
sérstökum íbúðum aldraðra, en
fyrir eru 12 íbúðir.
ÍBÚDIR FYRIR LÁG-
LAUNAFÓLK OG
UNGTFÓLK
í byggingu eru nú 12 íbúðir,
byggðar á grundvelli laga um
verkamannabústaði. Hluti
íbúðanna er í raðhúsi og hinn
hlutinn í sambýlishúsi og miðar
framkvæmdum vel áfram. Fyr-
irhugað er að hetja byggingu á
a.m.k. 9 íbúóum til viðbótar,
enda er eftirspurnin töluverð og
þá sérstaklega frá ungu fólki
sem er að hefja sín fyrstu hjú-
skaparár.
KAUPLEIGUÍBÚDIR
Alþingi hefur samþykkt lög
um kaupleiguíbúðir, sem eins
og tlestum er kunnugt um olli
verulegum deilum innan ríkis-
stjórnarflokkanna á sínum tíma
og félagsmálaráðherra hótaði
úrsögn úr ríkisstjórninni næðu
lögin ekki fram að ganga. Bæj-
arstjórn hefur þegar samþykkt
að óska eftir heimild til að
byggja 15 íbúðir á grundvelli
laga um kaupleiguíbúðir.
Miðað við þær óskir sem fram
hafa komið víða af landinu um
byggingu kaupleiguíbúða virð-
ast umsóknir vera þrefalt fleiri
en framboð, þannig að við
getum búist við í fyrstu að fá
jákvæð svör við a.m.k. 5 íbúð-
um. Allt er þetta mjög jákvætt
fyrir byggðarlagið og auðveldar
alla búsetu.
Þorbjörn Pálsson
Loksins, loksins! Ráðhúsströð og ráðhússveggur. Hér má sjá
hinn margumtalaða „Ráðhússvegg” sem fór svo fyrir hjartað á
íhaldinu, eins og Ráðhúsströðin reyndar öll. Sigurður Jónsson
kallaði „vegginn” Berlínarmúr. Nú hlæja allir.
Ráðhúströðin breytir um svip frá degi til dags. Lnnið er að
lokaframkvæmdum við götuna og er Ijóst að mikil bæjarprýði
verður af. Tímabær framkvæmd
fííkið yfirtekur hluta af
skuldum hitaveitunnar
Á bæjarráðsfundi 15. júní si.
var undirritaður samningur á
milli Vestmannaeyjabæjar og
ríkis um yfirtöku ríkisins á
hluta af skuldum Fjarhitunar
Vestmannaeyja, sem er liður í
að bæta rekstur veitunnar. Er
hér um samskonar yfirtöku að
ræða og hjá hitaveitunum á
Akureyri, Akranesi og Borg-
arnesi.
Fjármálaráðherra, Jón
Baldvin Hannibalsson, mætti á
fund bæjarráðs til þess að und-
Jón Baldvin, fjármála-
ráóherra heimsótti Eyjar
Siggi Jóns vill
vera bæjarstjóri
í viðtali sem Fréttir áttu við Sigga Jóns. nýlega, kemur
fram margt merkilegt. Hann langar einhver ósköp að verða
bæjarstjóri. Áður í viðtalinu er hann búinn að afgreiða
helstu stjörnur íhaldsins útaf borðinu. Til dæmis þegar hann
er spurður um hvort hann sé sáttur við Sigurð Einarsson
sem oddvita eftir gagnrýni um að stjórna þessum máttlausa
minnihluta. S.J. svarar stutt og laggott: „Stundum og
stundum ekki, eins og gengur með störf allra manna".
Um miðjan júní heimsótti
Jón Baldvin Hannibalsson
Vestmannaeyjar. í upphafi
komu sinnar átti hann fund
með Bæjarráði og stjórn
veitustofnana þar sem gengið
var frá samningi á milli ríkisins
og bæjarins, vegna yfirtöku
ríkissjóðs á hluta af skuldum
heitaveitunnar.
Að sameiginlegum fundi
loknum, fundaði ráðherrann
með bæjarráði, þar sem farið
var yfir þau erindi, sem Vest-
mannaeyjabær sækir á til ríkis-
ins.
Pá ræddi bæjarráð einnig
málefni Herjólfs sérstaklega
við ráðherrann, bæði hvað
varðar smíði á nýju skipi, svo og
um aukningu á rekstrarstyrk til
Herjólfs sem gerir það að
verkum, að gjaldskrá skipsins
verði með þeim hætti, að það
kosti sama að ferðast með
Herjólfi og það kostar aðra
landsmenn að ferðast á þjóð-
vegakerfinu.
Því næst skoðaði hann
stofnanir. Það hitti svo vel á, að
þegar hann skoðaði Hraunbúð-
ir og íbúðir aldraðra, var
einmitt verið að afhenda fyrstu
íbúðirnar í þriðja áfanga. Þá
skoðaði hann Stjórnsýsluhúsið.
Síðan átti hann fund með stjórn
Flerjólfs hf. Helsta mál þess
fundar var að sjálfsögðu smíði á
nýjum Herjólfi og þótti fund-
urinn mjög gagnlegur og menn
bjartsýnir á framhaldið.
Ljóst er að koma ráðherrans
var gagnleg fyrir okkur Vest-
nrannaeyinga og er vonandi að
auk samningsins, muni önnur
atriði sem kynnt voru og unnið
var að, skila sér einnig á
jákvæðu nótunum fyrir Eyj-
arnar.
27 kaup-
leiguíbúöir
Bæjarráð hefur samþvkkt
að sækja um byggingu á 15
kaupleiguíbúðum á þessu
ári og 12 íbúðum á næsta
ári.
irrita samning fyrir hönd ríkis-
sjóðs.
Er ánægjulegt að þessi samn-
ingur skuli vera orðinn að
veruleika, og er rétt á þessum
tímamótum að þakka öllum
þeim sem unnið hafa að farsælli
lausn þessara mála.
Mikili einhugur hefur ríkt
um málefni Fjarhitunar í bæj-
arstjórn, og hefur öll bæjar-
stjórnin, svo og veitustjórn,
staðið einhuga um málefni veit-
unnar.
Þiljað hefur verið í höfninni og er verið að slá sniiðshöggið á þilið í
norðurhöfn, fyrir framan þá félaga Sigurð Inga og Njál. Þetta
langþráða verk er í höfn og skapar það gjörbrevtta vinnuaðstöðu
við flotann.