Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 4
4 27. desember 2019FRÉTTIR
Þ
á er kominn tími til
að kveðja enn eitt árið
og hvað stendur eftir?
Svarthöfði sér ekki betur
en að við séum ekkert betur sett
en fyrir ári. Jafnvel þvert á móti.
Flugfélagi fátækari, þungamiðjan
í alþjóðlegu spillingarhneyksli,
með ríkisstjórn sem rétt hangir
saman á þrjóskunni einni
saman. Íslendingar orðnir
feitastir, þunglyndastir og
kvíðnastir í heimi og fjársvelta
heilbrigðiskerfið okkar fækkar
starfsfólki þegar það ætti að
vera að fjölga því. En sem
betur fer finnum við tímann í
hversdagsleikanum til að standa
í kílómetra löngum röðum eftir
rauðbirknum trúbadorum og
rífast um IKEA-mottur. Góðærið
er búið, en enginn er tilbúinn
að sníða sér stakk eftir vexti, við
viljum eiga meira, þéna meira,
borga minna, lifa hraðar og leyfa
okkur allt. Afneitunin er algjör.
Svarthöfði hefur ekki
sofið síðustu vikur sökum
tannagnísts Þorsteins Más
Baldvinssonar en sem betur fer
hafa brunarústir WOW haldið
hitanum bærilegum. Vongóðir
aðilar hafa nefnilega blásið
reglulega í glæðurnar og þótt
enn hafi þeim ekki tekist að
tendra bálið að nýju, þá hafa
þeir haldið lifandi voninni um
að ferðamannageirinn rétti úr
kútnum.
Aftur ætlar Svarthöfði að
verðlauna þá sem stóðu sig best
á árinu, enda best að skila hólinu
þangað sem það á heima.
Svikari ársins
Davíð Oddsson.
Það var á pari við fljúgandi
svín þegar einn gallharðasti
Sjálfstæðismaður landsins, Dav-
íð sjálfur Oddsson, sendi flokks-
systkinum sínum puttann vegna
stefnu þeirra í Þriðja orkupakka-
málinu. Um tíma þótti mönnum
hann jafnvel hafa alfarið sagt skil-
ið við sinn gamla flokk og gengið
til liðs við Miðflokksmenn. Davíð
dissaði ítrekað forystu Sjálfstæð-
isflokksins með ritstjórnarpistl-
um Morgunblaðsins og fór þar
sérstaklega ljótum orðum um
ráðherrana Áslaugu Örnu Sig-
urbjörnsdóttur og Þórdísi Kol-
brúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Þessi rígur innan Sjálfstæðis-
flokksins er talinn ein ástæða
þess að fylgi flokksins tók sögu-
lega dýfu. Með andstöðu sinni
sveik Davíð því í raun flokkinn
sinn og olli honum skaða. Hann
er því vel að titlinum „svikari
ársins“ kominn.
Leyndarmál ársins
Ekki verður gefið upp hverjir
sækja um stöðu útvarpsstjóra
og hefur sú ákvörðun sætt
harðri gagnrýni. Jafnvel hefur
verið gengið svo langt að tengja
þessa ákvörðun því að þegar hafi
einstaklingur verið handvalinn
í stöðuna og leyndardómurinn
því leikrit til að koma í veg fyrir
óþægilegar ályktanir þegar nýr
útvarpsstjóri verður kynntur
til sögunnar. Hvort sem þessi
ákvörðun var tekin af réttmætum
ástæðum eða ekki þá er samt um
leyndarmál ársins að ræða, enda
hefur hún engu skilað nema
aukinni tortryggni og deilum.
Grátur ársins
Mál starfsmannaleigunnar
Menn í vinnu var áberandi á
árinu eftir að nokkrir rúmenskir
starfsmenn leigunnar stigu fram
í fréttum og sýndu meintar bágar
aðstæður sem þeim var gert að
búa við. Fyrir hópnum fór maður
sem var í svo miklu uppnámi
vegna aðstæðna að hann felldi
tár og fékk í kjölfarið viðurnefnið
„grátandi Rúmeninn“.
Hástökkvari ársins
Hástökkvari ársins 2019 er
blóðþrýstingurinn hans
Steingríms J. Sigfússonar, forseta
Alþingis. Hann hefur ítrekað
vakið athygli fyrir skaphita og
ofsa og virðist tilvikunum fremur
fjölga en fækka þessi misserin.
Vonarstjarna ársins
Indverska prinsessan.
Það yljaði mörgum um
hjartarætur þegar ein ástsælasta
tónlistarkona landsins hlaut
loksins verðskuldaða athygli
utan landsteinanna. Leoncie
varð fræg í fimm mínútur
í Bandaríkjunum eftir að
spjallþáttastjórnandinn vinsæli,
Jimmy Fallon, vakti athygli á
tónlist hennar.
Lexía ársins
Atli Rafn.
Tveir dómar féllu í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á ár-
inu í málum tengdum metoo-
-byltingunni. Annars vegar í máli
lektors við Háskólann í Reykja-
vík sem viðhafði ummæli sem
kenna mátti við kvenhatur á lok-
uðum hóp á Facebook, og hins
vegar í máli leikara sem hafði
ítrekað verið kvartað yfir sök-
um kynferðislegrar áreitni innan
sem utan vinnustaðarins. Dóm-
arnir virðast kenna landsmönn-
um þá lexíu að það sé alvarlegra
að tala ljótt um konur á samfé-
lagsmiðlum en að áreita þær.
Ingjaldsfífl ársins
Nokkrir sjóarar komu sér heldur
betur í bobba eftir að þeir
mynduðu sjálfa sig þar sem þeir
skáru sporð af hákarli. Svarthöfði
veit ekki hvort sé merkilegra í
málinu, að þeir hafi í alvöru tekið
athæfið upp á myndband eða
hitt, að þeir hafi í alvörunni deilt
því á internetinu.
Uppþot ársins
Hér reyndist Svarthöfða erfitt að
gera upp á milli tilvika, enda úr
mörgum að velja. IKEA–mottu-
æsingurinn, orkupakkamálið,
Palestínufáni Hatara. Hins
vegar stendur klósettbursta-
uppþotið klárlega upp úr.
Mislukkaður brandari sem
fór gífurlega fyrir brjóstið á
tyrkneskum landsliðsmönnum í
knattspyrnu og fótboltabullum.
Það versta við þetta allt saman
er að gerandinn í málinu var
ekki Íslendingur, heldur Belgi og
hann var ekki með klósettbursta
heldur uppþvottabursta. Engu
að síður urðu Tyrkir brjálaðir
út í Íslendinga og voru enn að
hefna sín á okkur um hálfu
ári síðar með því að torvelda
Íslendingum að komast í gegnum
landamæraeftirlit í Tyrklandi.
Ráðgáta ársins
Gunnar Bragi Sveinsson.
Ráðgáta ársins, og óleyst í
þokkabót, er hvað í drottins nafni
varð um fötin sem þingmað-
ur Miðflokksins, Gunnar Bragi
Sveinsson, týndi eftir kvöldið
fræga á Klaustri bar. Í janúar
greindi hann frá því að þetta um-
rædda kvöld hafi hann drukk-
ið sig til óminnis og tapað fötum
sínum. Engum sögum hefur síð-
an farið af því hvort umrædd föt
hafi komið í leitinnar. Hvers kon-
ar föt voru þetta? Voru þetta bux-
urnar hans? Hvar eru buxurnar
hans Gunnars? Þetta er ærið efni
fyrir rannsóknarblaðamenn og
skorar Svarthöfði á blaðamenn
landsins að upplýsa þessa ráð-
gátu á nýju ári. n
Svarthöfði gerir upp árið
Það er
staðreynd að…
Það er líkamlega ómögulegt fyrir
manneskju að kitla sjálfa sig.
William Shakespeare bjó til yfir 1.700
orð.
Löglegt er að veiða einhyrninga í
Michigan í Bandaríkjunum.
Horn nashyrnings eru gerð úr
samþjöppuðum hárum.
Ár hvert færist tunglið 3,8 senti-
metra nær jörðinni.
Hver er
hún
n Hún er fædd
þann 27. desember
árið 1969.
n Hún ólst upp á
Húsavík til 10 ára aldurs
en flutti þaðan til Vopnafjarðar.
n Hún á tvö systkin og er miðbarn.
n Árið 2003 kom út ævisaga
hennar.
n Hún er fyrrverandi eigandi
Baðhússins í Reykjavík.
SVAR: LINDA PÉTURSDÓTTIR
n Við viljum eiga meira, þéna meira, borga minna, lifa
hraðar og leyfa okkur allt n Afneitunin er algjör
„Flugfélagi
fátækari
„Þungamiðjan
í alþjóðlegu
spillingarhneyksli
„Með ríkis
stjórn
sem rétt hangir
saman á þrjósk
unni einni saman
Svarthöfði
Mynd: Eyþór Árnason