Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 1

Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 4 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 3 . n ó v e M b e r 2 0 1 5 Sími 512 4900 landmark.is Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 11 07 2 öryggisMál „Þetta sýnir að sam- starfssamningar um leit og björgun á norðurslóðum, og sam- æfingar eins og haldnar hafa verið undanfarin ár með það að mark- miði að æfa viðbrögð við því að skip með fjöldann allan af farþeg- um verði fyrir skakkaföllum, eru nauðsynlegar og eiga fullan rétt á sér,“ segir Ásgrímur L. Ásgríms- son, framkvæmdastjóri aðgerða- sviðs hjá Landhelgisgæslunni. Mannbjörg varð í erfiðri og flókinni björgunaraðgerð á vegum breska sjó- og flughersins  við Falklandseyjar á miðvikudag. Þá kviknaði í vélarrúmi Le Boréal, 10.000 tonna fransks skemmti- ferðaskips í eigu fyrirtækisins Compagnie du Ponant. Farþegar og áhöfn, alls 347 manns, þurftu að yfirgefa skipið við mjög erfiðar aðstæður. Le Boréal hefur mörg undan- farin sumur verið í siglingum við Íslandsstrendur með erlenda far- þega og gert út frá Hafnarfirði, en frá Reykjavík síðastliðið sumar. Skipið yfirgaf landið síðast 13. ágúst eftir að hafa um skeið siglt á milli fjölda staða hér á landi, með viðkomu meðal annars á Grund- arfirði, Ísafirði og Akureyri. Ásgrímur bætir við að björg- unaræfingar hafi sýnt fram á nauðsyn þess að á hafsvæðinu umhverfis Ísland sé til staðar öflug björgunarmiðstöð sem tekið getur á móti og þjónustað björgunartæki, björgunarlið og ef til vill í framhaldinu skipbrots- fólk sem þarf að koma fyrir áður en hægt er að koma því til síns heima. Í fréttatilkynningu frá breska varnarmálaráðuneytinu segir Michael Fallon, varnarmála- ráðherra Breta, að samhæfðar aðgerðir flota og flughers hafi „komið í veg fyrir harmleik“. Öllu var tjaldað til í aðgerðum flota og flughers; fjórar þyrlur voru sendar á slysstað, tvær flug- vélar, herskip auk tveggja stórra dráttarbáta. Ásgrímur segir björgunaraðila hér standa að aðgerðum á líkan hátt og við björgun fólksins á Le Boréal. Varðskipin yrðu þegar send af stað – og þyrlur ef skipið væri ekki of langt frá landi. Eins yrði öllum nálægum skipum þegar beint á slysstað og kallað eftir aðstoð danskra varðskipa sem hafa þyrlu um borð. Ásgrímur ítrekar mikilvægi þess að hér sé til staðar viðbragðsgeta, til dæmis varðskipið Þór sem hefur dráttargetu til að bjarga skipi eins og Le Boréal en stór úthafsdráttarskip eru hér ekki að staðaldri.  - shá / sjá síðu 10 Háski skemmtiferðaskips er áminning til Íslendinga Mannbjörg af 10.000 tonna skemmtiferðaskipi, sem hefur verið fastagestur hér við land, er til marks um mikilvægi alþjóðlegs samstarfs Íslands um leit og björg- un. Þörf fyrir björgunarmiðstöð á Íslandi segir yfirmaður hjá Landhelgisgæslunni. SÖGURNAR SEM EKKI MÁTTI SYNGJA Gjafakort Gjafakort í Borgarleikhúsið er ávísun á einstaka kvöldstund sem aldrei gleymist. BORGARLEIKHÚSSINS borgarleikhus.is Fréttablaðið í dag lÍfið Ólafur seldi Simon Cowell réttinn. 24-26 skoðun Tal forsetans ekki til þess fallið að koma í veg fyrir að innflytjendur verði fyrir aðkasti að ósekju, segir Guðmundur Andri. 13 sport Tveir íslenskir Evrópu- meistarar í MMA. 14 2 sérblöð l fólk l  fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 108 skemmtiferðaskip komu til hafnar í Reykjavík í sumar Þrjátíu kindur settar út í Elliðaey Fjárbændur og úteyjakarlar fóru með um þrjátíu kindur út í Elliðaey á föstudag. Þar hefur verið svo lítið um fé undanfarin misseri að úteyjakarlarnir sögðu nauðsynlegt að fá fleira fé þangað til að halda við rollustígum og koma í veg fyrir að baldursbráin yxi þar mikið. Band var sett um kindurnar, þeim lyft úr bátnum og síðan teymdar af stað. Ekki þurfti að hjálpa þeim nema fyrstu metrana, eftir það sáu þær um sig sjálfar og gengu þangað sem grasið er. Mynd/Óskar P. Friðriksson Þetta sýnir að samstarfssamningar um leit og björgun á norður- slóðum, samæfingar, eins og haldnar hafa verið undan- farin ár með það að mark- miði að æfa viðbrögð við því að skip með fjöldann allan af farþegum verði fyrir skakka- föllum, eru nauðsynlegar og eiga fullan rétt á sér. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.