Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 15

Fréttablaðið - 23.11.2015, Page 15
SirkuSlíf Dagný Gylfadóttir keramikhönn- uður setti merkið DayNew á fót fyrir rúmu ári. Hún sækir inn- blástur til leikja barnæskunnar. Síða 2 Pevaryl sveppalyf fæst án lyfseðils og er ætlað til sjálfsmeðhöndlunar á sveppasýkingum í leg­göngum fyrir konur sem áður hafa verið greind­ ar hjá lækni og þekkja einkennin. Pevaryl inniheldur virka efnið econazol sem hefur breiða sveppaeyð­ andi verkun. Econazol frásogast lítið og er því fyrst og fremst um staðbundna verkun að ræða. Að sögn Guðnýjar Traustadóttur, markaðstengils hjá Vistor, er mikil reynsla komin á lyfið en Pevaryl hefur verið á markaði hér á landi í 35 ár og verið notað af fjölda kvenna. Fjöldi kvenna á barneignar­ aldri fær einhvern tímann sveppasýkingu í leggöng og um það bil helmingur þeirra fle hana að minnsta kosti einu sinni aftur. Sýkingin kemur frá smásæjum sveppi „Candida Albicans“ sem almennt er til staðar í líkamanum en ef jafnvægi hans raskast getur það valdið sveppasýkingu. Sveppasýking þrífst best þar sem er rakt, hlýtt og þétt, svo sem í leggöngum. Sveppasýking herjar oft á konur á barneignaraldri þar sem þær hafa meira af hormóninu östrógeni, en það eykur glúkósa­ magn í leggöngunum sem svepp­ urinn nærist á. Auk þess kemur sveppasýking oft fram í tengslum við sýklalyfjameðferð að sögn Guðnýjar. Að sögn Guðnýjar getur það verið kostur að nota staðbundið lyf eins og Pevaryl við sveppasýk­ ingum í leggöngum þar sem frásog þess er lítið. EiNkENNi SvEPPaSýkiNGar Helstu einkenni sveppasýkingar eru kláði í og utan við leggöng, hvítleit og jafnvel kornkennd útferð. Slímhúðin getur auk þess verið sár, þurr og með sviða. PakkNiNGar PEvaryl: •1 Depot forðastíll og krem (samsett meðferð) •3 skeiðarstílar og krem (samsett meðferð) •1 Pevaryl depot forðastíll (eins dags meðferð) Setjið skeiðarstílinn hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn. Berið kremið á og í kringum leggangaop og/ eða á skapabarmana 2­3 sinnum á dag þar til óþæg­ indin eru horfin og í þrjá daga til viðbótar. Þegar keyptur er pakki með þremur stílum er mjög mikil­ vægt að klára meðferðina þ.e. þrjú kvöld í röð. Pevaryl má nota á öðrum og síðasta þriðjungi meðgöngu en ekki skal nota Pevaryl á fyrsta þriðj­ ungi meðgöngu nema samkvæmt læknisráði. Pevaryl fæst án lyfseðils í næsta apóteki. við SvEPPaSýkiNGum í lEGGöNGum kvENNa viSTOr kyNNir Pevaryl skeiðarstíla og Pevaryl krem til staðbundinnar notk‑ unar við sveppasýkingum í leggöngum. Pevaryl 150 mg skeiðarstíll, Pevaryl Depot 150 mg skeiðarstíll og Pevaryl 1% krem (í samsettum pakkningum) (innihalda econazolnítrat) eru breiðvirk sveppalyf við sveppasýkingum í leggöngum (leggangabólga og skapabólga af völdum ger‑ sveppa). Skammtar: Einn skeiðarstíll hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn, 3 daga í röð (Pevaryl skeiðarstíll) eða einu sinni (Pevaryl Depot skeiðarstíll). Krem: Berist á svæðið í kringum leggangaop og endaþarmsop 2‑3 á dag. Meðferð á að vara í 3 daga eftir að óþægindi eru horfin. Meðhöndlun maka: Þvoið reður og forhúð og berið kremið á tvisvar á dag þar til óþægindi hverfa og í 3 daga eftir það. Þungaðar konur ættu að þvo hendur vandlega fyrir notkun skeiðarstíla. Frábending‑ ar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Varnaðarorð: Pevaryl og Pevaryl Depot má ekki nota sam‑ hliða annarri meðferð í eða á kynfærum. Ef fram koma merki um ertingu eða ofnæmi skal hætta meðferð. Pevaryl krem inniheldur bensósýru sem getur haft væg ertandi áhrif á húð, augu og slímhúðir og bútýlhýdroxýanisól sem getur valdið staðbundnum aukaverkunum í húð (snertiexemi) eða haft ertandi áhrif á augu og slímhúð. Pevaryl skeiðarstílar inni‑ halda efni í olíugrunni sem getur haft áhrif á og dregið úr öryggi latexhetta og latexverja. Ekki skal nota lyfin samtímis slíkum verjum. Þeir sem nota sæðisdrepandi lyf skulu ráðfæra sig við lækni, þar sem staðbundin meðferð í leggöngum getur gert sæðisdrepandi lyf óvirkt. Meðganga / brjóstagjöf: Pevaryl má ekki nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu nema skv. læknisráði. Nota má Pevaryl á öðrum og síðasta þriðjungi meðgöngu ef hugsanlegur ávinningur fyrir móður vegur þyngra en möguleg hætta fyrir fóstrið. Ekki er þekkt hvort econazolnítrat berst í brjóstamjólk. Gæta skal varúðar við notkun Pevaryl hjá konum með barn á brjósti. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfis‑ hafi: McNeil Sweden AB. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535‑7000 Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Rafdrifnir gluggaopnarar Rafdrifnir opnarar á glugga, þar sem erfitt er að komast að. Rofastýrðir - 220v. BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS - OPIÐ MÁN TIL FÖS 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 LUKTIR 40 cm 5.900 30 cm 4.600 KLAPPSTÓLL kr. 5.990 GEYMSLUBÆKUR kr. 2.900 ILMKERTI kr. 1.600 / 2.990 SPEGILL kr. 12.900 ASYMETRIC LJÓS kr. 21.350 PÚĐI kr. 7.800 VASI kr. 3.200 KERTASTJAKI kr. 5.200 KARFA kr. 5.350

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.