Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2015, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 23.11.2015, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SHAPE DELUXE heilsurúm m/classic botni Shape deluxe heilsurúm: • Lagar sig fullkom lega að líkama þínum • 26 cm þykk heilsudýna • 2 cm latexlag bólstrað í áklæði • 4 cm gel memoryfoam • 4 cm shape memoryfoam • Non-slip efni á botni dýnunnar • Engir rykmaurar • 5 ára ábyrgð! • Ofnæmisprófuð • Burstaðir stálfætur Stærð cm. Fullt verð Jólatilboð 100x200 129.900 103.920 120x200 164.900 131.920 140x200 184.900 147.920 160x200 209.900 167.920 180x200 234.900 187.920 Jólatilboð 20% afsláttur NATURE’S DIAMOND heilsurúm 25% AFSLÁTTUR Nature’s Diamond heilsudýna með Classic botni og löppum nú á jólatilboði í Dorma. Verðdæmi: Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 204.900 kr. Aðeins 153.675 kr. Jólatilboð 180 x 200 cm Aukahlutur á mynd: rúmgafl. Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 REST heilsurúm MEIRA Á dorma.is • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Góðar kantstyrkingar Aðeins 67.915 kr. Nature’s Rest heilsu- dýna með Classic botni. Stærð: 120x200 cm. Fullt verð: 79.900 kr. Aðeins 19.900 kr. TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. Hafðu það notalegt um jólin Komdu í Dorma Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. 15% AFSLÁTTUR af 120 x 200 cm á meðan birgðir endast. Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. SHAPE B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G 20% AFSLÁTTUR JÓLA- TILBOÐ „Það gerist núna fyrir skömmu að það er hringt í umboðsmanninn minn frá Syco Entertainment og þau sögðu henni að staðið hafi til í nokkurn tíma að búa til sjónvarps- þátt sem ætti að gerast í Hearst- kastala við Kyrrahafið í Kaliforníu. Þá höfðu þau lesið Höll minning- anna og fundið það efni sem þau hefðu verið að leita að og vildu fá að kaupa réttinn á henni til að nota sem grunninn í sjónvarpsseríu,“ segir rithöfundurinn Ólafur Jóhann Ólafsson glaður í bragði. Skáldsagan Höll minninganna kom út hér á landi árið 2001 og segir söguna af Kristjáni Benedikts- syni sem hverfur eina nótt af heim- ili sínu í Reykjavík og endar sem einkaþjónn blaðakóngsins Hearst í kastala hans. Sagan gerist á fyrri hluta síðustu aldar en kastalinn og blaðakóngurinn eiga sér báðir stoð í raunveruleikanum að auki segir Ólafur að persóna Kristjáns sé byggð á íslenskum manni. Fyrirtækið sem um ræðir er sam- starfsverkefni fjölmiðlamannsins Simons Cowell, sem flestir þekkja úr raunveruleikaþáttunum The X Factor og Sony Entertainment. Fyrirtækið hefur verið stórtækt í sjónvarpi meðal annars má nefna fyrrnefnda X-Factor þætti og einn- ig framleiddi það heimildarmynd um strákabandið heimsfræga One Direction. En bandið rekur einmitt uppruna sinn til The X Factor. Nú er stefnan sett á að færa sig yfir í leikið sjónvarpsefni. Ólafur segir það hafa komið sem þrumu úr heiðskíru lofti þegar fyrirtækið setti sig í samband og lýsti yfir áhuga á skáldsögu hans, sér í lagi þar sem all- nokkur ár eru síðan bókin kom út. „Að þær skuli eiga svona framhalds- líf þessar bækur þegar þær eru löngu komnar út úr hausnum á manni sjálfum er gaman.“ S a m n i n g a r n i r hafa nú verið undir- ritaðir og þróunar- vinna við þættina hafin samkvæmt Ólafi. „Þeir eru að kortleggja þetta allt saman og fá fólk að þessu sem þeir vilja vinna með í þessu. Hand- ritshöfunda og annað sem myndu þá setja þetta saman,“ segir hann og bætir hógvær við: „Þetta er nú svolítil vegferð og maður sér bara hvað kemur út úr þessu, þetta getur farið á alla vegu.“ Ólafur tekur þó fyrir að hann muni koma að handritaskrifum þátt- anna en hann verði sjálf- sagt handritshöfundum og framleiðendum innan handar komi það til. „Þeir geta leitað til mín og fengið mig til skrafs og ráðagerða. Kannski fá þau mig til að hugsa þetta eitt- hvað með sér en ég ætla ekki að skrifa neitt af þessu, það verður í höndum þess fólks sem þau ráða í verkefnið.“ Ólafur er búsettur í New York og sinnir auk rit- störfum stöðu aðstoðar- forstjóra fjölmiðlasam- steypunnar Time Warner. Hann lætur ekki sitt eftir liggja í jólabókaflóðinu og sendi frá sér bókina Endur- koman á dögunum. „Það eru fjögur ár síðan síðasta bók kom út þannig það var líklega kominn tími á mig,“ segir hann glaðbeittur og bætir dularfullur við að lokum: „Aðalpersónan í bókinni er kannski ekki alveg óskyld einkaþjóninum Kristjáni Benediktssyni.“ gydaloa@frettabladid.is Simons Cowell tryggir sér skáldsögu Ólafs Jóhanns Syco Entertainment hyggst gera sjónvarpsþáttaröð eftir skáldsög- unni Höll minninganna. Ólafur segir tíðindin hafa komið á óvart. Ólafur Jóhann er að vonum ánægður. Kastalinn stendur á brún Santa Luciufjalla í Kaliforníu og var reistur af William Rand- olph Hearst. Hearst var blaðaútgefandi og sterkefn- aður. Á ferlinum eignaðist hann 28 dagblöð og gaf auk þess út 13 tímarit. Hann átti í ástarsam- bandi við leikkonuna Marion Davies. Hafist var handa við að reisa kastalann árið 1919 og stóð bygging hans yfir til ársins 1947. Í kastalanum voru 56 svefnherbergi, 61 bað- herbergi og 19 stofur auk tennisvallar, kvikmynda- húss og stærsta dýragarðs í einkaeign. Haldnar voru íburðar- miklar veislur í kastal- anum og meðal gesta voru Charlie Chaplin, Greta Garbo, Franklin Roose- velt og Winston Churchill en kastalinn er í dag opinn almenningi. Kastali Hearst 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r26 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.