Fréttablaðið - 23.11.2015, Side 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Berglindar
Pétursdóttur
Bakþankar
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
KOMDU OG KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ
A
R
G
H
!!!
2
31
11
5
Stærð: 90x200cm
Verð: 83.709 kr.-
Tilboð: 66.967 kr.
Stærð: 120x200cm
Verð: 98.036 kr.
Tilboð: 78.429 kr.
Stærð: 153x200cm
Verð: 124.620 kr.
Tilboð: 99.696 kr.
ROYAL CORINNA
ÞAÐ LÍÐUR AÐ JÓLUM
NÝ SENDING AF
GLÆSILEGUM
RÚMFÖTUM
Þægileg millistíf dýna með fimm-svæðaskiptu poka-gorma kerfi og góðann mjúkan topp
ásamt hörðum PU-leðurklæddum botni á stál löppum
Að breyta þinni hugmynd
í veruleika. Færa úr tölvutæku
formi í fullkominn prentgrip.
Þar liggur okkar ástríða.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Ég er 26 ára gömul, sem þýðir að það eina sem ég geri þessa dagana er að kaupa
þrítugsafmælisgjafir, brúðkaups-
gjafir og fæðingar- eða skírnar-
gjafir. Þetta er skemmtilegur
tími í lífinu en að sama skapi
stór undarlegur. Það er allt að
breytast svo hratt. Allt í einu eru
allir að verða fullorðið fólk og
lífið er orðið svona foreldralegt
einhvern veginn. Ég skil allt sem
foreldrar mínir sögðu við mig
sem barn svo miklu betur núna.
Kannski er þetta eitthvað alveg
beisik dæmi en ég er frekar mikið
í sjokki alla daga yfir fullorðins-
heitum mínum.
Ég var til dæmis að gera tilboð í
mína fyrstu íbúð nú á dögunum.
Ég sem hélt að ég myndi aldrei
gera neitt svo fullorðinslegt . Og
sjáið mig í dag, ég á bæði barn og
smájeppa. Hvílíkt og annað eins.
Áður en ég veit af verð ég líklegast
byrjuð að planta sumarblómum.
Það er fallegt en á sama tíma
mjög fyndið að fylgjast með
vinum sínum fullorðnast. Sumir
virðast fæddir til þess að gera full-
orðinslega hluti eins og að fara í
greiðslumat og sumarbústaði sem
starfsmannafélög eiga, á meðan
aðrir eru klaufalegri og ekki alveg
jafn tilbúnir til að eiga allt í einu
þrjú börn og hæð í Smáíbúða-
hverfinu.
En þegar allt er að breytast
svona hratt er nauðsynlegt að
eiga vini sem nenna að vera ung-
lingar áfram, þótt á hraðleið séu
á elliheimili. Taka sér pásu frá því
að tala um krakkana og liggja eins
og kartöflupokar í sófa og horfa á
hundrað sjónvarpsþætti, eins og
þegar við vorum unglingar. Núna
getum við samt hangið frammi
í stofu, ekki inni í herbergi. Og
borðað eins mikið af snakki og
við viljum.
Unglingafólk