Fréttablaðið - 28.09.2017, Qupperneq 36
Hugrún Harðardóttir var aðeins fimmtán ára þegar hún byrjaði að sópa gólf á
hárgreiðslustofu. Síðan þá hefur
hún unnið í faginu og er hár-
greiðslumeistari með eigin stofu
í dag. „Ég opnaði hárgreiðslu-
stofuna Barbarella Coiffeur á
horni Vonarstrætis og Suðurgötu
í september fyrir þremur árum.
Ég er alltaf þakklát fyrir vinnuna
mína. Ég vinn á besta og fal-
legasta staðnum í miðborginni
með iðandi mannlíf allt í kring og
hitti frábært fólk á hverjum degi.
Ég vinn mjög skapandi vinnu og
fæ að láta fólki líða vel. Ég bið
ekki um meira,“ segir Hugrún
brosandi.
Henni finnst haustin skemmti-
legasti tíminn þegar kemur
að tísku því hausttískan henti
íslensku veðurfari yfirleitt ágæt-
lega. „Ég hlakka alltaf til að fara
til útlanda á haustin til þess að ná
mér í smá vítamínsprautu fyrir
fagið mitt og skoða strauma og
stefnur. Ég vafra oft um á Pinterest
þegar mig vantar innblástur
en ég fæ líka mikið út úr því að
setjast niður með góðan kaffi-
bolla og tímarit á Eymundsson í
Austurstræti þegar tími gefst til,“
segir Hugrún þegar hún er spurð
hvernig hún fylgist með nýjustu
hártískunni.
Fjölbreytt hártíska
Vetrartískan í ár er mjög fjölbreytt
og skemmtileg og ættu allir að
finna línu við sitt hæfi, að sögn
Hugrúnar. „Hárið verður áberandi
náttúrulegt og afslappað og um
að gera að nýta þá eiginleika sem
hárið hefur að geyma. Hvort sem
hárið er brjálæðislega krullað,
með mjúka liði eða alveg slétt,
þá er allt flott. Gott er að hafa í
huga að þótt hárið sé afslappað
þá fæst það útlit ekki alveg fyrir-
Tagl, toppur og túpering
Hugrún Harðardóttir hárgreiðslumeistari segir að hártískan í vetur verði fjölbreytt og skemmtileg. Túp
eraður hnakki og flatur toppur, hátt/ lágt tagl, fléttur og snoðklipping er á meðal þess sem verður í tísku.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Djúp skipting til hliðar eða í miðj-
unni verður hámóðins í vetur.
Fléttur koma sterkar inn og auka-
hlutir í hárið verða vinsælir.
Í vetur verður hártískan lifandi og
skemmtileg.
„Ég vinn á besta og fallegasta staðnum í miðborginni með iðandi mannlíf allt
í kring og hitti frábært fólk á hverjum degi. Ég er í mjög skapandi vinnu og fæ
að láta fólki líða vel. Ég bið ekki um meira,“ segir Hugún. MYND/ERNIR
Ég hlakka alltaf til
að fara til útlanda á
haustin til þess að ná mér
í smá vítamínsprautu
fyrir fagið mitt og skoða
stauma og stefnur.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kjólar
Kr. 11.900.-
Str. 40-56
Fleiri litir og munstur
hafnarlaust og ég mæli með að fá
fagmanneskju til aðstoðar við að
finna rétta mótunarefnið, því það
breytir öllu. Djúp hliðarskipting
verður mjög áberandi og einnig
afturgreitt hár, sem er eins fingr-
unum hafi verið rennt í gegnum
hárið.“
Túpering og toppar
Áhrif frá sjötta áratugnum munu
skína skært í túperuðum hnakka
með flötum toppi, hvort sem um
er að ræða hliðarskiptingu eða
miðjuskiptingu, að sögn Hugrún-
ar. „Tagl í hárinu verður einnig
mjög heitt og hægt að útfæra það
á marga vegu, svo sem hátt eða
lágt, slétt eða úfið. Það er alltaf
flott að fela teygjuna með því að
vefja einum lokk úr taglinu yfir
og festa með spennum. Fastar
fléttur verða líka áberandi, eða
allt frá úfnum og lausum fléttum,
skreyttum fléttum með hár-
borða eða fléttum sem sitja hátt
á höfðinu. Hárbönd og borðar
verða vinsælir aukahlutir í hár-
tískunni í vetur,“ segir Hugrún
og bætir við að fyrir þá sem vilja
vel formaðar línur sé gaman að
prófa annaðhvort alveg stutta
eða millistutta klippingu. „Og
þá semí nútímalega „pageboy“
klippingu sem er flott að móta
með þurru vaxi og sjávarsalts-
spreyi. Núna er í tísku, og verður
áfram, næstum því snoðaður
kollur en þó með rétt nægri
lengd til þess að ná fram smá
áferð með hármótunarefnum.“
Allir litirnir í litrófinu eru í
boði en sem fyrr er áhersla á að
fá hreyfingu í hárið og að lita-
blöndunin sé falleg og mjúk.
„Eftir sumarfrí og sólarupplitun
er hárið oft gulnað og þurrt og þá
getur verið skemmtilegt að leika
sér með tónera sem geta breytt
litnum en samt leyft fallegri
hreyfingu að koma í gegn,“ segir
Hugrún.
Hárþvottur tvisvar í viku
En skiptir máli hvernig hársápa
er notuð og hversu oft hárið er
þvegið? „Já, hárumhirða skiptir
alltaf máli og mikilvægt að fjár-
festa í sjampói og næringu sem
henta hárgerðinni og því sem þú
vilt ná fram. Allir ættu að nota
hárnæringu hvort sem hárið er
gróft eða fínt. Hárið mun líta
betur út og verða heilbrigðara
fyrir vikið. Hárþvott með
sjampói ætti að takmarka við tvö
skipti í viku. Ef hárið er þvegið
daglega, mæli ég með að draga
úr því smátt og smátt því annars
fitnar hársvörðurinn frekar en
ella og hárið þornar. Ég myndi
frekar láta duga að skola hárið
vel með heitu vatni og nudda
og klóra hársvörðinn vel til að
koma blóðflæðinu af stað og
setja loks hárnæringu í endana.
Sítt hár þarf extra dekur ef það á
að líta vel út og þá er sniðugt að
nota djúpnæringu hálfsmánaðar-
lega eða jafnvel vikulega,“ segir
Hugrún.
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . s E p T E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R