Alþýðublaðið - 27.04.1925, Side 1

Alþýðublaðið - 27.04.1925, Side 1
Reykjavík 27. apríl Í925. Félagi! Verklýdsfélögin hér í Reykjavík hafa ákveðið að halda 1. Maí hálíðlegan, eins og alþýðan nu gerir um allan heim, til þess að bera fram kröfur sínar um þjóðskipulagsbreytingar og mótmœli gegn ofriki og rangsleytni hinnar ráðandi stéttar. Penna dag sýnir alþýðan andstœðingum sínum herafla sinn og gerir um leið liðkönnun. Ríður því á miklu að allir alþýðumenn og alþýðukonur og allir, sem þeim fylgja að málum, gangi í fylkinguna. Að þessu sinni hefir íslenzk alþýða auk þess alveg sérstaka ástœðu iil alvarlegra mótmæla gegn athœfi yfirráðastéttarinnar, íhaldsins og landsstjórnar þess. Nægir í því efni að benda á ríkislögreglumálið, gerðardómsmálið, einka- sölu- og skatiamálin og meðferð alþingis á fátœkra- og tryggingarmálunum, frumvarpi um iakmörkun nœturvuinu og öllum hagsbótamálum alþýðunnar. Pað eru því alvarleg tilmœli okkar fyrir hönd verklýðsfélaganna, að hver einasti félaqsmaður og félagskona leggi riiður vinnu og taki þátt í funda- höldum og kröfugöngu alþýðunnar í. Maí og taki með sér skyldulið sitt og kunningja. Alþýðan á að ráða lögum í landi voru og um allan heim. Hún er hin starfandi stétt og langmestur hluti landsbúa. Aðeins samtakaleysi hennar hindrar hana í að taka völdin í sínar hendur nú þegar. Alþýðumenn og alþýðukonur! Sameinist! Komið saman 1. Maí, berið ‘fram, öll sem einn, kröfur ykkar og mótmœli. Sameinaðir stöndum vér. Tilhögun hátíðahaldanna verður auglýst í Alþýðublaðinu. Með félagskveðju. í í. Maí nefnd Felix Guðmundsson. Björn J. Blöndal. Jóhanna Egilsdóttir. ólafur Friðriksson. Guðmundur Oddsson. Sigurjón Á. Ólafsson. Jónína Jónalansdóttir. Haraldur Guðmundsson. Magnús V. Jóhannesson. Héðinn Valdemarsson. Jón Back. Guðmundur Einarsson. Guðrún Runólfsdóttir. Guðrún Sigurðardóttir. Pjóðbjörg Jónsdóttir. Porkell Gíslason. Jónbjörn Gíslason. Rósenkranz ívarsson. Sigurður Pálmason. Vilhjálmur S. Vigfússon. Sigurgeir Björnsson. Guðjón Benedikisson.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.