Alþýðublaðið - 27.04.1925, Blaðsíða 1
Reykjavík 27. apríl Í925.
Félagi!
Verklýdsfélögin hér í Reykjavík hafa ákveðið að halda 1. Maí hálíðlegan,
eins og alþýðan nu gerir um allan heim, til þess að bera fram kröfur sínar
um þjóðskipulagsbreytingar og mótmœli gegn ofriki og rangsleytni hinnar
ráðandi stéttar.
Penna dag sýnir alþýðan andstœðingum sínum herafla sinn og gerir
um leið liðkönnun. Ríður því á miklu að allir alþýðumenn og alþýðukonur
og allir, sem þeim fylgja að málum, gangi í fylkinguna.
Að þessu sinni hefir íslenzk alþýða auk þess alveg sérstaka ástœðu iil
alvarlegra mótmæla gegn athœfi yfirráðastéttarinnar, íhaldsins og landsstjórnar
þess. Nægir í því efni að benda á ríkislögreglumálið, gerðardómsmálið, einka-
sölu- og skatiamálin og meðferð alþingis á fátœkra- og tryggingarmálunum,
frumvarpi um iakmörkun nœturvuinu og öllum hagsbótamálum alþýðunnar.
Pað eru því alvarleg tilmœli okkar fyrir hönd verklýðsfélaganna, að
hver einasti félaqsmaður og félagskona leggi riiður vinnu og taki þátt í funda-
höldum og kröfugöngu alþýðunnar í. Maí og taki með sér skyldulið sitt og
kunningja.
Alþýðan á að ráða lögum í landi voru og um allan heim. Hún er hin
starfandi stétt og langmestur hluti landsbúa. Aðeins samtakaleysi hennar
hindrar hana í að taka völdin í sínar hendur nú þegar.
Alþýðumenn og alþýðukonur! Sameinist! Komið saman 1. Maí, berið
‘fram, öll sem einn, kröfur ykkar og mótmœli.
Sameinaðir stöndum vér.
Tilhögun hátíðahaldanna verður auglýst í Alþýðublaðinu.
Með félagskveðju.
í í. Maí nefnd
Felix Guðmundsson. Björn J. Blöndal. Jóhanna Egilsdóttir.
ólafur Friðriksson. Guðmundur Oddsson. Sigurjón Á. Ólafsson.
Jónína Jónalansdóttir. Haraldur Guðmundsson. Magnús V. Jóhannesson.
Héðinn Valdemarsson. Jón Back. Guðmundur Einarsson.
Guðrún Runólfsdóttir. Guðrún Sigurðardóttir. Pjóðbjörg Jónsdóttir.
Porkell Gíslason. Jónbjörn Gíslason. Rósenkranz ívarsson.
Sigurður Pálmason. Vilhjálmur S. Vigfússon. Sigurgeir Björnsson.
Guðjón Benedikisson.