Kiwanisfréttir - 01.04.2006, Blaðsíða 14
FRETTIR FRA ÞYRLI
Kiwanisklúbburinn Þyrill hóf
sitt þrítugasta og sjötta
starfsár í okt. s.l. haust, og
hefur fundarsókn verið
nokkuð góð og starfið öflugt
og verða haldnir 15 fundir á
þessu starfsári.
Styrkir
Kiwanisklúbburinn Þyrill
hefur gefið margar góðar
gjafir til ýmissa stofnana hér á
Akranesi, og í tilefni þess að
Tónlistarskóli Akraness átti
fimmtíu ára afmæli s.l. haust
þá gaf klúbburinn skólanum
mjög góð og vönduð hljóm-
flutningstæki, sem vafalaust
eiga eftir að koma sér vel í
starfsemi skólans. Forseti
klúbbsins Jón Trausti Her-
varsson og féhirðir Olafur
Jónsson afhentu skólastjóran-
um Lárusi Sighvatssyni gjöf-
ina.
Og í haust afhenti klúbburinn
Iþróttafélaginu Þjóti æfinga-
galla á félagsmenn sína, en
klúbburinn hefur áður stutt
vel við íþróttastarf fatlaðra í
Þjóti.
Jólafundur.
Jólafundur er fastur liður i
dagskrá klúbbsins og á fundi
10. des s.l. var Steinunn Sig-
urðardóttir hjúkrunarforstjóri
Sjúkrahúss Akraness ræðu-
maður, en hún fór s.l. haust í
Kínaferð með manni sínum,
félaga okkar Bjarna Vésteins-
syni, og sagði hún frá þessari
ferð þeirra í máli og myndum,
og gerði það mjög vel, og
margt athyglisvert sem kom
þar fram.
Á jólafundinum fengu sex
félagar merki um 25 ára starf
í Kiwanis, og þeim færðar
þakkir fyrir góð störf á
liðnum árum.
Stofnanaheimsóknir.
Á undanförnum árum hafa
félagar farið í heimsóknir til
fyrirtækja og stofnana, og
hafa þessar heimsóknir tekist
mjög vel, og s.l. haust var
farið til Orkuveitu Reykja-
víkur borholur á Hellisheiði
skoðaðar og svo Höfuð-
stöðvar Orkuveitunnar í
Reykjavík. Þessi ferð var mjög
skemmtileg í alla staði.
Fjáröflun.
Aðal fjáröflun klúbbsins á
liðnum árum hefur verið sala
flugelda, og í ár gekk hún
mjög vel. Klúbburinn er með
mjög öfluga og samhenta
félaga sem sjá um innkaup og
skipuleggja söluna, og eru
komnir inní þessi mál,og
þekkja hlutina, og er það
dýrmætt fyrir klúbbinn, hafi
þeir bestu þakkir fyrir sína
mjög svo góðu vinnu.
Golfbíll.
Á almennum fundi 27. feb. sl.
var samþykkt að gefa Golf-
klúbbnum Leyni Akranesi
golfbíl til útleigu fyrir félags-
menn sem eiga erfitt með
gang. Gert er ráð fyrir að
bíllinn verði afhentur í maí.
Þyrilsfélagar senda öllum
Kiwanisfélögum og fjölskyld-
um þeirra bestu óskir um
gleðilegt sumar, og heillaríkt
starf fyrir land og lýð.
KIWANISKLÚBBURINN ÓS
í vetur hefur starf okkar verið
nokkuð stöðugt og höfum við
tekist á við hefðbundin verk-
efni og einnig bryddað upp á
nýjungum. En helst er það að
frétta að við stóðum að sölu
jólatrjáa hér á Höfn í vetur,
sem hjálpaði upp á gleðileg jól
á mörgum heimilum. En
jólatrjáa sala ásamt rekstri
auglýsingaskilta og páska-
eggja bingó eru okkar aðal
fjáraflanir og ganga þær oftast
þokkalega. Heldur hefur
fækkað í klúbbnum og erum
við nú 17 en þó er ekki neinn
bilbugur á okkur, við höfum í
vetur og haust gefið búnað í
grunnskólana að andvirði um
110 þús. kr. og þá styrktum við
heilsugæslustöðina um 150
þús. kr. til kaupa á röntgen-
tækjum sem sárlega vantar, þá
höfum við að auki styrkt
einstaklinga. Nýjasta fjáröflun
okkar er að setja upp götukort
af bænum á skilti og seljum
merkingar á það. Af þessu má
sjá að við störfum af afli þrátt
fyrir fækkun félaga, en við
erum að snúa vörn í sókn í
þeim efnum. Félagar fjöl-
menntu með betri helmingum
á Norðurljósa blústónleika
föstudaginn 3. mars og þar
spilaði Blúskopaníið og fleiri,
fóru félagar fyrst út að boða og
síðan tónleikana í framhaldi,
er það rómur félaga og maka
að vel hafi gengið að rækta
félagsandann.
14